Áhugaleikhús atvinnumanna sýnir Mars
Á fimmtudaginn 25.mars frumsýnir Áhugaleikhús atvinnumanna þriðja örverk sitt um árattur, kenndir og kenjar. Verkið, sem ber heitið Mars, er 10 mínútna hugleiðing um líðandi stund og er sýnt í beinni útsendingu á www.herbergi408.is, frá Útgerð, Hugmyndahúss háskólanna sem er nýtt gjörningarými við Grandagarð 16. Sýningin er hluti af 12 verka röð sem mynda eina heild og verða sýnd í einu lagi í lok desember og verður þá einskonar annáll ársins 2010. Listamönnum Áhugaleikhúss atvinnumanna hefur nýverið verið úthlutað listamannalaunum úr launasjóði sviðslistamanna vegna verkefna sinna en nú í vor mun leikhúsið endurflytja Ódauðlegt verk um stríð og frið....
Read More


