Lokasýning á Ástardrykknum á laugardaginn
Uppfærsla Íslensku óperunnar á Ástardrykknum eftir Donizetti hlaut afbragðsgóðan dóm í heilsíðuumfjöllun í einu virtasta óperutímariti heims, Opera Now, í janúar/febrúar-heftinu árið 2010. Gagnrýnandinn Ingrid Gäfvert kom hingað til lands á frumsýninguna og segir í upphafi greinar sinnar: „Kannski eru erfiðir tímar á Íslandi en opnunarsýning vetrarins hjá þjóðaróperunni var einstaklega skemmtilegur viðburður.“ Gäfvert fer lofsamlegum orðum um alla þætti sviðsetningarinnar, einkum leikstjórn Ágústu Skúladóttur og hljómsveitarstjórn Daníels Bjarnasonar, og hrósar þó sérstaklega íslensku söngvurunum í hástert: „Garðar Thór Cortes var fullkominn Nemorino, unglegur og hjartanlega einlægur á sviðinu, með ítalskan blæ sem var sérstaklega fallegur í mjúkum,...
Read More


