Menningarlandið 2010 – Mótun menningarstefnu
Mennta- og menningarmálaráðuneyti boðar til menningarþings undir yfirskriftinni Menningarlandið 2010 – Mótun menningarstefnu, á Hótel Loftleiðum, föstudaginn 30. apríl 2010 kl. 12:30-16:45. Á þinginu verður kynnt greining á núverandi menningarstefnu á sviði lista, menningararfs, safna, fjölmiðla og æskulýðs- og íþróttamála. Tilgangur þingsins er að fá viðbrögð við fyrirliggjandi greiningu og að fá fram hugmyndir sem gætu nýst í áframhaldandi vinnu við mótun menningarstefnu til framtíðar. Einnig verður kynnt sóknaráætlun stjórnvalda í menningarmálum og nýleg menningarneyslukönnun.Dagskrá12.30 Skráning13:00 Setning; Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra13.10 Framsöguerindi:- Kynning á skýrslu um núverandi menningarstefnu. Dr. Haukur F. Hannesson listrekstrarfræðingur- Kynning á menningarmálum í Sóknaráætlun...
Read More


