Author: lensherra

Málþing um íslenska leiklistarfræði

Laugardaginn 14. nóvember nk. efna Leikminjasafn Íslands og Listaháskóli Íslands til málstofu um íslenska leiklistarfræði. Málstofan er haldin í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands og Hugvísindasvið Háskóla Íslands. Hún verður haldin í fundasal Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu og hefst kl. 14.00.   Eftirtaldir fræðimenn flytja stutt erindi: Ólafur J. Engilbertsson, sagnfræðingur og leikmyndahöfundur: „Rétt landslag eða róttæk list?“ – sögunni miðlað á sviðinu. Ingibjörg Björnsdóttir, listdnskennari: „Ausdruckstanz“ á íslensku leiksviði – Um dansarann Ellen Kid. Magnús Þór Þorbergsson, lektor við Leiklistardeild Listaháskóla Íslands, „Hvað eigum við að kalla instructör?“ – Nokkrar hugleiðingar um stöðu leikstjórans í íslensku leikhúsi á 3. áratugi...

Read More

Mjallhvít og dvergarnir sjö í Mosfellsbæ

Sunnudaginn 15. nóvember verður leikritið Mjallhvít og dvergarnir sjö frumsýnt hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Æfingar hafa staðið yfir síðustu vikur, en alls taka yfir tuttugu leikarar og tónlistarmenn þátt í sýningunni. Höfundur leikgerðar er Margarete Kaiser og þýðandi er Stefán Jónsson. Leikstjóri er Herdís Þorgeirsdóttir. Leikritið er fullt af gleði og söng og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Miðaverð er 1200 krónur og miðapantanir í síma 566 7788.Frumsýning sunnudaginn 15. nóvember kl. 14.2. sýning sunnudaginn 22. nóvember kl. 14.3. sýning sunnudaginn 29. nóvember kl. 14.4. sýning sunnudaginn 6. desember kl. 14.5. sýning sunnudaginn 13. desember kl. 14.6. sýning sunnudaginn 20....

Read More

Heilsugæslan í Búðardal, Grundarfirði, Arnardal og Suðureyri

Hápólitíski gamanleikurinn Heilsugæslan verður sýndur víða um helgina. Leikurinn hefst í Búðardal á fimmtudag 12. nóvember. Sýnt verður í Dalabúð og hefst sýningin kl.20.30. Daginn eftir föstudaginn 13. nóvember verður Heilsugæslan í Grundarfirði. Sýnt verður á hinum geggjaða stað Kaffi 59 og hefst leikurinn kl.20.30. Miðasala á báðar sýningarnar opnar hálftíma fyrir sýningu. Á laugardag 14. nóvember verða tvær sýningar á Vestfjörðum. Fyrri sýningin er í Arnardal og hefst kl.20.30. Heislugæslan flytur sig svo yfir í Súgandafjörð og verður með miðnætursýningu í Félagsheimilinu. Sýningin hefst kl.23.30 og er gaman að geta þess að þetta er jafnframt tuttugasta sýningin á...

Read More

Prologos úthlutar styrkjum

Nýlega fór fram fjórða úthlutun úr Leikritunarsjóðnum Prologos, sem starfar við Þjóðleikhúsið. Umsóknir voru fjölmargar að vanda, en alls bárust 36 umsóknir nú. Þrír höfundar hljóta handritsstyrki og einn leikhópur hlýtur styrk vegna leiksmiðjuverkefnis. Höfundar sem hlutu styrk að þessu sinni til að þróa áfram leikhandrit sín eru Didda Jónsdóttir vegna handritsins Vonska, Einar Þór Gunnlaugsson vegna handritsins Pinsilon og Illugi Jökulsson vegna handritsins Þorlaug. Sviðslistahópurinn Kviss búmm bang hlaut styrk til að vinna leiksmiðjuverkefnið Get a Life!   Didda Jónsdóttir hefur vakið athygli fyrir ljóð sín, sem meðal annars hafa birst í ljóðabókinni Lastafans og lausar skrúfur. Hún...

Read More

Út í kött! – Dans og söngleikur fyrir börn

Lýðveldisleikhúsið sýnir um þessar mundir nýtt íslenskt leikverk fyrir börn. Þetta er dans og söngleikur sem ber nafnið Út í kött! og fjallar um tvo krakka og ferðalag þeirra um tölvu og ævintýraheima. Þessi ævintýraleikur er fyrir börn á öllum aldri og fullorðnir ættu líka að hafa gaman að þessu fjöruga verki. Tveir tólf ára krakkar fara með hlutverk í verkinu, þau Fannar Guðni Guðmundsson og Sóley Anna Benónýsdóttir, Ragnheiður Árnadóttir söngkona fer með hlutverk sögumanns, og leikararnir Finnbogi Þorkell Jónsson og Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir fara með hlutverk geimskrímsla og ýmsra ævintýrapersóna t. d. í útgáfum Roald Dahl af...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert