Author: lensherra

Leiklistarfélag Seltjarnarness frumsýnir Draugar og forynjur

Leiklistarfélag Seltjarnarness hefur í vetur unnið að uppsetningu á leikverkinu Draugar og forynjur og sunnudaginn 25. apríl kl. 14.00 er komið að frumsýningu og þá um kvöldið kl. 20.00 verður 2. sýning. Verkið er hvort tveggja í senn frumsamið í samvinnu leikfélaga og leikstjóra Bjarna Ingvarsson og byggt á ýmsum þjóðsögum. Sýnt er í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi. Verkið hefst á fundi í Drauga og forynjufélaginu í anda fortíðar með margbreytilegar uppákomur þar sem hinar ýmsu kynjaverur koma við sögu. Þá er brugðið upp myndum af því sem koma skal og færist leikurinn síðan heim að Gili þar sem gömul...

Read More

Tvö verk frumsýnd í Norðurpólnum um helgina

Það verður mikið um að vera í leikhúsinu Norðurpólnum á Seltjarnarnesi um helgina því þar verða tvær leiksýningar frumsýndar. Laugardaginn 24. apríl frumsýnir leikhópurinn Börn Loka Glerlaufin eftir Philip Ridley í leikstjórn Bjartmars Þórðarsonar og sunnudaginn 25. apríl verður svo leikritið Tveir fátækir pólskumælandi Rúmenar eftir Dorota Maslowska í leikstjórn Heiðars Sumarliðsonar frumsýnt. Norðurpóllinn er að Sefgörðum 3, nálægt Gróttu. Glerlaufin er öflugt breskt nútímaleikrit eftir hinn margrómaða höfund Philip Ridley. Hann hefur skrifað fjölda leikrita og hlotið fjölmörg verðlaun fyrir skrif sín.Verkið fjallar um tvo ólíka bræður, Steven og Barry. Steven fetar beinu brautina og á hið fullkomna...

Read More

Íslandsklukkan frumsýnd á 60 ára afmæli Þjóðleikhússins

Þjóðleikhúsið verður 60 ára á fimmtudaginn 22. apríl, sumardaginn fyrsta, og þá um kvöldið verður jafnframt frumsýning á Íslandsklukkunni í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Íslandsklukkan var ein af þremur opnunarsýningum Þjóðleikhússins og verkið hefur, jafnt á bók sem á sviði, notið gífurlegra vinsælda hjá íslensku þjóðinni. Svipmiklar persónur þess, á borð við Jón Hreggviðsson (Ingvar E Sigurðsson), Snæfríði Íslandssól (Lilja Nótt Þórarinsdóttir) og Arnas Arneus (Björn Hlynur Haraldsson), hafa eignast sinn vissa stað í hjarta ótal Íslendinga af ólíkum kynslóðum. Í því þjóðfélagslega umróti sem við lifum nú, á þetta stórvirki um tilvistarspurningar sem lítil þjóð stendur frammi fyrir, brýnt...

Read More

Menningarlandið 2010 – Mótun menningarstefnu

Mennta- og menningarmálaráðuneyti boðar til menningarþings undir yfirskriftinni Menningarlandið 2010 – Mótun menningarstefnu, á Hótel Loftleiðum, föstudaginn 30. apríl 2010 kl. 12:30-16:45. Á þinginu verður kynnt greining á núverandi menningarstefnu á sviði lista, menningararfs, safna, fjölmiðla og æskulýðs- og íþróttamála. Tilgangur þingsins er að fá viðbrögð við fyrirliggjandi greiningu og að fá fram hugmyndir sem gætu nýst í áframhaldandi vinnu við mótun menningarstefnu til framtíðar. Einnig verður kynnt sóknaráætlun stjórnvalda í menningarmálum og nýleg menningarneyslukönnun.Dagskrá12.30 Skráning13:00 Setning; Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra13.10 Framsöguerindi:- Kynning á skýrslu um núverandi menningarstefnu. Dr. Haukur F. Hannesson listrekstrarfræðingur- Kynning á menningarmálum í Sóknaráætlun...

Read More

Fólkið í blokkinni frumsýnt á Sauðárkróki

Á Sauðárkróki hafa menn fundið sér áhugamál þar sem fjölskyldan vinnur saman að uppbyggilegum verkefnum. Þetta áhugamál er leiklistin. Hvort sem um tilviljun er að ræða eða ekki, þá vill svo skemmtilega til að um þessar mundir eru bræður og systur, mæðgin og feðgin, mæðgur og feðgar að setja upp söngleikinn Fólkið í blokkinni með Leikfélagi Sauðárkróks. Þau eru reyndar ekki alveg ein því um 40 manns hamast við að koma verkinu á koppinn undir leikstjórn Jóns Stefáns Kristjánssonar svo allt verði tilbúið fyrir frumsýningu sunnudaginn 25. apríl. Ekki eru nema 2 ár síðan söngleikurinn Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert