Author: lensherra

Aukasýning á Horn á höfði á Akureyri

Laugardaginn 10. apríl kl. 14 verður aukasýning á barnaleikritinu Horn á höfði sem GRAL sýndi við góða aðsókn um Páskana. Leikritið er sýnt í Rýminu. Verkið var frumsýnt sl. haust í Grindavík við frábærar undirtektir. Áhorfendur og gagnrýnendur voru sammála um að þetta væri eitt skemmtilegasta barnaleikrit ársins. Tónlistin er eftir Akureyringinn Villa Naglbít. Horn á höfði  fjallar um tvo vini, Björn og Jórunni. Björn litli vaknar einn morguninn með horn á höfðinu. Hann fær Jórunni vinkonu sína til að hjálpa sér að komast að ástæðunni. Í leit sinni að sannleikanum renna þau inn í æsilega atburðarrás á mörkum ævintýris og veruleika...

Read More

Hugleikur í Kjallaraheimsókn

Hugleikur snýr aftur í Þjóðleikhúskjallarann með stuttverkadagskrá sem ber yfirskriftina Kjallaraheimsókn. Dagskráin verður frumsýnd mánudaginn 12. apríl og endurtekin þriðjudaginn 13. apríl kl. 20.00 bæði kvöld, en alls verða sýnd fimm ný stuttverk, Heimsókn og Í sjálfheldu eftir Árna Friðriksson, Stjörnur og norðurljós eftir Hjörvar Pétursson, Stuldur eftir Sigurð H. Pálsson og Sælla er að gefa eftir Ástu Gísladóttur. Aðeins verða þessar tvær sýningar, miðaverð er 1500 kr. Verkin sem sýnd verða með smá umsögn um innihaldið: Heimsókn eftir Árna Friðriksson í leikstjórn Ástu Gísladóttur. Leikarar eru Júlía Hannam og Jóhann Davíð Snorrason. „Þetta eru alveg meiriháttar krossgátur í...

Read More

Síðustu sýningar á Birtíngi á Selfossi

Nú fer sýningum að ljúka á uppsetningu Leikfélags Selfoss á leiksýningunni Birtíngi sem byggð er á samnefndri sögu eftir franska heimspekinginn Voltaire, í snilldarlegri þýðingu Halldórs Laxness. Aðeins eru 4 sýningar eftir svo nú fer hver að verða síðastur að sjá þessa marglofuðu sýningu. Sýningunni hlotnaðist sá heiður að vera valinn af valnefnd á NEATA-hátíðina á Akureyri 10. – 15 ágúst 2010. NEATA stendur fyrir Norður-Evrópska áhugaleikhúsráðið og að þeim standa öll Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin. Alls verða 12 sýningar á hátíðinni frá 10 löndum, 3 frá Íslandi. Sagan er í senn þroskasaga hins unga Birtíngs en um leið samfélagsádeila síns...

Read More

Emil í Kattholti slær í gegn í Hveragerði

Uppselt var á allar sýningar Leikfélags Hveragerðis á barnaleikritinu Emil í Kattholti eftir Astrid Lindgren í mars og um páskana, og þurfti að vísa fólki frá í sumum tilvikum. Sýningar halda áfram á fullu í apríl og er þegar að verða uppselt á sumar sýningarnar. Sunnlendingar ættu því ekki að láta þessa sýningu fram hjá sér fara. Sýningar í apríl eru sem hér segir:9. apríl föstudagur kl. 18.00 11. apríl sunnudagur kl. 14.0016. apríl föstudagur kl. 18.0017. apríl laugardagur kl. 14.00 18. apríl sunnudagur kl. 14.00Almennt verð (5 ára og eldri): 1700 kr.Hópar 15+: 1500 kr. Börn 4 ára...

Read More

Margverðlaunuð uppsetning Koršunovas til Íslands

Á Listahátíð í Reykjavík  í vor býðst einstakt tækifæri til að sjá rómuðustu ástarsögu allra tíma, Rómeó og Júlíu eftir William Shakespeare í stórbrotinni uppfærslu litháíska leikstjórans Oskaras Koršunovas á Stóra sviði Borgarleikhússins. Þessi margverðlaunaða uppsetning hefur ferðast um allan heim síðustu tíu ár og kemur til Íslands í samvinnu Borgarleikhússins og Listahátíðar í Reykjavík. Um sannkallaðan hvalreka er ræða fyrir leikhúsáhugafólk því túlkun Koršunovas er einstök á þessu verki. Oskaras Koršunovas er einn fremsti leikstjóri Evrópu í dag og stýrir hann Borgarleikhúsi Vilnius. Koršunovas hefur sett upp leikrit víðsvegar um heiminn en undanfarin ár hefur hann reynt að einbeitt sér...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert