Author: lensherra

Rokk athyglisverðasta áhugaleiksýningin

Sýning Hugleiks, Rokk var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins af valnefnd Þjóðleikhússins. Þjóðleikhússtjóri, Tinna Gunnlaugsdóttir, tilkynnti valið á nýafstöðnum aðalfundi BÍL sem haldinn var að Sveinbjarnargerði í Eyjafirði. Miklar breytingar urðu á stjórn á fundinum en nánar verður sagt frá honum og vali athyglisverðustu sýningarinnar síðar. Hér til hliðar má sjá Þjóðleikhússtjóra afhenda Þorgeiri Tryggvasyni sem leikstýrði Rokki viðurkenningarskjal vegna valsins.  Einnig má sjá nokkrar svipmyndir frá aðalfundi...

Read More

Sólheimaleikhúsið sýnir í Þjóðleikhúsinu

Nú eru einungis tvær sýningar eftir hjá Sólheimaleikhúsinu á leikritinu, Þar sem að sólin á heima! eftir Eddu Björgvinsdóttur. Leikritið er skrifað sérstaklega í tilefni af 80 ára afmæli Sólheima og fjallar um ævi Sesselju Hreindísar Sigmundsdóttur stofnanda Sólheima. Þaulreyndir leikarar Sólheimaleikhússins takast á við mörg ólík hlutverk og syngja að auki undurfalleg lög Péturs H. Péturssonar sem hann samdi fyrir leikritið.  Heiðursgestur sýningarinnar er hin ástsæla Diddú. Hátíðarsýning miðvikudaginn 5. maí í Þjóðleikhúsinu. Síðustu sýningar í Sólheimaleikhúsinu verða 1. og 2. maí kl. 15:00. Miðasala í síma: 847-5323. Nánari upplýsingar á www.solheimar.is Hátíðarsýning miðvikudaginn 5. maí í Þjóðleikhúsinu...

Read More

39 þrep í Íslensku óperunni í maí

Leikfélag Akureyrar hefur ákveðið að sýna gamanleikinn 39 ÞREP í Íslensku óperunni í maí vegna mikillar eftirspurnar, en uppselt var á nær 50 sýningar fyrir norðan í vetur. Í þessum óborganlega gamanleik fara fjórir leikarar á kostum í 139 hlutverkum. Verkið er samið af Patrick Barlow en byggir á hinni frægu kvikmynd Hitchcocks, The 39 Steps. Leikstjóri sýningarinnar er María Sigurðardóttir en hún leikstýrði einnig sýningunum Sex í sveit og Fló á skinni. Sýningar í Íslensku óperunni verða föstudaginn 7. maí, laugardaginn 8. maí og sunnudaginn 9. maí kl. 20 og er hægt að kaupa miða í miðasölu Íslensku...

Read More

Áhugaleikhús atvinnumanna sýnir Apríl

Fimmtudaginn 30. apríl sýnir Áhugaleikhús atvinnumanna sitt fjórða örverk um áráttur kenndir og kenjar. Örverkin sem öll eru kennd við mánuðinn sem þau eru flutt í, eru stuttar hugleiðingar um mannlega tilvist í Reykjavík dagsins í dag og eru hvert um sig frumsýnd síðasta fimmtudag í mánuði allt árið 2010. Apríl er sagður grimmastur mánaða og hugleiðir leikhópurinn þá grimmd sem fellst í áfellisdómum yfir þeim sem leiddu þjóðina til falls. Í stað þess að einblína á dóminn hefur leikhópurinn einsett sér að veita fyrirgefningunni rými. Áhugaleikhús atvinnumanna býður fólki að taka þátt í einskonar friðþægingarathöfn sem felst í...

Read More

Rausnarlegt boð í Leiklistarskóla MÁF í Færeyjum

Meginfélag Áhugaleikara í Færeyjum rekur leiklistarskóla að íslenskri fyrirmynd og í ár er boðið upp á nokkur námskeið, þar á meðal námskeið í leikmyndagerð haldið af mjög virtum, dönskum leikmyndagerðarmanni, Jan de Neergaard. MÁF var að senda okkur skilaboð um að þeir bjóði nokrum íslendingum á námskeiðið ÓKEYPIS! Þeir þurfa bara að borga farmiðann sinn. Þetta frábæra boð stendur bara í nokkra daga því skólinn verður settur þann 12. maí nk. og hann stendur til sunnudagsins 16. maí. Nánar um námskeiðið:SCENOGRAFIAllar frásagnir bera myndir í sær, – og tað er okkara uppgáva at velja brot burtur úr teimum, soleiðis...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert