Author: lensherra

Margt smátt haldin á Seltjarnarnesi 10. október

Fáþjóðlega stuttverkahátíðin Margt smátt verður haldin í Félagsheimili Seltjarnarness þann 10. október nk. Umtalsverðar breytingar hafa orðið á hátíðinni frá fyrri hátíðum, sú mest afgerandi er staðsetning hennar en vegna þess hve þétt Borgarleikhúsið er bókað reyndist ekki unnt að koma henni fyrir í sýningarplani þar. Hin nýbreytnin er að á hátíðinni verða 3-5 færeyskar sýningar og má því með sanni kalla hana „fáþjóðlega“ Hátíðin verður sett kl. 13.30 og sýningar hefjast kl. 14.00 og standa til 17.00. Að þeim loknum munu gagnrýnendur fjalla um sýningar hátíðarinnar. Hátíðin er opin öllum aðildarfélögum Bandalags íslenskra leikfélaga og Meginfélags áhugaleikfélaga í...

Read More

Hauststarf Leikfélags Selfoss að fara á fullan skrið

Nú er haust- og vetrarvertíðin að hefjast hjá Leikfélagi Selfoss og nóg er á dagskrá, reyndar svo mikið að stjórnin hefur setið sveitt undanfarið við að koma öllum þeim viðburðum sem boðið verður uppá fyrir á dagatalinu. Það verður því engin lognmolla í leikhúsinu á Selfossi og mun það iða af lífi frá hausti og fram á vor og allir ættu að finna eitthvað spennandi við sitt hæfi. Að venju mun haustið hefjast á haustfundi leikfélagsins þar sem dagskrá vetrarins verður kynnt. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 9. september kl. 20:30 í Litla leikhúsinu við Sigtún á Selfossi. Fundurinn verður...

Read More

Leikárið byrjað hjá Leikfélagi Ölfuss

Leikfélag Ölfuss hefur hafið æfingar á leikritinu Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund Bachman. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson sem einnig stýrði uppfærslu félagsins síðasta vetur á hinu óborganlega gamanleikriti Blúndum og blásýru. Frumsýnt verður fyrir áramótin og verða sýningartímar auglýstir síðar. Mikill áhugi er á starfsemi félagsins um þessar mundir og er gaman að segja frá því að í fyrsta sinn frá endurreisn félagsins árið 2006 er hægt að velja úr hópi karlmanna sem keppast um að komast á svið. Það verður því án efa spennandi að fylgjast með LÖ í vetur....

Read More

Hold me until you break á artFart

Dagana 26. og 27. ágúst, kl: 20:00, sýnir leikhópurinn Bottlefed leikverkið Hold me until you break í Iðnó við Vonarstræti. Hold Me Until You Break er spunnin sýning um ást og sambönd, þar sem leikarar, lifandi tónlist, hönnun og lýsing gegna jafn mikilvægum hlutverkum. Leikstjóri er Kathrin Yvonne Bigler. Sýningin er á dagskrá artFart leiklistarhátíðarinnar. Grundvallarhugmyndin á bak við vinnuna snýst um örþreytu leikaranna, sem kallar fram raunverulegar tilfinningar sem þeir finna í augnablikinu. Verkið sækir styrk sinn jafnt í síbreytileika mannlegra tilfinninga sem og spuna. Það getur ekki verið sett inn í fyrirfram ákveðinn ramma – ekki frekar...

Read More

Leikárið 2009-10 í Borgarleikhúsinu

Leikfélag Reykjavíkur kynnti nýlega efniskrá vetursins og eins og endra nær er hún fjölbreytt og margt þar spennandi. Þar verða hláturtaugar kitlaðar, bestu vinkonur allra barna flytja inn í Borgarleikhúsið, ný leikgerð um Faust verður frumsýnd um jólin og við bjóðum til söng- og leikveislu þegar Gauragangur, Ólafs Hauks Símonarsonar verður settur á svið eftir langa bið. Á Stóra sviðinu verður haustið byrjað á Söngvaseið en síðan tekur við nýtt leikrit eftir bandaríska leikskáldið Tracy Letts, Fjölskyldan – ágúst í Osage-sýslu. Verkið hefur farið sigurför um heiminn síðastliðið ár og sópað til sín verðlaunum, hlaut m.a. Pulitzer verðalaunin sem...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert