Author: lensherra

Áhugaleikhús atvinnumanna sýnir Maí

Í dag, fimmtudaginn 27. maí kl. 12:30, sýnir Áhugaleikhús atvinnumanna Maí, örverk um áráttur, kenndir og kenjar og verður það sýnt í beinni útsendingu á vefsíðunni www.herbergi408.is frá Útgerð Hugmyndahús háskólanna við Grandagarð.  Leikstjóri er Steinun Knútsdóttir og leikari er Orri Huginn Ágústsson. Áhugaleikhúsið veltir nú fyrir sér hvernig garðurinn okkar kemur undan vetri og hvernig best sé að undibúa jarðveginn fyrir framtíðina.  Hvað er illgresi? Er sviðin jörð ákjósanleg til ræktunar? Hvort á ég að kjósa einærar eða fjölærar plöntur? Verkið er fimmta örverkið af 12 sem Áhugaleikhúss atvinnumanna býður áhorfendum upp á endurgjaldslaust. Verkin taka á áráttum,...

Read More

Miðasala hafin á Rokk í Þjóðleikhúsinu

Nú er hafin miðasala á Athyglisverðastu áhugaleiksýningu ársins sem er að þessu sinni Rokk frá Hugleik í Reykjavík. Sýningin verður fimmtudaginn 10. júní en verkið hefur verið sýnt fyrir troðfullu húsi hjá Hugleik undanfarið. Sýningin í Þjóðleikhúsinu er því síðasti séns til að upplifa Rokkið. Höfundar eru Ásta Gísladóttir, Júlía Hannam, Sigurður H. Pálsson og Þórarinn Stefánsson. Eggert Hilmarsson semur tónlist en leikstjórar eru Hulda B. Hákonardóttir og Þorgeir Tryggvason. Rokk fjallar um tvær hljómsveitir sem deila með sér æfingahúsnæði. Eins og gefur að skilja koma upp ýmsir árekstrar og flækjur, enda böndin bæði metnaðargjörn og einstaklingarnir misflinkir í...

Read More

Aukasýningar 39 þrepum í Íslensku óperunni

Fjöldi manns sótti sýningar LA helgina 7,-9. maí í Íslensku óperunni. Það var frábær stemmning, mikið hlegið og dynjandi fagnaðarlæti í lok sýninga. Vegna fjölda áskorana – og fyrir þá sem ekki komust þá helgi – verða  aukasýningar á  39 þrepum í Íslensku óperunni  helgina 21.-24. maí. Leikstjóri sýningarinnar er María Sigurðardóttir. Leikfélag Akureyrar frumsýndi gamanleikinn 39 þrep í janúar sl. Uppselt hefur verið á nær 50 sýningar norðan heiða og gagnrýnendur á einu máli; „Stórkostleg sýning“. Í þessum óborganlega gamanleik fara 4 leikarar á kostum í  139 hlutverkum. Breski háðfuglinn Patrick Barlow gerir leikgerðina og byggir hana á...

Read More

Aðalfundur Halaleikhópsins 2010

Fimmtudaginn 20. maí kl. 20.00 heldur leikfélagið Halaleikhópurinn aðalfund  í húsnæði sínu, Halanum Hátúni 12. Dagskrá fundarins verður skv. lögum félagsins og eru allir hvattir til að mæta, bæði gamlir meðlimir og þeir sem kunna að hafa áhuga á að starfa með félaginu en það starfar einmitt undir kjörorðunum leiklist fyrir alla. Dagskrá aðalfundar skv. lögum félagsins:1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.2. Inntaka nýrra félaga.3. Skýrsla stjórnar.4. Afgreiddir endurskoðaðir reikningar félagsins.5. Afgreiðsla tillagna sem borist hafa fundinum, svo sem lagabreytingar. 6. Starfsemi næsta leikárs. 7. Kosning stjórnar, varastjórnar, tveir skoðunarmenn reikninga.8. Önnur mál Auglýst er eftir framboðum í eftirfarandi embætti:...

Read More

Hellisbúinn á ferð um landið 5. – 19. júní

Sýningum á Hellisbúanum í Reykjavík lauk föstudaginn 30. apríl með látum. Nú þegar hafa 20.000 manns séð sýninguna. Vegna fjölda áskorana hefur nú ákveðið að fara í túr um landið. Hellisbúinn verður á ferðinni 5. – 19. júní og heimsækir sex bæjarfélög og verður ein sýning á hverjum stað. Dagskráin er svona: 5. júní: Bíóhöllin, Akranesi10. júní: Klif, Ólafsvík11. júní: Félagsheimilið, Búðardal12. júní: Edinborgarhúsið, Ísafirði18. júní: Valaskjálf, Egilsstöðum19. júní: Valhöll, EskifirðiAðeins er um eina sýningu að ræða í hverju bæ og því mjög takmarkað magn miða í boði. Miðasalan er hafin og fer fram á Miði.is.Jóhannes Haukur Jóhannesson er Hellisbúinn, Rúnar Freyr...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert