Málþing um sviðslistir á Barnamenningarhátíð 2010
Í tilefni af yfirstandandi Barnamenningarhátíð boða Leiklistarsamband Íslands og Barnamenningarhátíð í Reykjavík 2010 til málþingsins Allir á svið?, laugardaginn 24. apríl klukkan 10–14. Málþingið er einhvers konar stefnumót sviðslista- og skólafólks og er í formi nokkurra örstuttra erinda sem öll varpa ljósi á stöðu sviðslista í íslenskum skólum og barnamenningu. Hverju erindi lýkur á spurningu til fundarins. Það verður haldið í Víkinni-Sjóminjasafninu Grandagarði 8 Reykjavík. Ættu öll íslensk börn að fá tækifæri til að stunda og njóta sviðslista sem hluta af sinni skólagöngu? Er hugsanlegt að aukin áhersla á greinar eins og leiklist og dans geti svarað kalli samtímans...
Read More


