Author: lensherra

Aðalfundur 2010

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn að Sveinbjarnargerði í Eyjafirði dagana 1. og 2. maí 2010. Leiklistarhátíð NEATA, sem haldin verður á Akureyri 10.–15. ágúst, verður undirbúin að kvöldi 30. apríl. Dagskrá aðalfundar er í lögum Bandalagsins.Samhliða aðalfundi fer fram sýning á leikskrám og veggspjöldum leikársins 2009-2010. Val Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugasýningu leikársins verður að venju kynnt á hátíðakvöldverðinum.   Fundurinn verður settur laugardagsmorguninn 1. maí kl. 9.00 og honum slitið um hádegisbil sunnudaginn 2. maí. Fundargestir eru boðnir  velkomnir seinnipart föstudagsins 30. apríl en þá um kvöldið er fyrirhugað að skoða Menningarhúsið Hof á Akureyri og ræða um...

Read More

Fréttir frá Leikfélagi Blönduóss

Leikfélag Blönduóss frumsýndi gamanleikinn Á svið eftir Rick Abbot í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar í Félagsheimilinu á Blönduósi föstudagskvöldið 26. mars sl. að viðstöddum fjölda áhorfenda. Ekki var annað að heyra en leikhúsgestir hafi skemmt sér hið besta og fögnuðu þeir leikurum, aðstoðarfólki og leikstjóra með miklu lófaklappi í lok sýningar. Áætlaðar eru fimm sýningar um páskana og eru þær sem hér segir: þriðjudaginn 30. mars kl. 20.00miðvikudaginn 31. mars kl.20.00skírdag 1. apríl kl. 16.00laugardaginn 3. apríl kl. 20.00annan páskadag 5. apríl kl. 16.00 –...

Read More

Alþjóðlegi leiklistardagurinn er á morgun!

Ávörp á Alþjóðlega leiklistardeginum 27. mars Leiklistarsamband Íslands hefur ávallt fengið íslenskan leikhúslistamann til að semja sérstakt ávarp í tilefni Alþjóðlega leiklistardagsins. Hefur sú hefð skapast að það hafi verið flutt af höfundi í útvarpi þann dag, sem og af stóra sviði Þjóðleikhússins fyrir sýningu. Þá hafa leikhúslistamenn um allt land stigið fram fyrir tjöld leikhúsa sinna og flutt ávarpið íslenska þetta kvöld. Ávarpið semur að þessu sinni Ragnheiður Skúladóttir, deildarforseti leiklistar- og dansdeildar Listaháskóla Íslands. Frá árinu 1962 hefur Alþjóðlegi leiklistardagurinn verið haldinn hátíðlegur um allan heim. Þá hefur heimskunnur leikhúslistamaður verið fenginn til að semja ávarp í...

Read More

Leikhúsveisla á Akureyri um páskana

Það verður sannkölluð leikhúsveisla um páskana hjá LA. Eftir skemmtilegan dag í brekkum Hlíðarfjalls eða rólegan dag í fögrum miðbæ Akureyrar, er tilvalið að bregða sér í leikhús! Leikhúsunnendur geta valið um þrjár sýningar, 39 þrep, Horn á höfði og Fúlar á móti auk þess sem boðið verður upp á þriðja leiklesturinn í Leiklestraröð LA sem í þetta sinn er Blóðbrúðkaup eftir Garcia Lorca. Á fjölum Samkomuhússins verður hinn geysivinsæli gamanleikur 39 þrep sem hefur nú verið sýndur fyrir fullu húsi frá því í janúar sl. Þar takast fjórir hugrakkir leikarar á við 139 hlutverk í einhverjum hröðustu, mest...

Read More

Leikhúspáskar á Ísafirði

Það verður líf og fjör í Ísafjarðarbæ um páskana einsog verið hefur í gegnum áratugina. Fjölmargt skemmtilegt verður í boði allt frá rokki til skíðalista. Í leikhúsinu verður líka allt í botni og stuði. Kómedíuleikhúsið í samstarfi við Litla leikklúbbinn á Ísafirði og Leikdeild Höfrungs á Þingeyri bjóða uppá sérstaka leikhúspáska. Boðið verður uppá þrjár sýningar sem allar hafa fengið góðar viðtökur áhorfenda og hafa verið sýndar við miklar vinsældir þennan vestfirska leikúsvetur. Leikurinn hefst miðvikudaginn 31. mars með sýningu á Heilsugæslunni í Arndardal. Síðan tekur hver sýningin við af annarri en rétt er að geta þess að miðasala...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert