Gestaboð Hallgerðar í Sögusetrinu á Hvolsvelli
Fimmtánda júlí sl. var frumsýndur í Sögusetrinu á Hvolsvelli nýr frumsaminn einleikur um Hallgerði langbrók. Leikurinn heitir Gestaboð Hallgerðar og er eftir Hlín Agnarsdóttir sem jafnframt er leikstjóri. Með hlutverk Hallgerðar fer Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona og Ómar Smári Jónsson leikur vinnumann hennar, Melkó. Leikurinn verður sýndur í Söguskálanum í Sögusetrinu á Hvolsvelli eins lengi og aðsókn […]
Vinnslan #2 á Norðurpólnum
Laugardagskvöldið 14. júlí mun Vinnslan vera sett upp í annað sinn á Norðurpólnum. Sú fyrsta var haldin 19. maí síðastliðinn við afar góðar undirtektir. Um 30 listamenn settu þá upp verk sín og yfir 250 áhorfendur mættu til þess að upplifa og njóta hinna ýmsu verka. Húsið verður svo opið fyrir áhorfendur frá klukkan 20 […]
Leikfélagið Sýnir sýnir Gangverkin
Föstudaginn 13. júlí kl. 20 frumsýnir Leikfélagið Sýnir leikverkið Gangverkin í Elliðaárdal. Verkið sömdu nokkrir meðlimir leikfélagsins og er leikstjórn jafnframt í höndum félagsmanna. Þetta er fjórða verkið sem leikfélagið sýnir í Elliðaárdal en áður hefur það sýnt þar Draum á Jónsmessunótt eftir Shakespeare (2003), Máfinn eftir Chekhov (2006) og Allir komu þeir aftur eftir […]
Síðustu sýningar á Trúðleik
Nú eru einungis þrjár sýningar eftir á uppsetningu Frystiklefans á Rifi á Trúðleik eftir Hallgrím H. Helgason, í leikstjórn Halldórs Gylfasonar. Þær eru 12., 13. og 14. júlí og hefjast allar kl. 17. Leikarar í sýningunni eru Benedikt Karl Gröndal og Kári Viðarsson.
Date í Rýminu
Norðurbandalagið sýnir um þessar mundir leikritið Date eftir Jón Gunnar Þórðarson í leikstjórn höfundar. Sýnt er í Rýminu á Akureyri og hefjast sýnngar kl. 20. Sýningin fjallar um allt það sem þú átt ekki að gera á stefnumóti. Lélegar „pick-up“ línur, hvað á ekki að segja og hvernig á ekki að bera fram bónorð. Þessi […]
Lokað í viku 31

Þjónustumiðstöð Bandalags íslenskra leikfélaga að Kleppsmýrarvegi 8, 104 Reykjavík, verður lokuð vegna sumarleyfa vikuna frá og með mánudegi 30. júlí til þriðjudags 7. ágúst. Opnunartími í sumar er annars eins og vanalega virka daga frá 9.00-13.00
Hverjir vilja fara til Monaco 2013?
Bandalag íslenskra leikfélaga auglýsir eftir leiksýningu til að sækja um að fara á alþjóðlegu leiklistarhátíðina Mondial du Theatre í Monaco dagana 19.-28. ágúst 2013. Hátíðahaldarar í Monaco bjóða leikhópi sem telur allt að 10 manns frítt uppihald í 4 daga. Hópurinn má vel vera stærri og stoppa lengur, þá þarf bara að borga eitthvað aukalega […]
Síðustu sýningar á FASTUR í Norðurpólnum
Leiksýningin FASTUR hefur verið sýnd í Norðurpólnum síðan 17. maí. Nú fer sýningum að ljúka og eru einungis tvær sýningar eftir. Önnur er fimmtudaginn 28. júní og sú síðasta fimmtudaginn 5. júlí. Báðar sýningarnar hefjast kl. 20.
Aukasýning á Dagur til að drepa sig
Þriðjudaginn 3. júlí kl. 20.00 verður aukasýning á leikþættinum Dagur til að drepa sig eftir Jón Benjamín Einarsson. Það er Leikfélagið Peðið sem sýnir og er verkið í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar. Sýnt er á bar 46 Hverfisgötu 46.
Act alone og Vesturport bindast vináttuböndum
Á dögunum gerði Act alone einleikið vinasamband við hinn einstaka leikhóp Vesturport. Samstarfið felur í sér að Vesturport mun leitast við að gera Act alone að enn betri hátíð. Nú þegar hefur vinasambandið borið ávöxt því á Act alone 2013 mun Vesturport frumsýna nýjan íslenskan einleik. Of snemmt er að segja frá verkinu en þó […]
Hernámsdagurinn á Reyðarfirði
Hinn árlegi Hernámsdagur verður haldinn á Reyðarfirði helgina 29. júní til 1. júlí. Leikfélag Reyðarfjarðar mun taka virkan þátt í ár eins og áður en að þessu sinni verður boðið upp á gönguferð um Búðareyri þar sem félagar í Leikfélaginu munu endurskapa andblæ stríðsáranna. Fer gangan fram á milli kl. 14 og 15 þann 30. […]
Leikfélagið Peðið frumsýnir Dagur til að drepa sig
Leikfélagið Peðið sýnir leikþáttinn Dagur til að drepa sig, eftir Jón Benjamín Einarsson í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar laugardaginn 23. júní kl. 19:00. Önnur sýning verður sunnudaginn 24. júní kl. 17:00 í tilefni sólstöðuhátíðar á bar 46 Hverfisgötu 46.
Leikfélagið Sýnir leitar leikara í sumar
Leikfélagið Sýnir hyggst sýna útileiksýningu í Elliðaárdal um miðjan júlí, samansetta úr nokkrum stuttum leikverkum sem fléttað verður saman í heildstæða sýningu. Leikfélagið auglýsir eftir áhugasömum leikurum, til að taka þátt í sýningunni. Fyrsti hittingur verður sunnudagskvöldið 24. júní kl. 20. verður hann við gömlu rafstöðina í Elliðaárdal (sjá mynd). Uppsetningu leikfélagsins á Sjö samúræum, […]
Pétur og úlfurinn í Selskógi
Leikfélag Fljótsdalshéraðs er um þessar mundir að hefja æfingar á Pétri og úlfinum. Stefnt er á að frumsýna verkið í Selskógi 19. júlí. Sýningin er sett upp í samstarfi við Samfélagssjóð Alcoa og Vinnuskóla Fljóstdalshéraðs en leikarar eru allir á grunnskóla aldri. Leiksstjóri verksins er Pétur Ármannsson og mun hann í samstarfi við leikhópinn semja […]
Hringurinn í Þjóðleikhúsinu 22. júní

Leiksýning Leikfélags Kópavogs, Hringurinn varð að þessu sinni fyrir valinu sem athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins. Hún verður sýnd í Kassanum 22. júní nk. kl. 20.00 Aðeins er um eina sýningu að ræða. Verkið er eftir Hrefnu Friðriksdóttur, leikstjóri er Hörður Sigurðarson, Sváfnir Sigurðarson leggur til tónlist og hljóðmynd og Skúli Rúnar Hilmarsson hannar lýsingu. Fjölmargir aðrir leggja hönd […]
Ráðstefna um leikhús og leiklist í skólastarfi
Sjöunda ráðstefna Norrænu Drama Boreale samtakanna verður haldin í Reykjavík frá 6. til 10. ágúst 2012. Skipuleggjandi ráðstefnunnar er FLÍSS, Félag um leiklist í skólastarfi og er ráðstefnan skipulögð í samstarfi við Háskóla Íslands, menntavísindasvið. Þema ráðstefnunnar er frumefnin fjögur: jörð, loft, eldur og vatn. Undirliggjandi þema á ráðstefnunni er húmor í kennslu en fyrirlesarar […]
Gríman 2012 – Heiðursverðlaun
Leikmyndahöfundunum Steinþóri Sigurðssyni og Sigurjóni Jóhannssyni voru veitt heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands árið 2012 á Grímuhátíðinni í gærkvöldi. Vigdís Finnbogadóttir, heiðursverðlaunahafi ársins 2006, fyrrum leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur og forseti Íslands, afhenti þeim verðlaunin. Steinþór og Sigurjón eru þeir tveir leikmyndahöfundar landsins, sem settu hvað mestan svip á þær leiksýningar sem sýndar voru á tveim helstu leiksviðum […]
Tengdó leiksýning ársins á Grímunni 2012
Grímuverðlaunin voru afhent í tíunda sinn fyrr í kvöld, við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í Hörpunni. Gríman er uppskeruhátíð leikhúsfólks og það er Leiklistarsamband Íslands, heildarsamtök sviðslistanna á Íslandi, sem hefur veg og vanda að Grímuverðlaununum. Veitt voru verðlaun í 18 flokkum sviðslista auk heiðursverðlauna veitt þeim listamanni er skilað hefur framúrskarandi ævistarfi í þágu […]
Bernd Ogrodnik fær alþjóðlega viðurkenningu

Bernd Ogrodnik brúðulistamaður fékk nýverið úthlutað viðurkenningu Michael Meschke sem eru alþjóðleg verðlaun á sviði brúðuleiklistar. Verðlaunaféð eru 5.000 Evrur. Bernd hlýtur viðurkenninguna fyrir að vera fyrirmynd fyrir nýjar kynslóðir þegar kemur að hæstu gæðum í handverki samþáttað við framþróun og endurnýjun á tækni og hönnun, til að ná fram aukinni hreyfilist hjá leikbrúðunum. Michael […]
Leikdagskrá og aðalfundur
Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir leikdagskrá í Leikhúsinu Funalind 2 annað kvöld, föstudag kl. 18.00. Hópurinn hefur unnið undir stjórn Kristínar Rósar Birgisdóttur undanfarnar vikur og verður afraksturinn, fjórir leikþættir, sýndur á morgun. Félagsmenn LK og aðrir áhugasamir geta tekið forskot á sæluna í kvöld kl. þegar hópurinn verður með opna æfingu kl. 19.00. Að æfingunni […]
Hringurinn í Þjóðleikhúsinu 22. júní

Sýning Leikfélags Kópavogs, Hringurinn var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins af valnefnd Þjóðleikhússins. Félaginu var í kjölfarið boðið að sýna Hringinn í Þjóðleikhúsinu og verður hún föstudaginn 22. júní kl. 20.00 í Kassanum. Miðasala á sýninguna er á vegum Þjóðleikhússins. Sími miðasölunnar er 551 1200, netfangið er midasala@leikhusid.is. Nánari upplýsingar má fá á vef Þjóðleikhússins.
Tilnefningar til Grímuverðlauna 2012

Tilnefningar til Grímuverðlauna 2012 í alls 18 flokkum sviðslista voru kunngjörðar í Tjarnarbíói föstudaginn 1. júní að viðstöddum fjölda sviðslistafólks. Alls komu 89 sviðslistaverkefni til álita til Grímunnar í ár sem voru skoðuð af fagnefndum Grímunnar með verðlaunin eftirsóttu í huga. Þar af voru 23 danssýningar, 9 barnasýningar og 7 útvarpsverk. Við verkin störfuðu yfir […]
Frumsýning á Trúðleik í Frystiklefanum í Rifi
Leikritið Trúðleikur eftir Hallgrím H. Helgason verður frumsýnt í Frystiklefanum í Rifi þann 1. júní næstkomandi. Trúðleikur er sprellfjörugur og hjartnæmur gamanleikur fyrir alla í fjölskyldunni. Leikritið er nú sett upp í fyrsta sinn síðan það sló rækilega í gegn í Iðnó um aldamótin síðustu. Trúðleikur er þriðja uppfærsla Frystiklefans í Rifi og fylgir á […]
Tvennir tímar í Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ
Laugardaginn 2. júní kl 17:30 og 19:00 sýnir leiklistarhópur 9. og 10. bekkjar Lágafells- og Varmárskóla kynnir leikritið Tvennir tímar í Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ. Leikritið gerist í Mosfellssveit/bæ árin 1962 og 2012. Bára kennari á stórafmæli og gamlir nemendur samfagna henni á þessum tímamótum. Hún rifjar upp ball í Hlégarði þar sem hún kynntist ástinni sinni […]
Aukasýning á Ævintýrum Múnkhásens

Vegna mikillar aðsóknar á Ævintýri Múnkhásens sem hefur verið kölluð hefur verið ákveðið að bæta við aukasýningu fimmtudaginn 31. maí kl 18.00. Sýningin verður jafnframt opnunarsýning Bjartra daga, árlegrar menningarhátiðar Hafnfirðinga. Höfundur leikritsins er Sævar Sigurgeirsson og leikstjóri Ágústa Skúladóttir. Ævintýri Múnkhásens er lygileg sýning fyrir alla aldurshópa, full af ólíkindum, glensi og leikhústöfrum sem […]
Pétur Gautur í Þjóðleikhúsinu á Listahátíð
Miðvikudaginn 30. maí kl. 19.30 verður á Stóra sviði Þjóðleikhússins sýnd gestasýning frá Sviss, verðlaunauppsetning Þorleifs Arnarssonar með Luzerner Theater á hinu klassíska verki Ibsens, Pétri Gaut. Sýningin er liður á Listahátíð í Reykjavík og verður aðeins sýnd þessi eina sýning. Sýningin er leikin á þýsku með íslenskum texta.
Fyrsti samlestur á Sjö samúræum
Þriðjudaginn 29. maí kl. 20 verður fyrsti samlestur á Sjö samúræum sem Leikfélagið Sýnir hyggst setja upp í Elliðaárdal nú í sumar. Leikstjóri og höfundur leikgerðar er Guðmundur Erlingsson en verkið byggir hann á hinni klassísku kvikmynd Akiros Kurosawa sem aftur byggir á aldagamalli þjóðsögu. Frumsýnt verður um miðjan júlí og eru allir sem áhuga […]
Leikhópurinn Lotta frumsýnir Stígvélaða köttinn
Leikhópurinn Lotta frumsýnir á laugardaginn, klukkan 16.00, glænýtt íslenskt leikrit um Stígvélaða köttinn. Þetta er sjötta sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn tekist á við Mjallhvíti og dvergana sjö, Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi. Frumsýningin fer fram í Elliðaárdalnum í Reykjavík en í framhaldinu […]
Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 5.-6. maí 2012 á Ísafirði
Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga haldinn í Edinborgarhúsinu á Ísafirði 5.–6. maí 2012 1. Fundarsetning. Kosning 2ja og 2ja fundarritara, sem taka þegar til starfa. Lögmæti fundarins kannað. Þorgeir Tryggvason, formaður Bandalagsins, setti fundinn og stakk upp á Sveinbirni Björnssyni og Sturlu Páli Sturlusyni frá Litla leikklúbbnum sem fundarstjórum og Ármanni Guðmundssyni, ritara skrifstofu, […]
Hláturinn lengir lífið
Leikfélag SauðárkróksTveir tvöfaldir eftir Ray CooneyLeikstjóri: Ingrid Jónsdóttir Í upphafi Sæluviku 29. apríl frumsýndi Leikfélag Sauðárkróks leikverkið „Tveir tvöfaldir“ eftir Ray Cooney, í þýðingu Árna Ibsen. Ingrid Jónsdóttir leikstýrði verkinu og er einnig hönnuður sviðsmyndar. Hönnun lýsingar var í höndum Guðbrandar Ægis Ásbjörnssonar. Tveir tvöfaldir var frumflutt af Þjóðleikhúsinu árið 1998 og naut talsverða vinsælda. […]
How to become Icelandic in 60 minutes í Hörpu
Föstudaginn 25. maí verður leiksýningin How to become Icelandic in 60 minutes frumsýnt í Kaldalóni í Hörpu. How to become Icelandic in 60 minutes er leikið á ensku, samin og flutt af Bjarna Hauki Þórssyni og leikstýrt af Sigurði Sigurjónssyni. Þetta er sprenghlægileg klukkustundarlöng sýning sem ætluð er öllum þeim sem vilja læra hvað það […]
Fjórar aukasýningar á Óralandi
Vegna góðrar aðsóknar hefur fjórum aukasýningum verið bætt við á sýningu Nemendaleikhúss LHÍ á Óralandi. Sýnt er í Smiðjunni. Leikstjóri er Una Þorleifsdóttir, aðjúnkt í sviðslistum við leiklistar- og dansdeild Listaháskóla Íslands og aðrir listrænir stjórnendur eru Jón Atli Jónasson, Egill Ingibergsson og Magnús Þór Þorbergsson.
Vinnslan á Norðurpólnum 19. maí
Laugardagskvöldið 19. maí næstkomandi ætla Maddid og Fimbulvetur að hleypa af stokkunum Vinnslunni í húsnæði Norðurpólsins, í samvinnu við Alheiminn. Húsið verður opið fyrir áhorfendur frá kl. 19:30 þar sem áhorfendur munu hafa tækifæri til þess að njóta verk í vinnslu frá um 30 listamönnum og hópum úr mismunandi listgreinum. Vinnslan er ævintýri fyrir öll […]
Gamli maðurinn og hafið frumsýnt í Kúlunni

Sunnudaginn 20. maí frumsýna Brúðuheimar í samstarfi við Þjóðleikhúsið, Gamla manninn og hafið, einstaklega fallega nýja sýningu eftir brúðumeistarann Bernd Ogrodnik, byggð á meistarverki Hemingways. Bernd Ogrodnik heillaði Listahátíðargesti árið 2006 með frumsýningu hins byltingarkennda leikrits Metamorphosis sem síðan hefur ferðast um heiminn við frábærar undirtektir. Hann færir nú sígilda sögu Hemingway á svið í […]
Fastur á Norðurpólnum
Fastur, frumsamin leiksýning án orða, verður frumsýnd í Norðurpólnum kl. 20.00 næstkomandi fimmtudag, 17. Maí. Leikari og höfundur verksins er Benedikt Karl Gröndal. Honum til leikstjórnar og aðstoðar við höfundaverkið er Árni Kristjánsson. Í verkinu er kröftug og kynngimögnuð hljóðmynd sem er í höndum plötusnúðsins Einars Helgasonar.
Leikfélag Seyðisfjarðar frumsýnir Pelíkanann
Föstudaginn 11. maí frumsýnir Leikfélag Seyðisfjarðar leikritið Pelíkaninn eftir Seyðfirðinginn Ágúst Torfa Magnússon sem jafnframt er leikstjóri. Pelíkaninn er þriðja leikritið sem Ágúst skrifar fyrir Leikfélag Seyðisfjarðar, áður hefur skrifað verkin Kallarðu þetta leikrit? og Þetta er bara prinsippmál! sem hann skrifaði ásamt Snorra Emilssyni. Sýnt er í Félagsheimilinu Herðubreið, Seyðisfirði og hefjast sýningar kl. […]
Bræður – fjölskyldusaga á Listahátíð í júní
Framleiðsla og æfingar á sýningunni Bræður – fjölskyldusaga eru í fullum gangi í Borgarleikhúsinu um þessar mundir. Verkið er samstarfsverkefni Borgarleikhússins, Vesturports, borgarleikhússins í Malmö og Teater Får302 í Kaupmannahöfn. Íslendingum gefst kostur á að fylgja þessu metnaðarfulla verkefni úr hlaði í vor því ferðalag norrænu uppfærslu verksins hefst á tveimur sýningum á Listahátíð þann […]
Hvílíkt snilldarverk er maðurinn á Akureyri
Á morgun, fimmtudaginn 10. maí kl. 20:00, mun Sigurður Skúlason sýna einleikinn Hvílíkt snilldarverk er maðurinn, í Samkomuhúsinu á Akureyri. Verkið er unnið upp úr verkum Shakespears og hefur fengið afburða góða gagnrýni. Verkið hefur verið sýnt í Þjóðleikhúsinu í vetur og er einnig nýkomið úr leikferð um Austurland þar sem það var sýnt 6 […]
Athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins 2011-2012
Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins hefur nú farið fram í nítjánda sinn. Alls sóttu ellefu leikfélög um með jafn margar sýningar. Það var afar ánægjulegt að skoða þessar fjölbreyttu sýningar, víðsvegar að af landinu og verða enn á ný vitni að því hversu góða rækt áhugaleikfélögin leggja við íslenska leikritun. Öll verkin voru eftir […]
Aðalfundur Bandalagsins 2012
Dagana 5.-6. maí fór aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga fram í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Þær breytingar urðu á stjórn að Þráinn Sigvaldason, Leikfélagi Fljótsdalshéraðs, var kosinn inn í stað Ásu Hildar Guðjónsdóttur, Halaleikhópnum. Í varastjórn tók Ylfa Mist Helgadóttir, Leikfélagi Bolungarvíkur við sæti Höllu Rúnar Tryggvadóttur, Leikfélagi Húsavíkur, sem gaf ekki kost á sér. Stærsta málið […]
