Author: lensherra

Leikklúbburinn Krafla kaupir hús

Leikklúbburinn Krafla hélt í gær sinn fyrst stjórnarfund félagsins í „nýju“ félagsheimili sínu en leikklúbburinn festi nýverið kaup á félagsheimilinu Sæborg í Hrísey af fasteignum Akureyrarbæjar. Þar mun í framtíðinni verða stunduð blómleg leiklistarstarfsemi. Húsið er í frekar lélegu ástandi en Krafla hefur hug á að lagfæra það með tíð og tíma. Einnig verður hægt að leigja húsið fyrir ýmsa menningarstarfsemi.   Starfsemin hefst á því að halda átta vikna leiklistarnámskeið sem mun ljúka á uppsetningu á afrakstri námskeiðsins. Eru félagsmenn fullir bjartsýni og tilhlökkunar um að hefjast handa og horfa brosandi fram á veginn....

Read More

Stúdentaleikhúsið sýnir Gestasprett

Nú fer að líða að frumsýningu Stúdentaleikhússins á nýju frumsömdu verki sem kallast Gestasprettur en það ver verður frumsýnt laugardaginn 7.nóvember. Stúdentaleikhúsið kaus nýja stjórn í byrjun leikársins og réð sú stjórn Tinnu Lind Gunnarsdóttur leikkonu til okkar sem leikstjóra og Valgerði Rúnarsdóttur dansara sem umsjónarmann hreyfinga ogkóreógrafíu.  Hafist var við handa að skapa verk sem er samsett leikverk, algerlega í höndum leikhópsins, leikstjórans og kóreógrafers. Leikhópurinn samanstendur að þessu sinni af 18 hæfileikaríkumleikurum sem allir sýna sitt besta í þessari sýningu. Hin nýja stjórn stúdentaleikhússins samanstendur af ungu og efnilegu leikhúsáhugafólki þau eru Eygló Margrét Stefánsdóttir, Hanna Þórsteinsdóttir,...

Read More

Halaleikhópurinn tekst á við Svartfugl

Halaleikhópurinn er að hefja æfingar á Svartfugli eftir Gunnar Gunnarsson, Ágústa Skúladóttir mun leikstýra og gera nýja leikgerð í samvinnu við Þorgeir Tryggvason. Af því tilefni verður samhristingur miðvikudaginn 4. nóv. n.k. kl. 20.00 í Halanum, Hátúni 12. 105 Rvk. Ágústa og Toggi munu kynna leikritið og hvernig æfingartímabilinu verður háttað. Stefnt verður að frumsýningu um mánaðarmótin jan. – feb. 2010. Gott væri að allir sem hafa áhuga á að taka þátt í verkinu komi þetta kvöld, bæði leikara og annað starfsfólk leikhússins, leikmyndasmiðir, búningahönnuðir , ljósa og hljóðmenn. Upptalningin gæti verið endalaus enda eru handtökin við þetta ansi...

Read More

Bugsy Malone frumsýndur á laugardaginn

Laugardaginn 31. október frumsýnir unglingadeild Leikfélags Keflavíkur söngleikinn Bugsy Malone í leikstjórn Ingólfs Níelsar Árnasonar. Æfingar hafa staðið yfir undanfarnar sex vikur en alls taka um 60 unglingar þátt í þessari skemmtilegu sýningu. Leikfélagið setur á hverju ári upp tvær metnaðarfullar sýningar og þessi er þar engin undantekning. Mikil gróska er í öllu leiklistarstarfi hér á svæðinu og áhuginn mikill hjá unglingum. Það er einlæg ósk þeirra sem halda um stjórnartaumana hjá Leikfélagi Keflavíkur að bæjarbúar komi og sjái þennan öfluga unglingahóp takast á við þetta metnaðarfulla verkefni....

Read More

Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir Fjölskylduna

Föstudaginn 30. október verður Fjölskyldan eftir bandaríska leikskáldið Tracy Letts frumsýnt á stóra sviði Borgarleikhússins. Leikstjóri er Hilmir Snær Guðnason, þýðandi Sigurður Hróarsson og tónlist fyrir sýninguna samdi KK. Fjölskyldan hlaut þrenn eftirsóttustu leiklistarverðlaun Bandaríkjamanna: Drama Desk, Pulitzer og loks Tony-verðlaunin sem besta leikrit ársins 2008. Ættfaðirinn hverfur sporlaust og fjölskyldan safnast saman á óðalinu. Smám saman tekur hvarfið á sig skýrari mynd en um leið leita gömul leyndarmál og heitar ástríður upp á yfirborðið. Fjölskyldumeðlimir hafa hver sinn djöful að draga og við svo eldfimar aðstæður tekur atburðarásin óvænta stefnu.Safarík og stórbrotin fjölskyldusaga sem gagnrýnendur hafa kallað fyrstu...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert