Author: lensherra

Leiklestraröð LA – Einleikir

Leikfélag Akureyrar ýtir nú úr vör leiklestraröð, þar sem leikarar hjá LA munu leiklesa ýmis leikverk og er hugmyndin er að gera þetta að föstum lið, eitt kvöld í mánuði fram í júní. Leiklestrarnir munu hafa mismunandi yfirskrift eða þema og verða ýmist leiklesin heil verk eða kaflar úr verkum. Nemendur í Tónlistarskólanum á Akureyri munu koma fram og leika tónlist í anda verkanna sem leiklesin verða. Fyrsti leiklesturinn verður miðvikudaginn 3. febrúar í Samkomuhúsinu og hefst kl. 21.00. Þá verða á dagskrá brot úr fjórum einleikjum: Þráinn Karlsson – Gamli maðurinn og kvenmannsleysið eftir Böðvar GuðmundssonBjörn Ingi Hilmarsson...

Read More

Nýtt leikskáld hjá Leikfélagi Reykjavíkur

Leikritunarsjóður LR eflir fjölbreytni og nýsköpun í íslenskri leikritun. Jón Gnarr leikari, skáld og þúsundþjalasmiður, hefur verið valinn leikskáld Borgarleikhússins árið 2010 úr stórum hópi umsækjanda. Jón mun starfa í Borgarleikhúsinu næsta ár þar sem hann mun sinna ritstörfum. Markmið með ráðningu leikskálds á vegum Leikritunarsjóðsins er að laða hæfileikaríkt fólk að leikhúsinu, kynna því leikhúsformið og efla þannig íslenska leikritun. Stefnt er að því að Jón riti leikverk, eitt eða fleiri, á tímabilinu með uppsetningu í Borgarleikhúsinu í huga. Hann verður hluti af starfsliði hússins allt tímabilið og fær aðgang að allri starfsemi leikhússins. Leikritunarsjóður Leikfélags Reykjavíkur réð...

Read More

JANÚAR – Örverk um áráttur, kenndir og kenjar

Áhugaleikhús atvinnumanna frumsýnir JANÚAR, Örverk um áráttur, kenndir og kenjar 28. janúar kl.12.30. Frumsýningin sem fer fram í nýju Gjörningarými Hugmyndahúss háskólanna, ÚGERÐINNI, Grandagarði 16, 2. hæð, verður einnig send beint út í netleikhúsinu Herbergi 408. JANÚAR er fyrsta verkið í 12 verka röð, Örverk um áráttur, kenndir, sem hvert um sig tekur á áráttum, kenndum og kenjum sem hafa áhrif á mannlega tivist í Reykjavík 2010. Hvert verk tekur um 5-10 mín. í flutningi og verða verkin frumsýnd kl. 12.30 síðasta fimmtudag í hverjum mánuði allt árið 2010 og sýnd í beinni útsendingu á veraldarvefnum . Viðfang verkanna ræðst...

Read More

Guð í vélinni

HugleikurHannyrðir og hagleiksmennLeikstjóri: Guðmundur Erlingsson Í ágætu húsnæði sínu (en illa merktu) við Eyjarslóðina í Reykjavík hefur Hugleikur nú boðið til sýningar á Hannyrðum og hagleiksmönnum eftir Sigurð H. Pálsson. Fyrir utan stórar uppfærslur einu sinni til tvisvar á vetri er leikfélagið Hugleikur frægt fyrir frumsamin stuttverk sín, einþáttunga og örleikrit, sem hafa verið sýnd við nokkrar vinsældir. Mest af stuttverkunum hefur verið sýnt í Þjóðleikhúskjallaranum og Kaffileikhúsinu en einnig á Eyjarslóðinn upp á síðkastið. Einn af öðrum hafa þrír hannyrðaþættir Sigurðar H. Pálssonar í leikstjórn Guðmundar Erlingssonar orðið til sem liður í þessum dagskrám en nú er bætt...

Read More

Tilbrigði við stef í Iðnó

Þú situr ein(n) á kaffihúsi á aðfangadag, ætlar að taka lífinu með ró og safna kröftum áður en hátíðina ber að garði. Inn af götunni gengur sú manneskja sem þú áttir síst von á og vildir ekki undir neinum kringumstæðum hitta. Hvað gerir þú? Hvað gerir hún? Hvernig mun fortíðin ykkar hafa áhrif á þennan annars venjulega aðfangadag? Höfundurinn Þór Rögnvaldsson lætur nú enn og aftur heyra í sér með nýju athyglisverðu leikriti. Eftir að hafa sigrað leikritasamkeppni af tilefni hundrað ára afmæli Leikfélags Reykjavíkur hefur hann ekki setið auðum höndum og sendir nú frá sér verk sem hefst...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert