Author: lensherra

Aðalfundur Halaleikhópsins 2010

Fimmtudaginn 20. maí kl. 20.00 heldur leikfélagið Halaleikhópurinn aðalfund  í húsnæði sínu, Halanum Hátúni 12. Dagskrá fundarins verður skv. lögum félagsins og eru allir hvattir til að mæta, bæði gamlir meðlimir og þeir sem kunna að hafa áhuga á að starfa með félaginu en það starfar einmitt undir kjörorðunum leiklist fyrir alla. Dagskrá aðalfundar skv. lögum félagsins:1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.2. Inntaka nýrra félaga.3. Skýrsla stjórnar.4. Afgreiddir endurskoðaðir reikningar félagsins.5. Afgreiðsla tillagna sem borist hafa fundinum, svo sem lagabreytingar. 6. Starfsemi næsta leikárs. 7. Kosning stjórnar, varastjórnar, tveir skoðunarmenn reikninga.8. Önnur mál Auglýst er eftir framboðum í eftirfarandi embætti:...

Read More

Hellisbúinn á ferð um landið 5. – 19. júní

Sýningum á Hellisbúanum í Reykjavík lauk föstudaginn 30. apríl með látum. Nú þegar hafa 20.000 manns séð sýninguna. Vegna fjölda áskorana hefur nú ákveðið að fara í túr um landið. Hellisbúinn verður á ferðinni 5. – 19. júní og heimsækir sex bæjarfélög og verður ein sýning á hverjum stað. Dagskráin er svona: 5. júní: Bíóhöllin, Akranesi10. júní: Klif, Ólafsvík11. júní: Félagsheimilið, Búðardal12. júní: Edinborgarhúsið, Ísafirði18. júní: Valaskjálf, Egilsstöðum19. júní: Valhöll, EskifirðiAðeins er um eina sýningu að ræða í hverju bæ og því mjög takmarkað magn miða í boði. Miðasalan er hafin og fer fram á Miði.is.Jóhannes Haukur Jóhannesson er Hellisbúinn, Rúnar Freyr...

Read More

Birtíngur kveður Suðurland

Leikritið Birtíngur sem Leikfélag Selfoss sýndi í vetur, heldur nú brátt í víking og ferðast norður yfir heiðar á NEATA-leiklistarhátíðina sem haldin verður á Akureyri 10.–15. ágúst næstkomandi. Áður en Birtíngur kveður Suðurland fyrir fullt og allt munu þó verða sýndar tvær fjáröflunarsýningar í Litla leikhúsinu við Sigtún á hátíðinni Vor í Árborg til að safna fyrir ferðinni norður. Sýningarnar verða föstudaginn 14. maí og sunnudaginn 16. maí og hefjast báðar kl. 20.00. Stytta þurfti sýninguna um klukkutíma fyrir leiklistarhátíðina og hefur leikhópurinn æft þær breytingar undanfarna daga. Æfingarnar hafa gengið vel og er sýningin þéttari og skemmtilegri en...

Read More

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 1.-2. maí 2010 í Eyjafirði

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga haldinn að Sveinbjarnargerði í Eyjafirði 1.- 2. maí, 2010 1. Fundarsetning. Kosning 2ja fundarstjóra og 2ja fundarritara, sem taka þegar til starfa. Lögmæti fundarins kannað. Þorgeir Tryggvason formaður setti fundinn og stakk upp á Bernharð Arnarssyni, Leikfélagi Hörgdæla, og Ingólfi Þórssyni, Freyvangsleikhúsinu, sem fundarstjórum og Ármanni Guðmundssyni, ritara þjónustumiðstöðvar, og Guðfinnu Gunnarsdóttur, Leikfélagi Selfoss, sem riturum. Gengið úr skugga um að löglega hafi verið boðað til fundarins. 2. Kjörnefnd afgreiðir kjörbréf og afhendir atkvæðaspjöld, skýrir stöðu mála varðandi stjórnarkjör og auglýsir eftir tillögum. Kjörnefnd tók til starfa. Hana skipuðu Embla Guðmundsdóttir, Umf. Reykdæla, Halldór Sigurgeirsson, Freyvangsleikhúsinu, og Gerður Halldóra Sigurðardóttir, Leikfélaginu Sýnir og Leikfélagi Selfoss. 19 félög voru með atkvæði á fundinum. 3. Menningarstefna Bandalagsins lesin og rædd. Sigríður Lára Sigurjónsdóttir, Hugleik, las Menningarstefnu Bandalagsins. Engar umræður. 4. Staðfest inntaka nýrra félaga, félög tekin af félagaskrá. Ólöf Þórðardóttir, Leikfélagi Mosfellssveitar, kynnti hvaða félög hafa gengið í og úr Bandalaginu. Leikfélagið Skagaleikflokkurinn óskaði eftir inngöngu í Bandalagið og var samþykkt. Leikfélagið M.a.s og Nafnlausi leikhópurinn sögðu sig úr því og Leikhópurinn Vaka á Borgarfirði eystri er tekið af félagaskrá vegna árgjaldaskulda. 5. Fundargerð síðasta aðalfundar afgreidd. Fundargerð síðasta aðalfundar samþykkt. 6. Skýrsla stjórnar. Þorgeir Tryggvason flutti skýrslu stjórnar: Skýrsla formanns á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga í Sveinbjarnargerði 1. maí 2010 I – Stjórn Stjórn Bandalags íslenskra leikfélaga var þannig skipuð á árinu: Þorgeir Tryggvason, Reykjavík, formaður...

Read More

Laus pláss í Leiklistarskóla Bandalagsins á Húnavöllum

Vegna forfalla er núna laust pláss á grunnnámskeið í leikstjórn í Leiklistarskóla Bandalagsins á Húnavöllum dagana 12.-20. júní. Kennari á námskeiðinu er Sigrún Valbergsdóttir. Einnig er laust pláss á Röddin í leikhúsinu, framhaldsnámskeið Þórhildar Örvarsdóttur í Complete Vocal-tækni í raddbeytingu. Nánar um skólann...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert