Leikhópurinn Lotta frumsýnir Hans klaufa
Laugardaginn 29.maí kl 16:00, frumsýnir Leikhópurinn Lotta fjölskylduleiksýninguna Hans klaufa í Elliðarárdalnum. Verkið skrifaði Ljóti hálfvitinn Snæbjörn Ragnarsson en auk Hans klaufa koma við sögu aðrar þekktar persónur úr ævintýraheiminum. Þar má til dæmis nefna Öskubusku og froskaprinsinn. Í framhaldi af frumsýningunni mun Leikhópurinn Lotta ferðast um landið með Hans klaufa. Sýndar verða tæplega 80 sýningar á fleiri en 50 stöðum um allt land. Verkið segir frá því þegar Aron prins og aðstoðarmaður hans, Hans klaufi, koma heim úr löngu ferðalagi. Þegar heim kemur komast þeir að því að ekki er allt með feldu. Norn hefur komið þangað í...
Read More


