Author: lensherra

Lab Loki í samstarfi við Hafnarfjarðarleikhúsið sýnir Ufsagrýlur

Núna á föstudaginn 5. febrúar verður frumsýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu nýtt verk eftir skáldið Sjón (Sigurjón Birgir Sigurðsson). Þessa hefur verið beðið í nokkurn tíma að Sjón skrifi leikverk í fullri lengd, því ekki aðeins hefur Sjón verið fyrirferða mikill á ritvellinum heldur er óhætt að fullyrða  að hann sé einn áhrifamesti listamaður sinnar kynslóðar. Hann hefur sent frá sér fjölda ritverka, sönglagatexta, ljóðabækur, smásögur, skáldsögur og barnabækur, en nú kemur hann sem sagt fram með sitt fyrsta leikrit í fullri lengd, sérstaklega samið fyrir Lab Loka. Ufsagrýlur  er verk sem tekur á málefnum líðandi stundar, en eins og við...

Read More

Skoppa og Skrítla í Borgarleikhúsinu

Nýtt íslenskt barnaleikriti, Skoppa og Skrítla á tímaflakki, verður frumsýnt laugardaginn 6. febrúar í Borgarleikhúsinu. Þetta er þriðja leikrit þeirra vinkvenna sem fer á leiksvið  Fyrri tvær leiksýningarnar fengu fádæma aðsókn og voru báðar tilnefndar til Grímunnar, íslensku leiklistarverðlaunanna. Síðasta verkefni þeirra vinkvenna var kvikmynd sem sló rækilega í gegn á síðasta ári og sér ekki fyrir endann á því ævintýri. Með helstu hlutverk fara Linda Ásgeirsdóttir, Hrefna Hallgrímsdóttir, Viktor Már Bjarnason og Vigdís Gunnarsdóttir. Þrjú börn taka einnig þátt í sýningunni. Í þessu leikverki, sem er það stærsta til þessa, fá þær Skoppa og Skrítla senda ósk í...

Read More

Aukasýningar á Umbúðalaust

Ákveðið hefur verið að hafa tvær aukasýningar á leiksýningunni Umbúðalaust sem Leikfélag Kópavogs hefur sýnt að undanförnu. Sýningarnar verða sunnudag 7. febrúar og mánudag 8. febrúar kl. 20.00. Leiksýningin Umbúðalaust sem er samin af leikhópnum og leikstjóranum Vigdísi Jakobsdóttur hefur fengið mjög góðar viðtökur og þykir fersk og óvenjuleg. Óræðar persónur á óljósum stað eru knúnar til að taka málin í sínar hendur þegar óvænt atvik ber að garði. Saman og hvert í sínu lagi komast þau að því að þáttaskil marka ekki endilega sögulok – og þráðurinn sem þau fylgdu í byrjun er ekki endilega haldreipið sem þarf...

Read More

Halaleikhópurinn frumsýnir Svartfugl

Föstudaginn 5. febrúar frumsýnir Halaleikhópurinn Svartfugl, verk byggt á samnefndu ritverki Gunnars Gunnarssonar. Um er að ræða nýja leikgerð eftir þau Ágústu Skúladóttur leikstjóra og Þorgeir Tryggvason í samvinnu við leikhópinn. Verkið fjallar um eitt þekktasta sakamál Íslandssögunnar, morðin á Sjöundá og réttarhöldin yfir Bjarna Bjarnasyni og Steinunni Sveinsdóttur. Þeim var gefið að sök að hafa lagt á ráðin og banað mökum sínum. Tónlist og áhrifshljóð í verkinu eru samin af Einari Andréssyni og Einari Melax og er í lifandi flutningi spilað er á gömbu, steinaspil, ferðaharmoníum og borðhörpu. SýningarFrumsýning – föstudaginn 5. feb. kl. 20.00 (Uppselt)2. sýning –...

Read More

Allra síðustu sýningar í Reykjavík á Munaðarlaus

Leikfélag Akureyrar hefur boðið leiksýningunni Munaðarlaus að vera Óvissusýning vetrarins hjá LA. Sýningin Munaðarlaus hefur heldur betur slegið í gegn á undanförnum vikum þar sem hún hefur verið sýnd í Norræna húsinu við glimrandi viðtökur og hefur verið fullt á nær allar sýningar. Leikhópurinn hefur ákveðið að nýta ferðina og sýna sýninguna einnig á Vopnafirði og Egilsstöðum. Munaðarlaus verður sýnd í Rýminu hjá Leikfélagi Akureyrar og miðasala er í síma 4 600 200 kl. 13-17 og á www.leikfelag.is. Munaðarlaus er verk sem rannsakar heim sem fæst okkar þekkja og við viljum ekki vita af en er beint fyrir utan...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert