Maríuhænan – Dansleikhús fyrir börn frá 9 mánaða aldri
Helgina 5. og 6. desember koma góðir gestir frá Noregi í heimsókn í Kúluna, barnaleikhús Þjóðleikhússins og sýna dansleikhús án orða fyrir allra yngstu leikhúsgestina, allt frá ungabörnum til fjögurra ára barna. Tvær sýningar eru hvorn daginn, kl. 13:30 og 15:00. Að auki eru forsýningar á miðvikudag og fimmtudag sem allir geta sótt. Hrekkjóttur álfur og óörugg maríuhæna villast inn í litlaust land. Fljótlega taka undarlegir hlutir að gerast, steinar og sveppir blikka, sólin og tunglið svífa yfir og landið breytist í ævintýraskóg. Allir þessir töfrar hafa mikil en ólík áhrif á álfinn og maríuhænuna en að lokum sameinast...
Read More


