Jesús litli á Litla sviðinu
Borgarleikhúsið frumsýnir þann 21. nóvember trúðleikinn Jesús litli í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Við erum stödd í Palestínu á því herrans ári núll. Rómverjar hafa sölsað undir sig landið og Heródes er settur landsstjóri. Þegar spyrst út að frelsari muni fæðast í landinu kemur tilskipun frá honum um að myrða skuli öll sveinbörn, tveggja ára og yngri. Ljótt er það. Hver fæðir eiginlega barn inn í slíkt ástand? Öll vitum við að Jólaguðspjallið er einstaklega fallegt og hátíðlegt, en það er ekki síður átakanleg. Trúðarnir láta allt flakka, umbúðalaust. Þeim er ekkert óviðkomandi, þeir velta við öllum steinum, snúa öllu...
Read More


