Author: lensherra

Annáll Kómedíuleikhússins 2009

,,Nú árið er liðið í…” Jedúddý mía, hvað tíminn líður hratt, enn eitt árið að baki og óhætt að segja að það hafi verið sögulegt á landi voru. Árið hjá hinu Kómíska atvinnuleikhúsi á Ísafirði hefur líka verið viðburðaríkt fullt af ævintýrum og óvæntum uppákomum. Ekki var setið auðum höndum frekar en venjulega enda Kómedíuleikarinn verið ofvirkur og hefur heldur bætt í á liðnu ári. Verkefni Kómedíuleikhússins árið 2009 voru fjölbreytt og fjörug. Alls voru frumsýnd 5 ný íslensk verk, Act alone haldin sjötta árið í röð, ný þjóðleg hljóðbók kom út, Einstök sýning í Haukadal og Listamannaþing Vestfjarða...

Read More

Munaðarlaus frumsýnt í Norræna húsinu

Leikhópurinn Munaðarleysingjar frumsýnir nýtt verk eftir Dennis Kelly, eitt heitasta leikskáld Bretlandseyja föstudaginn 8. janúar í sal Norræna hússins. Verkið heitir Orphans en á íslensku nefnist það Munaðarlaus. Leikstjóri sýningarinnar er Vignir Rafn Valþórsson sem jafnframt þýðir verkið. Leikhópurinn samanstendur af ungum leikurum, Hannesi Óla Ágústssyni, Stefáni Benedikt Vilhelmssyni og Tinnu Lind Gunnarsdóttur,  sem  ákváðu að fjárfesta í réttinum á þessu nýja og vinsæla verki og setja það upp sjálf – en hópurinn hefur enga styrki hlotið fyrir uppsetningunni. Munaðarlaus er verk sem rannsakar heim sem fæst okkar þekkja og viljum ekki vita af en er beint fyrir utan...

Read More

Gott kvöld tilnefnt til leikskáldaverðlauna Norðurlanda

Valnefnd á vegum Leiklistarsambands Íslands hefur tilnefnt barnaleikritið Gott kvöld eftir Áslaugu Jónsdóttur til leikskáldaverðlauna Norðurlanda 2010. Tilkynnt var hver hlaut tilnefninguna í Kúlunni, barnaleiksviði Þjóðleikhússins að Lindargötu 7, þriðjudaginn 29. desember. Í valnefndinni sátu Silja Aðalsteinsdóttir, útgáfustjóri, Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, rithöfundur og tónlistarmaður og Jórunn Sigurðardóttir, dagskrárgerðarmaður. Alls bárust 7 tilnefningar um barnaleikverk. Þess má geta að Áslaug hlaut Norrænu barnabókaverðlaunin fyrir bókina sem leikritið er gert upp úr. Norrænu leiklistarsamböndin standa að Norrænu leikskáldaverðlaununum sem veitt eru annað hvert ár í tengslum við Norræna leiklistardaga. Að þessu sinni var ákveðið að verðlauna leikskáld fyrir barnaleikrit þar sem...

Read More

Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum

Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum vegna fimmtu úthlutunar úr sjóðnum. Umsóknarfrestur er til og með 11. janúar 2010, en úthlutað verður í febrúar. Leikritunarsjóðurinn Prologos hefur nú starfað við Þjóðleikhúsið í eitt og hálft ár og er honum ætlað að efla íslenska leikritun og hvetja til nýsköpunar í leikhúsinu. Óhætt er að segja að sjóðurinn hafi boðið leikhúsfólki mikilsverð tækifæri til að vinna að list sinni, en nú þegar hafa alls tíu leikskáld og sex leiksmiðjuverkefni hlotið styrk úr sjóðnum. Úthlutað er úr sjóðnum þrisvar sinnum á hverju leikári en næsti skilafrestur umsókna er til og með 11. janúar...

Read More

Antígóna í Útvarpsleikhúsinu þriðja í jólum

Á þriðja dag jóla, sunnudaginn 27. desember kl. 14, verður harmleikurinn Antígóna eftir Sófókles fluttur í nýrri uppfærslu Útvarpsleikhússins á Rás 1, í samvinnu við Listaháskóla Íslands. Leikstjóri er Sigurður Skúlason og um hljóðstjórn sá Georg Magnússon. Með hlutverk Antígónu fer Sólveig Arnarsdóttir og Kreon, konung Þebu, leikur Jóhann Sigurðarsson. Leikritið er talið vera skrifað 422 f.k. og er nú flutt til að heiðra minningu þýðandans, Helga Hálfdanarsonar, sem lést fyrr á árinu. Bræður Antígónu, þeir Eteókles og Pólíneikes, hafa borist á banaspjótum sem hermenn andstæðra fylkinga í stríði um borgina Þebu. Móðurbróðir þeirra, Kreon, hefur tekið við völdum...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert