Author: lensherra

Síðustu sýningar á Grandlendingasögu

Leikfélagið Peðið minnir á að síðustu sýningar á Grandlendingasögu verða sunnudaginn 20. desember klukkan 15 og 18. Höfundur er Jón Benjamín Einarsson og leikstjóri Guðjón Sigvaldason. Sýnt er á efri hæð Grand Rokk Smiðjustíg 6. Miðapantanir á staðnum, eða í síma 893 7353. Miðaverð 1000 krónur. Verkið fjallar í stuttu máli um hremmingar lítillar þjóðar og úrlausnir hennar til að koma sér út úr þeirri klípu sem þjóðin hefur komið sér í. Sagan gerist á ýmsum tímabilum í grandlensku sögunni og til eru kallaðir ýmsir litríkir karakterar til að finna lausnir á vandanum....

Read More

Söngleikurinn OLIVER! frumsýndur á annan í jólum

OLIVER! er einn vinsælasti söngleikur allra tíma og byggir hann á sígildri skáldsögu Charles Dickens um munaðarlausa drenginn Oliver Twist – sem dirfðist að biðja um meira að borða! Eins og áratuga hefð er fyrir í Þjóðleikhúsinu er frumsýning á annan í jólum og er í engu til sparað að gera uppfærsluna að glæsilegri fjölskyldusýningu. Alls eru 45 leikarar og börn á sviði, níu manna hljómsveit og að auki einn hundur! Sögusviðið er Lundúnaborg um miðja 19. öld og við sögu koma margar litríkar persónur; götustrákar, smáþjófar og stórþjófar, fátæklingar og ríkisbubbar, götudrósir, harðsvíruð illmenni og hjartahlý góðmenni. Söngleikurinn...

Read More

NEATA VI Application Form

The Icelandic Amateur Theater Association (BIL) will organise the VI Official NEATA Festival 2010 in co-operation with the Nordic Culture Fond, the Icelandic Ministry of Culture, Akureyri Town Government, The Cultural House HOF in Akureyri and the North European Amateur Theatre Alliance (NEATA).   We would like to welcome amateur theatre groups from all the NEATA countries and one group from the CEC. Invited are one group from each country: Denmark, Estonia, Faroe Islands, Finland, Latvia, Lithuania, Norway, Sweden, CEC and two groups from Iceland. Dates: Arrival of participants on Tuesday, August 10th, 2010Departure on Sunday, August 15th, 2010
...

Read More

Jólasveinar Grýlusynir í Arnardal

Kómedíuleikhúsið sýnir jólaleikritið sívinsæla Jólasveinar Grýlusynir í Arnardal helgina 19. og 20. desember. Sýnt verður bæði laugardag og sunnudag og hefjast sýningarnar kl.14. Miðasala er hafin í síma: 860 6062 einnig er hægt að panta miða með því að senda tölvupóst á arnardalur@arnardalur.is Miðaverð er það sama og í fyrra eða aðeins 1.900.kr. Þetta eru þriðju jólin í röð sem leikritið Jólasveinar Grýlusynir er sýnt en leikurinn hefur notið fádæma vinsælda og er þegar orðið partur af jólaundirbúningnum hér vestra. Gaman er að geta þess að verkið hefur verið sýnt um 40 sinnum. Jólasveinar Grýlusynir er sprellfjörugur leikur um...

Read More

Deleríum búbonis í Útvarpsleikhúsinu

Sunnudaginn 13. desember kl. 14. verður jóla- og bílnúmerarevía bræðranna frá Múla, þeirra Jónasar og Jóns Árnasonar, endurflutt í Útvarpsleikhúsinu á Rás 1. Delerium Búbónis gerist á aðventunni í Reykjavík á sjötta áratugnum á heimili Ægis Ó. Ægis forstjóra Gleðilegra jóla hf. og eiginkonu hans, frú Pálínu Ægis listunnanda og meningarfrömuðs. Forstjórinn ætlar að flytja inn jólatré og ávexti fyrir jólin, en óvænt atvik setur strik í reikninginn. Þá eru góð ráð dýr og fátt vænna í stöðunni en að fresta jólunm fram í mars! Þá kemur það sér vel að eiga góðan að á Alþingi, því mágur forstjórans...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert