Haustfundur Bandalags ísl. leikfélaga 13.–15. 11. 2009
Haldinn að Öngulsstöðum í Eyjafirði 13.–15. nóvember 2009.1. Þorgeir Tryggvason formaður Bandalagsins bauð viðstadda velkomna og setti fundinn. Hann kynnti fulltrúa Félags leikstjóra á Íslandi, Steinunni Knútsdóttur og Kolbrúnu Halldórsdóttur, sem komnar voru til að kynna handbók leikstjóra.2. Steinunn Knútsdóttir kynnti Handbók leikstjóra og baráttu leikstjórafélagsins fyrir leiðréttingu á ímynd leikstjóra á Íslandi. Hún lýsti yfir ánægju með viðleitni áhugaleikara til að mennta sitt fólk í leikstjórn í Bandalagsskólanum sem er í raun eina leikstjórnarnámið sem boðið er upp á á Íslandi. Hún lagði áherslu á að metnaður væri í fyrirrúmi í svona starfi, hver sem væri að leikstýra. Þetta snérist ekki bara um að það væri alltaf gaman, það þyrfti fleira að koma til til þess að fólk entist í að eyða frítíma sínum þetta ár eftir. Hún sagði að verið væri vinna í því að uppfæra upplýsingar um alla meðlimi FLÍ á vefsíðu þeirra og þar getur fólk kynnt sér feril og menntun þeirra.Kolbrún Halldórsdóttir kynnti einnig Handbók leikstjórans. Hún sagði handbókina vera hugsaða sem tékklisti fyrir áhugaleikfélög og þá leikstjóra sem vinna með þeim.Almenn ánægja var hjá viðstöddum með þetta framtak FLÍ. Steinunn sagði að FLÍ vildi með þessu stuðla að því að hver sem tekur að sér leikstjórn, ekki bara félagar þeirra, vinni sína vinnu af metnaði og kunnáttu.Þorgeir benti á í sambandi við að leiklistarstarf „eigi ekki bara að vera gaman“ sé málið kannski...
Read More


