Author: lensherra

Tilnefningar til Grímunnar 2009

Leiklistarsamband Íslands boðar til fréttamannafundar á morgun, föstudaginn 29. maí, á stóra sviði Borgarleikhússins. Fundurinn hefst kl. 15. Tilkynnt verður um hvaða sýningar og listamenn hljóta tilnefningar til Grímunnar – Íslensku leiklistarverðlaunanna árið 2009. Forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, sem jafnframt er verndari Grímunnar, afhendir þeim rúmlega 100 sviðslistamönnum viðurkenningar er tilnefningar hljóta. Kynnar hátíðarinnar Edda Björg Eyjólfsdóttir og Jóhann G. Jóhannsson slá á létta strengi og flutt verður atriði úr söngleiknum Söngvaseiði sem sýndur er í Borgarleikhúsinu um þessar mundir. Gríman – Íslensku leiklistarverðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn þriðjudaginn 16. júní í Borgarleikhúsinu. Þetta verður í...

Read More

Leikfélag Patreksfjarðar frumsýnir nýtt leikrit

Föstudaginn 29. maí frumsýnir Leikfélag Patreksfjarðar leikritið Ástir í meinum, fjársjóður í leynum – eða nauðsynleg genablöndun? Patreksfirskt ævintýri, í leikstjórn höfundar verksins, Dóru Jóhannsdóttur. Önnur sýning verður á laugardaginn 30. maí. Verkið er byggt á sögum sem Sjóræningjahúsið á Patreksfirði notar í sinni sýningu og fjallar um komu sjóræningja til Patreksfjarðar og samskipti þeirra við íslenskt alþýðufólk þeirra tíma en eins og gefur að skilja getur það ekki gengið fullkomlega hnökralaust fyrir sig. Hvítasunnuhelgin er mikil gleðihelgi á Patreksfirði en þá eru fermingar og hin stórskemmtilega og metnaðarfulla heimildamyndahátið, Skjaldborg. Þessa helgi iðar þorpið af lífi og margt...

Read More

Sædýrum fagnað í Frakklandi

Leikhópur Þjóðleikhússins frumsýndi í gær Sædýrasafnið eftir Marie Darriuessecq í Orléans. Verk þetta, sem sérstaklega var skrifað fyrir Þjóðleikhúsið og sýnt í Kassanum í mars, verður sýnt sex sinnum þar ytra og er uppselt á allar sýningarnar. Sædýrasafnið er fyrsta leikrit frönsku skáldkonunnar Marie Darrieussecq en er unnin í samstarfi við fyrrgreint ríkisleikhús í Orléans (Centre Dramatique National Orléans), með stuðningi franska sendiráðsins á Íslandi og Culturesfrance. Leikhópnum var ákaft fagnað af áhorfendum eftir frumsýninguna, og uppselt er á allar sýningarnar í Orléans. Blaðaumfjöllun um sýninguna í Frakklandi, svo sem í Le Monde og Les Inrockuptibles, hefur einnig verið...

Read More

Aðalfundur Halaleikhópsins 2009

Fimmtudaginn 28. maí kl. 20.00 verður aðalfundur Halaleikhópins haldinn í Halanum Hátúni 12, 105 Reykjavík. Dagskrá aðalfundar verður samkvæmt lögum félagsins. 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.2. Inntaka nýrra félaga.3. Skýrsla stjórnar.4. Afgreiddir endurskoðaðir reikningar félagsins.5. Afgreiðsla tillagna sem borist hafa fundinum, svo sem lagabreytingar. 6. Starfsemi næsta leikárs. 7. Kosning stjórnar, varastjórnar, tveir skoðunarmenn reikninga.8. Önnur málAth. aðeins skuldlausir félagar hafa atkvæðisrétt á...

Read More

Síðustu sýningar á Ó, þú aftur?

Nú eru aðeins þrjár sýningar eftira af sýningu Hugleiks á Ó, þú aftur? eftir Ingibjörgu Hjartardóttur, Sigrúnu Óskarsdóttir og Unni Guttormsdóttur í leikstjórn Odds Bjarna Þorkelssonar á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Þær eru miðvikudaginn 27. maí, fimmtudaginn 28. maí og föstudaginn 29. maí. Að hugleikskum sið leikur tónlist stórt hlutverk í sýningunni, en höfundar hennar eru Ljótu hálfvitarnir Þorgeir Tryggvason, Eggert Hilmarsson, Sævar Sigurgeirsson og Oddur Bjarni Þorkelsson. Hér er á ferð sérstök afmælissýning í tilefni af 25 ára starfsafmæli leikfélagsins. Hugleikur hefur getið sér orð fyrir glannalega meðferð á íslenskum menningararfi, en að þessu sinni er það hans eigin fortíð...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert