Author: lensherra

Hugarflug hjá Leikfélagi Selfoss

Vor í Árborg stendur nú fyrir dyrum og þá blómstrar menningarlífið sem aldrei fyrr í sveitarfélaginu. Leikfélag Selfoss lætur ekki sitt eftir liggja í dagskránni og bíður upp á hið sívinsæla Hugarflug í tengslum við hátíðina og verður það sýnt 23. maí kl. 17:00 og 24. maí kl. 14:00 í Litla leikhúsinu við Sigtún. Að þessu sinni er Hugarflugið óvenju veglegt og mjög fjölbreytt. Í dagskránni er m.a. boðið upp á klassískar persónur leikhússins í nýju ljósi, lítt gáfaða bræður, annað erindi blaðamanna og fjölbreytta tónlist úr ýmsum áttum. Þátttakendur eru í kringum 20 á ýmsum aldri, reyndir í...

Read More

Fyrir og eftir syndafallið

Ó, þú aftur? er ný og endurgerð uppfærsla á leikritinu Ó, þú eftir Ingibjörgu Hjartardóttur, Sigrúnu Óskarsdóttur og Unni Guttormsdóttur. Leikritið var frumsýnt af Hugleik á Galdraloftinu vorið 1987 og nú, rúmlega tuttugu árum síðar, er komið að því að færa þetta velumtalaða leikrit (og költverk) upp á nýjan leik á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Megintilefnið er aldarfjórðungsafmæli Hugleiks en þessi elsti starfandi áhugaleikhópur í höfuðstaðnum var stofnaður árið 1984. Í þessari aldursumfjöllun er nauðsynlegt að minna á þá sérstöðu Hugleiks, meðal annarra íslenskra leikfélaga, að leikverk hópsins eru öll samin innan hans og umfjöllunarefnið sprettur beint upp úr íslensku þjóðlífi...

Read More

Halaleikhópurinn með Kaffileikhús á Uppstigningardag

Á uppstigningardag, 21. mai kl. 17.00, verður kaffileikhús hjá Halaleikhópnum í Halanum Hátúni 12 (norðanverðu við hliðina á þar sem Góði Hirðirinn var). Sýnd verða þrjú stuttverk eftir Benoný Ægisson, Jónínu Leósdóttir og Ármann Guðmundsson. Leikstjóri er Gunnar „Gunsó“ Gunnarsson. Milli atriða verða leika hljómsveitir auk þess sem uppistandararnir í Hjólastólasveitinni troða upp. Aðeins verður þessi eina sýning. Verkin sem sýn verða eru: Miðvikudagur í Helvíti, eftir Ármann GuðmundssonBara Tjilla, eftir Jónínu LeósdótturEinleikur fyrir höfund og leikara, eftir Benóný ÆgissonHjólastólasveitin mun flytja nýtt rúllandi uppistand sem þau kalla Kókosbollu hó ó pónó, leikstjóri Ágústa Skúladóttir Þrjár hljómsveitir munu flytja...

Read More

Brunað í gegnum Bólu-Hjálmar í Leikhúsinu

Stoppleikhópurinn sýnir nk. mánudag 18. maí í Leikhúsinu Funalind 2 í Kópavogi, nýtt íslenskt leikrit byggt á lífi og ljóðum Bólu-Hjálmars. Sýningin hefst kl.20.00. Verkið nefnist Brunað í gegnum Bólu-Hjálmar en það var frumsýnt í maí sl. í Iðnó. Hefur það síðan verið á leikferð um landið þar sem sýningar fóru fram bæði í grunnskólum og á hjúkrunarheimilum eldri borgara. Nú gefst almenningi því tækifæri til að berja verkið augum. Bólu-Hjálmar er nafn sem við höfum öll heyrt. Grunnskólakrakkar vita sennilega flestir að hann var skáld. Þeir sem eldri eru kunna sum ljóðin hans og muna eftir honum af...

Read More

Og hvað svo?! í Flensborgarskóla

Spunaverkið Og hvað svo?! í leikstjórn Eyrúnar Óskar Jónsdóttur er sýnt um þessar mundir hjá leiklist Flensborgarskólans í Hafnarfirði. Þar er fjallað á lifandi og frumlegan hátt um um atburði síðastliðnu mánuða, hvernig þeir blöstu við þeim og hvaða framtíð þau sjá fyrir sér fyrir. Sýningin er með óhefðbudnum hætti, en þetta er svo kölluð promenade sýning þar sem nokkur atriði eru leikinn samtímis á mismunandi stöðum í rýminu og þurfa áhorfendur að ganga á milli þeirra til þess að sjá heildarmyndina. Miðaverð kr. 500, hægt er að kaupa miða í síma 849-8994.Sýningin fer fram í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði,...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert