Author: lensherra

Vandað Bergmál í Hafnarfirðinum

Hörður S. Daníelsson fór á frumsýningu hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar sl. föstudag og sá Bergmál, verk eftir N. Richard Nash. Leikarar eru Guðrún Sóley Sigurðardóttir og Aldís Davíðsdóttir, en þær sáu einnig um leikstjórn, búninga, leikmynd, ljós og allt annað sem viðkemur sýningunni. Einnig kom Halldór Magnússon við sögu í litlu þögulu hlutverki. Leikritið sjálft er mjög gott. Gerist á geðveikrarhæli og fjallar um tvær konur sem eru búnar að skapa sinn eigin platheim saman. Verkið kafar í það hvað er raunverulegt í huga okkar og reynt að svara ýmsum spurningum varðandi það. Ég var heillaður af textanum, hvörfunum og...

Read More

Morbid á Art fart

Hörður S. Daníelsson skellti sér um daginn á sýninguna Morbid hjá The Fiasco Division í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Morbid er ein af sýningum Art fart hátíðarinnar sem nú er í fullum gangi. Þetta var devised leiksýning sem fjallar um lífið, eða tilgang lífsins eftir dauðan. Leikarar eru fimm: Alecande Roberts, Anna Zehentbauer, Kári Viðarsson, Lauren McCullum og Stephanie Thorpe. En þau eru öll verðandi útskriftarnemar í European Theatre Arts leiklistarbraut Rose Bruford College í London. Ljósin voru í höndum Garðars Borgþórssonar. Þögull, og alvarlegur náungi með gleraugu, spilaði hljóðlaust á rafmagnsorgel í anddyrinu er beðið var eftir sýningu. Það setti stemninguna....

Read More

Bergmál frumsýnt hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Föstudaginn 14. ágúst kl. 20.00 frumsýnir Leikfélag Hafnarfjarðar leikverkið Bergmál eftir N. Richard Nash í húsnæði félagsins á neðstu hæð Menntasetursins við lækinn (Galma Lækjarskóla). Sýningin er unnin í kringum upprunalegt handrit höfundar, en ekki algerlega uppúr því, en leikendur eru Guðrún Sóley Sigurðardóttir, Aldís Davíðsdóttir og Halldór Magnússon. Guðrún Sóley Sigurðardótir og Aldís Davíðsdóttir sáu einnig um alla leikstjórn, sviðsmynd, búninga, lýsingu og allt það sem við kemur sýningunni. Verkið fjallar um tvær konur sem fastar eru í heimi minnisleysis og geðveiki. Þær reyna að átta sig á umhverfi sínu, fortíð, framtíð og yfirstíga þeirra mestu ógn; manninn....

Read More

Söngleikurinn Fúttlús í Mosfellsbæ

Leikfélag Mosfellssveitar sýnir um þessar mundir söngleikinn Fúttlús eftir Dean Pitchford og Walter Bobbie í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ. Þýðandi verksins er Gísli Rúnar Jónsson. Sýningin er liður í sumarstarfi leikfélagsins sem gengur undir nafninu Leikgleði, Barna- og unglingaleikhúsi Mosfellsbæjar og er í ár skipað yfir 30 unglingum sem hafa æft stíft frá því 8. júní og unnið þessa sýningu af einstökum áhuga og metnaði sem ætti að hrífa alla með sér. Leikstjóri er Agnes Þorkelsdóttir Wild, danshöfundur Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm og tónlistarstjóri Sigrún Harðardóttir. Söngleikurinn Fúttlús segir frá Aroni, 16 ára strák sem flytur með mömmu sinni í...

Read More

Færeyskur Óþelló í Iðnó og á Húsavík

Færeyski leikhópurinn Huðrar sýnir margrómaða uppsetningu sína á Óþelló Shakespeares hér á landi núna í vikunni. Miðvikudaginn 12. ágúst verða tvær sýningar í Iðnó í Reykjavík, kl. 19 og 21 og föstudaginn 14. ágúst verður sýnt í Samkomuhúsinu á Húsavík kl. Héðan heldur hópurinn svo til Mónakó þar sem þau sýna Óþelló á leiklistarhátíð Alþjóðlega áhugaleikhúsráðsins IATA. Leikstjóri sýningarinnar er Hans Tórgarð. Huðrar sýndi Óþelló m.a. á leiklistarhátíð Noður-Evrópska leikhúsráðsins (NEATA) í Riga í Lettlandi fyrra og verður nú ásamt finnskri sýningu fulltrúi Norðurlandanna á Mondial du Theatre leiklistarhátíðinni í Mónakó sem er ein virtasta áhugaleikhúshátíð heims og er...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert