Út í kött! á Björtum dögum í Hafnarfirði
Lýðveldisleikhúsið sýnir Út í kött! nýjan dans og söngleik fyrir börn í Hafnarfjarðarleikhúsinu um helgina, alls þrjár sýningar og eru þær liður í hátíðinni Björtum dögum. Verkið er ævintýraleikur fyrir börn á öllum aldri og fjallar um tvo krakka og ferðalag þeirra um tölvu og ævintýraheima. Leikin atriði mynda skemmtilega umgjörð utan um söng- og dansatriði þar sem ævintýrapersónur í litríkum búningum bregða á leik. Leikritið fjallar um strákinn Erp sem neyðist til að taka á móti dóttur vinafólks foreldra sinna inn í herbergið sitt. Helga Soffía er hress og hraðlýgin og kann frá mörgu undarlegu að segja. Erpur...
Read More


