Author: lensherra

Leikhópurinn Lotta á Vesturlandi

Dagana 9. – 13. júní mun Leikhópurinn Lotta ferðast með sýninguna sína, Rauðhettu, um Vesturland. Ferðin hefst í Borgarnesi en þar er sýnt í Skallagrímsgarði, fimmtudaginn 11. júní klukkan 18:00. Um helgina verður farið á Snæfellsnesið, fyrst til Ólafsvíkur á föstudeginum en þar er sýnt í Sáinu klukkan 18:00 og á laugardeginum er sýnt annars vegar í Grundarfirði klukkan 11:00 og í Stykkishólmi í Kvennfélagsgarðinum klukkan 15:00. Frá Vesturlandi heldur hópurinn til Vestfjarða og þaðan norður í land. Sýnt er utandyra og er því um að gera að klæða sig eftir veðri og taka með sér teppi til að...

Read More

Tvö plass laus í skólann vegna forfalla!

Tvö pláss á sérnámskeið fyrir leikara voru að losna vegna forfalla í Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga sem settur verður nk. laugardag. Kennari er Rúnar Guðbrandsson. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa reynslu í leikhúsi. Þeir ganga fyrir sem sótt hafa Leiklist I og II eða sambærileg námskeið eða hafa talsverða reynslu af sviðsleik.Námskeiðið snýst um tækni, þjálfun og sköpun leikarans og sækir m.a. innblástur í Leikhús grimmdarinnar (Antonin Artaud), Fátæka leikhúsið (Jerzy Grotowski) og Þriðja leikhúsið (Eugenio Barba).   Til að byrja með verður farið í atriði er lúta að leiktækni, – sjálfu handverki leikarans, því hversu skapandi sem...

Read More

Út í kött! á Björtum dögum í Hafnarfirði

Lýðveldisleikhúsið sýnir Út í kött! nýjan dans og söngleik fyrir börn í Hafnarfjarðarleikhúsinu um helgina, alls þrjár sýningar og eru þær liður í hátíðinni Björtum dögum. Verkið er ævintýraleikur fyrir börn á öllum aldri og fjallar um tvo krakka og ferðalag þeirra um tölvu og ævintýraheima. Leikin atriði mynda skemmtilega umgjörð utan um söng- og dansatriði þar sem ævintýrapersónur í litríkum búningum bregða á leik. Leikritið fjallar um strákinn Erp sem neyðist til að taka á móti dóttur vinafólks foreldra sinna inn í herbergið sitt. Helga Soffía er hress og hraðlýgin og kann frá mörgu undarlegu að segja. Erpur...

Read More

Við borgum ekki! Við borgum ekki! í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 6. júní frumsýnir Leikhópurinn Nýja Ísland farsann Við borgum ekki! Við borgum ekki! eftir Nóbelsskáldið Darío Fo á Nýja sviði Borgarleikhússins. Leikstjóri er Þröstur Leó Gunnarsson. Þetta er drepfyndinn og hárbeittur gamanleikur um það sem gerist þegar neyðin kennir nakinni konu að spinna lygavef. Úti er órói í almenningi enda hefur allt hækkað upp úr öllu valdi á sama tíma og verið er að skera niður og segja upp fólki. Konurnar taka málin og matinn í sínar hendur og meðan lögreglan leitar þeirra sem hafa fengið sér vörur með 100% afslætti, hefur frjósemi borgaranna aukist með dularfullum hætti...

Read More

Uppdeitaðir víkingar taka Þjóðleikhúsið

Það brutust út fagnaðarlæti norður í landi þegar það fréttist að Rokksöngleikurinn Vínland hafði verið valinn til sýningar í Þjóðleikhúsinu.  Menn ýmist urðu orðlausir eða brustu í grát eins og Óskarinn væri loksins í höfn. Af sjálfsögðu var umsvifalaust slegið upp fagnaðarpartíi og glaðst fram undir morgun eins og leikhópurinn gerir stundum. En núna nokkrum dögum seinna blasir alvaran við. Það þarf að æfa þetta uppá nýtt og pakka niður nokkrum tonnum af leikmynd og kalla saman 30 leikara og aðstoðarfólk, sem hafa leiklist að áhugamáli og eiga það allir sameiginlegt að hafa margt annað að gera en að...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert