Author: lensherra

Talsverðar breytingar á stjórn Bandalagsins

Á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga, sem haldinn var að Sveinbjarnargerði í Eyjafirði, sl. helgi, urðu talsverðar breytingar á stjórn Bandalagsins. Tveir stjórnarmenn, þeir Ingólfur Þórsson, Freyvangsleikhúsinu, og Hörður Sigurðarson, Leikfélagi Kópavogs, gáfu ekki kost á sér til endurkjörs og Sigríður Lára Sigurjónsdóttir, Hugleik, ákvað að hætta í stjórn eftir árs setu þar. Í stað þeirra voru kosin í stjórn, Ólöf Þórðardóttir, Leikfélagi Mosfellssveitar, Ása Hildur Guðjónsdóttir, Halaleikhópnum og Halldór Sigurgeirsson, Freyvangsleikhúsinu. Einnig var Guðfinna Gunnarsdóttir, Leikfélagi Selfoss, endurkjörin. Nýr inn í varastjórn kom Bernharð Arnarsson, Leikfélagi Hörgdæla en Halla Rún Tryggvadóttir, Leikfélagi Húsavíkur og Hjalti Stefán Kristjánsson, Hugleik, voru...

Read More

Rokk athyglisverðasta áhugaleiksýningin

Sýning Hugleiks, Rokk var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins af valnefnd Þjóðleikhússins. Þjóðleikhússtjóri, Tinna Gunnlaugsdóttir, tilkynnti valið á nýafstöðnum aðalfundi BÍL sem haldinn var að Sveinbjarnargerði í Eyjafirði. Miklar breytingar urðu á stjórn á fundinum en nánar verður sagt frá honum og vali athyglisverðustu sýningarinnar síðar. Hér til hliðar má sjá Þjóðleikhússtjóra afhenda Þorgeiri Tryggvasyni sem leikstýrði Rokki viðurkenningarskjal vegna valsins.  Einnig má sjá nokkrar svipmyndir frá aðalfundi...

Read More

Sólheimaleikhúsið sýnir í Þjóðleikhúsinu

Nú eru einungis tvær sýningar eftir hjá Sólheimaleikhúsinu á leikritinu, Þar sem að sólin á heima! eftir Eddu Björgvinsdóttur. Leikritið er skrifað sérstaklega í tilefni af 80 ára afmæli Sólheima og fjallar um ævi Sesselju Hreindísar Sigmundsdóttur stofnanda Sólheima. Þaulreyndir leikarar Sólheimaleikhússins takast á við mörg ólík hlutverk og syngja að auki undurfalleg lög Péturs H. Péturssonar sem hann samdi fyrir leikritið.  Heiðursgestur sýningarinnar er hin ástsæla Diddú. Hátíðarsýning miðvikudaginn 5. maí í Þjóðleikhúsinu. Síðustu sýningar í Sólheimaleikhúsinu verða 1. og 2. maí kl. 15:00. Miðasala í síma: 847-5323. Nánari upplýsingar á www.solheimar.is Hátíðarsýning miðvikudaginn 5. maí í Þjóðleikhúsinu...

Read More

39 þrep í Íslensku óperunni í maí

Leikfélag Akureyrar hefur ákveðið að sýna gamanleikinn 39 ÞREP í Íslensku óperunni í maí vegna mikillar eftirspurnar, en uppselt var á nær 50 sýningar fyrir norðan í vetur. Í þessum óborganlega gamanleik fara fjórir leikarar á kostum í 139 hlutverkum. Verkið er samið af Patrick Barlow en byggir á hinni frægu kvikmynd Hitchcocks, The 39 Steps. Leikstjóri sýningarinnar er María Sigurðardóttir en hún leikstýrði einnig sýningunum Sex í sveit og Fló á skinni. Sýningar í Íslensku óperunni verða föstudaginn 7. maí, laugardaginn 8. maí og sunnudaginn 9. maí kl. 20 og er hægt að kaupa miða í miðasölu Íslensku...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert