Author: lensherra

Færeyskur Óþelló í Iðnó og á Húsavík

Færeyski leikhópurinn Huðrar sýnir margrómaða uppsetningu sína á Óþelló Shakespeares hér á landi núna í vikunni. Miðvikudaginn 12. ágúst verða tvær sýningar í Iðnó í Reykjavík, kl. 19 og 21 og föstudaginn 14. ágúst verður sýnt í Samkomuhúsinu á Húsavík kl. Héðan heldur hópurinn svo til Mónakó þar sem þau sýna Óþelló á leiklistarhátíð Alþjóðlega áhugaleikhúsráðsins IATA. Leikstjóri sýningarinnar er Hans Tórgarð. Huðrar sýndi Óþelló m.a. á leiklistarhátíð Noður-Evrópska leikhúsráðsins (NEATA) í Riga í Lettlandi fyrra og verður nú ásamt finnskri sýningu fulltrúi Norðurlandanna á Mondial du Theatre leiklistarhátíðinni í Mónakó sem er ein virtasta áhugaleikhúshátíð heims og er...

Read More

Act alone leiklistarhátíðin haldin sjötta árið í röð

Eina árlega leiklistarhátíðin á Íslandi, Act alone, verður haldin hátíðleg sjötta árið í röð dagana 14. – 16. ágúst. Act alone verður í Edinborgarhúsinu á Ísafirði og á Gíslastöðum í Haukadal í Dýrafirði. Að vanda er aðgangur að hátíðinni ókeypis og öllum opin enda er hér um hátíð að ræða og mikilvægt að sem flestir fái að njóta. Act alone er helguð einleikjum og er meðal fárra slíkra í Evrópu. Á dagskrá Act alone í ár eru alls fimm einleikir, eins manns tónleikar, sögusýning um einleiki á Íslandi og loks fyrirlestur um förumenn og leiklist á 19. öld á...

Read More

Leikfélag Keflavíkur leitar að leikstjóra

Leikfélag Keflavíkur stendur í ströngu þessa dagana og er mikið líf í Frumleikhúsinu. Stuttu eftir aðalfund tók ný stjórn sig til og hóf framkvæmdir við breytingar á húsinu sem óðum eru að klárast. Meðal þess sem hefur verið gert er að búningageymsla hefur verið færð og gamla búningageymsaln rifin ásamt milliveggjum í kjallara, farið var yfir alla búninga og leikmuni og ýmsu hent sem hafði safnað ryki undanfarin ár ef ekki áratugi. Einnig má geta þess að Leikfélagið fékk nú nýlega aðgang að rými sem áður var nýtt undir keramikaðstöðu aldraðra og mun það án efa nýtast félaginu mjög...

Read More

Rauðhetta á Suður- og Vesturlandi

Leikhópurinn Lotta verður á ferð og flugi með sýninguna sína Rauðhettu um Verslunarmannahelgina. Á laugardeginum mun hópurinn sýna á Flúðum en sýnt verður á íþróttavellinum klukkan 13:00. Síðar þann sama dag halda þau í Þrastarlund og sýna á pallinum við veitingastaðinn klukkan 17:00. Á sunnudeginum færir hópurinn sig á vesturlandið og verður Rauðhetta í Munaðarnesi klukkan 13:00 við þjónustumiðstöðina. Helginni lýkur síðan í Húsafelli klukkan 17:00 á sunnudeginum en þar sýnir hópurinn íVarðeldalundi.Rauðhetta og úlfurinn, Hans og Gréta og grísirnir þrír hlakka mikið til að hitta alla vini sína um Verslunarmannahelgina.Nánar á www.leikhopurinnlotta.is og í síma 770-0403....

Read More

Jörundur – Slitrur úr ævisögu sýnt í Hressógarðinum

Í tilefni af 200 ára afmæli hinnar stuttu en litríku valdatíðar Jörundar hundadagakonungs á Íslandi hefur lítill leikhópur sett saman dagskrá um þennan skrautlega ævintýramann. Stiklað verður á stóru í ótrúlega viðburðaríku lífshlaupi þessa danska úrsmiðssonar og sægarps, en þó valdatíð hans á Íslandi sé sennilega hápunkturinn í ferli hans þá var hún svo sannarlega ekki það eina frásagnarverða. Á saga hans svo sannarlega erindi við okkur, ekki síst á þeim viðburðaríku tímum sem við lifum nú. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir og handrit gerðu Ármann Guðmundsson og Þorgeir Tryggvason. Frumleg nálgun Ágústu Skúladóttur á leikhúsið hefur skilað sér í...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert