Nemendaleikhús LHÍ frumsýnir Tímaskekkju

nemendaleikhus12

Fyrsta kynning vetrarins í Nemendaleikhúsi LHÍ er verkefnið Tímaskekkja eftir nemendur á 3 ári í leikaranámi. Verkefnið er hugleiðing um samskipti og sambönd kynjanna og hafa nemendur unnið að því síðustu sex vikur. Áhersla námskeiðsins hefur verði á vinnu með ólíkar samsetningar og sköpunar aðferðir við gerð leiksýninga, á ferli slíkrar vinnu og síðan vinnu […]

Ljósvíkingur í Norðurpólnum

skaldid_a_throm

Kómedíuleikhúsið á Ísafirði, í samvinnu við Norðurpólinn, sýnir Ljósvíkingur – Skáldið á Þröm, einlægan og átakanlegan einleik um skáldið Magnús Hj. Magnússon í Norðurpólnum, Seltjarnarnesi. Einleikurinn var sýndur vestur á fjörðum í vor og sumar við gríðarlega góðar undirtektir. Það er Ársæll Níelsson sem túlkar skáldið og Elfar Logi Hannesson leikstýrir.

Gói og baunagrasið snýr aftur á Litla sviðið

goi_og _baunagrasid1

Gói og baunagrasið – snýr aftur á Litla sviðið á sunnudaginn 7. október í takmarkaðan tíma. Hér eru á ferðinni lifandiog bráðskemmtilegar barnasýningar með Góa og Þresti Leó sem leiða börnin inn í heim ævintýranna. Sýningarnar Eldfærin og Gói og Baunagrasið eru uppfullar af leikhústöfrum, kímni og fjörugri tónlist sem fallið hefur svo sannarlega í […]

Velheppnað námskeið í Mosfellsbæ

stjornun2

Laugardaginn 29. september stóð Bandalag íslenskra leikfélaga fyrir námskeiði í stjórnun áhugaleikfélaga í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ. Alls sóttu 26 manns frá 13 leikfélögum námskeiðið sem tókst í alla staði hið besta. Fyrirlesarar komu úr röðum stjórnar og starfsmanna Bandalagsins auk þess sem Kristín Elfa Ragnarsdóttir frá auglýsingastofunni TBWA/Pipar kynnti möguleika í markaðssetnignu með samfélagsmiðlum.

Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir á Ísafirði

kotturinn

Litli leikklúbburinn á Ísafirði frumsýnir fjölskyldu leikritið Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir eftir Ólaf Hauk Símonarson í Edinborgarhúsinu á Ísafirði, laugardaginn 6. október kl 15. Leikritið er byggt á sögu Rudiard Kipling, tónlist og texta semur Ólafur Haukur og er þessi uppfærsla í leikstjórn Halldóru Björnsdóttur. Leikritið er fjölskylduleikrit og margar persónur fylla það […]

Ævintýri Múnkhásens aftur á fjalirnar

munkhasen6

Þann 7. október hefjast að nýju sýningar á Ævintýrum Múnkhásens í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Sýningin hlaut einróma lof gagnrýnenda og frábærar viðtökur hjá áhorfendum síðastliðinn vetur. Sævar Sigurgeirsson skrifar handritið og Ágústa Skúladóttir leikstýrir en Ágústa frumsýndi í byrjun september nýja uppfærslu af Dýrunum í Hálsaskógi í Þjóðleikhúsinu. Tónlistina semja Ármann Guðmundsson, Eggert Hilmarsson og […]

Unglingastarf Leikfélags Kópavogs að hefjast

astbjorg_rut_jonsdottir

Nú líður að því að starf unglingadeildarinnar hefjist af fullum þunga. Ástbjörg Rut Jónsdóttir, Adda Rut, hefur verið ráðin til að leiðbeina krökkunum. Adda Rut er þaulreynd í leiklistastarfi með börnum og unglingum, m.a. hefur hús starfað hjá Leynileikhúsinu, ÍTR, skólum Hjallastefnunnar og fleirum. Kynningarfundur er boðaður í kvöld 1. október  kl. 17. Vinnan byrjar […]

Sköllótta söngkonan í Hafnarfirði

Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir þann 29. september hinn óviðjafnanlega, fyndna, skrítna og brjálæðislega gamanleik rúmenska/franska leikskáldsins, Eugene Ionesco, Sköllóttu Söngkonuna í Gaflaraleikhúsinu. Frá því að verkið var fyrst frumsýnt í London fyrir 50 árum hefur það farið sigurför um heiminn og komið ólíklegasta fólki til að hlæja. Leikstjórar verksins eru Halldór Magnússon og Gísli Björn Heimisson.

Námskeið í gerð kvikmyndahandrita

Í október stendur Endurmenntun HÍ fyrir námskeiði í gerð kvikmyndahandrita. Þar er nemendum kennt að vinna hugmyndir sínar og þróa þær í áttina að kvikmyndahandriti með sérstaka áherslu á dramatíska uppbyggingu. Námskeiðið, sem hefur hlotið mikið lof fyrri þátttakenda, er ætlað bæði þeim sem hafa reynslu af kvikmyndagerð og þeim sem eru reynslulausir á því […]

Afmælisveislan á Akureyri

Afmælisveislan eftir Harold Pinter í leikstjórn Guðjóns Pedersen er á leiðinni norður og verður sýnd á sviði Samkomuhússins föstudagskvöldið 27. og laugardagskvöldið 28. september kl. 20:00, einnig á sunnudaginn 29. september kl. 16:00. Þessi sýning Þjóðleikhússins skartar landsliðsleikurunum Ingvari E. Sigurðssyni, Kristbjörgu Kjeld, Erlingi Gíslasyni, Birni Thors, Eggerti Þorleifssyni og Þórunni Örnu Kristjánsdóttur. Sýningin hlaut […]

Æfingar hafnar á Il Trovatore í Hörpu

Æfingar eru hafnar af fullum krafti á haustuppfærslu Íslensku óperunnar, Il Trovatore eftir Giuseppe Verdi, en þetta er í fyrsta sinn sem ópera hins ítalska meistara er færð upp í tónlistarhúsinu Hörpu. Nokkrir framúrskarandi listamenn á sviði tónlistar og leikhúss sameina krafta sína í uppfærslunni nú, bæði innlendir og erlendir. Kemur hljómsveitarstjórinn, Carol I. Crawford, […]

Á sama tíma að ári frumsýnt 28. september

Gamanleikurinn Á sama tíma að ári verður frumsýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins föstudaginn, 28. september. Verkið sem var frumflutt í New York 1975, hefur notið mikilla vinsælda um allan heim og unnið til fjölda verðlauna (þ.á.m. Drama desk verðlaunin sem besta leikrit ársins) sem og kvikmyndin sem gerð var eftir leikritinu (tilnefnd til 4 Óskarsverðlauna). […]

Rautt frumsýnt á Litla sviðinu

Margverðlaunað meistaraverk John Logan verður frumsýnt á Litla sviðinu 21. september næstkomandi. Rauður er gríðarlega vel skrifað verk með sterkum persónum en varpar um leið upp sígildum spurningum um lífið og listina. Verkið var sýnt á West end og Broadway við fádæma undirtektir þar sem leikararnir Alfred Molina og nýstirnið Eddie Redmayne fóru með hlutverk […]

Æfingar hafnar á Rummungi ræningja

Leikfélag Ölfuss æfir nú fjölskyldu leikritið Rummungur ræningja eftir þýska barnabókahöfundinn og leikskáldið Otfried Preussler. Þetta er ævintýri eins og þau gerast best og koma við sögu máttug galdranorn, talandi froskur, spilandi kaffikvörn, sex fötur af kartöflum og svo auðvitað sjálfur Rummungur, grimmastur og ógurlegastur allra ræningja í Ræningjaskógi. Frumsýnt verður um miðjan október, leikstjóri […]

Dúnn frumsýnt í Tjarnarbíói

Föstudaginn 14. september verður Dúnn frumsýndur í Tjarnarbíói. Dúnn er dansverk, gjörningur, tónverk, ljósverk og leikrit. Dúnn er sjónarspil. Höfundar og flytjendur eru Ásrún Magnúsdóttir og Berglind Pétursdóttir Umfjöllunarefnið stendur okkur mjög nærri en við ákváðum að þessu sinni að fjalla um tilvist mannsins og sólarinnar. Þetta tvennt tengist traustum böndum, þegar við byrjuðum að fjalla […]

Pörupiltar í Hofi

Homo Erectus – Pörupiltar, standa upp í Menningarhúsinu Hofi 22. september. Leikkonurnar Alexía Björg Jóhannesdóttir, María Pálsdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir frumsýndu fyrir ári síðan uppistandið Homo Erectus sem sýnt var í Þjóðleikhúskjallaranum. Kvöldið bar yfirskriftina Uppnám, fyrir hlé var uppistandið en eftir hlé tók við söngleikjadúettinn Viggó og Víóletta. Þetta uppistand var sérstakt að því […]

Ungleikur í Borgarleikhúsinu

Ungleikur var stofnaður í þeim tilgangi að gefa ungum skáldum og leikurum vetvang til þess að sýna vinnu sína. Meginmarkiðið er að efla leikritun og leiklist ungra Reykvíkinga og tekið er við innsendum leikritum frá ungum skáldum (16-25 ára) sem verða sett upp sem sýning í Borgarleikhúsinu þann 6. nóvember næstkomandi. Umsóknarfrestur leikskálda er til […]

Trúðleikur í Gaflaraleikhúsinu

Frystiklefinn, litla atvinnuleikhúsið á Rifi á Snæfellsnesi, sýnir í samvinnu við Gaflaraleikhúsið í Hafnarfirði hinn sprellfjöruga og hjartnæma gamanleik Trúðleik eftir Hallgrím H. Helgason sem sló í gegn í sumar hjá gagnrýnendum og áhorfendum. Sýningarfjöldi er takmarkaður en sú fyrsta er 15. september kl. 14.00 Leikarar eru Benedikt Karl Gröndal og Kári Viðarsson, leikstjóri er Halldór […]

Leikhúslýsing fyrir áhugaleikhús

Dagana 6. og 7. október verður námskeið í leikhúslýsingu fyrir áhugaleikhús haldin í Tækniskólanum. Kennd eru helstu atriði við hönnun og uppsetningu lýsingar fyrir leiksýningar, tónleika, ráðstefnur o.fl. Fjallað er um eðlisfræði ljóss og litafræði, hugmyndafræði lýsingar, upphengingu og staðsetningar, leikhúsljós og önnur tæki, skipulag, teikningar og fleira. Námskeiðið er ætlað fólki á öllum aldri. […]

Gulleyjan sýnd á Stóra sviði Borgarleikhússins

Sjóræningjarnir hafa tekið yfir Borgarleikhúsið! Ævintýralegasta fjársjóðsleit allra tíma, Gulleyjan verður frumsýnd á Stóra sviðinu 14. september næstkomandi. Þetta samstarfsverkefni Borgarleikhússins og Leikfélags Akureyrar sló rækilega í gegn í fyrra og var sýnt hátt í fimmtíu sinnum fyrir fullu húsi norðan heiða. Nú verður þetta bráðfjöruga ævintýri fyrir alla fjölskylduna frumsýnt í höfuðborginni  – enn […]

Dýrin í Hálsaskógi frumsýnd í Þjóðleikhúsinu

Leikrit norska barnavinarins Thorbjörns Egners hafa notið ómældra vinsælda hjá íslensku þjóðinni allt frá því að Kardemommubærinn var sviðsettur í Þjóðleikhúsinu í fyrsta sinn árið 1960. Alls hafa yfir 300.000 áhorfendur séð leikrit Egners Dýrin í Hálsaskógi, Kardemommubæinn, Síglaða söngvara og Karíus og Baktus í Þjóðleikhúsinu á þeirri ríflega hálfu öld sem liðin er frá […]

Svar við bréfi Helgu aftur á Nýja sviðinu

Hin margrómaða ástarsaga Bergsveins Birgissonar snýr aftur á Nýja svið Borgarleikhússins föstudaginn 7. september næstkomandi. Hér er á ferðinni hrífandi saga um þrá og eftirsjá. Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2010 og valin besta skáldsaga ársins að mati bóksala það sama ár. Kristín Eysteinsdóttir leikstýrir verkinu og í Í burðarhlutverkum eru þau Ilmur […]

Námskeið í stjórnun leikfélaga og markaðssetningu

bil_island_logo

Námskeiðið verður haldið í Bæjarleikhúsinu, Mosfellsbæ, laugardaginn 29. september 2012 og hefst kl. 9.00. Fyrirlesarar koma aðallega úr röðum stjórnar- og starfsmanna Bandalagsins en þó fáum við til liðs við okkur sérfræðing í markaðssetningu með notkun samfélagsmiðla, hana Kristínu Elfu Ragnarsdóttur frá auglýsingastofunni Pipar\TBWA. Tilkynna þarf þátttöku fyrir 20. september nk.

Alvöru menn snúa aftur í Austurbæ

Alvöru menn snúa nú aftur á svið – eftir frábærar viðtökur á síðasta leikári. Hér er á ferðinni gamanleikur af bestu gerð með blöndu af uppistandi, söng og líkamlegum áhættuleik. Alvöru Menn eftir Glynn Nicholas og Scott Rankin hefur farið sigurför um heiminn frá því það var frumsýnt í Ástralíu árið 1999. Það er vinsælasta […]

Opið hús í Borgarleikhúsinu á laugardag milli kl. 13–16

Starfsfólk Borgarleikhússins lýkur upp dyrunum klukkan 13 laugardaginn 1. september og býður í vöfflukaffi með fjörlegri dagskrá. Það verður líf á öllum sviðum og um allt leikhús. Gestir á öllum aldri geta upplifað töfra leikhússins, gægst baksviðs, farið í skoðunarferðir og  bragðað á ljúffengum vöfflum sem leikhússtjórinn Magnús Geir, mun reiða fram af myndarskap ásamt […]

Tvær aukasýningar á Gangverkunum

Leikfélagið Sýnir sýnir tvær sýningar til viðbótar af Gangverkunum sem leikfélagið sýndi fyrr í sumar. Sýningarnar verða laugardaginn 1. september og sunnudaginn 2. september kl. 17.00. Sýnt er í Elliðaárdal, sýningin tekur um klukkutíma í flutningi og áhorfendur eru hvattir til að klæða sig eftir veðri. Aðgangseyrir er 1.000 kr. og leiksýningin hefst á bílastæðinu […]

Leikárið 2012-2013 í Borgarleikhúsinu afhjúpað

marypoppins

Borgarleikhússið kynnir leikárið 2012-2013. Dagskrá leikársins er viðameiri en nokkru sinni og hvergi er slegið af frá fyrra ári sem var gjöfult. Fleiri verk en nokkru sinni fyrr, 26 titlar, verða á boðstólum í Borgarleikhúsinu í vetur, þar af eru 18 íslensk verk. Á Stóra sviðinu verða m.a. sýnd Mary Poppins, Mýs og menn, Á […]

Borgarinnan frumsýnd á Akureyri

Í tilefni afmælis Akureyrarbæjar setur Litla Kompaníið, í samstarfi við Leikfélag Akureyrar, upp leikverkið Borgarinnan eftir Sögu Jónsdóttur sem jafnframt er leikstjóri. Verkið verður frumsýnt í Samkomuhúsinu þann 30. ágúst en það er byggt á atriðum úr ævi Vilhelmínu Lever, fyrstu konunnar sem kaus til bæjarstjórnar á Akureyri, 19 árum áður en konur fengu kosningarétt! […]

Ítrekun – Hverjir vilja fara til Monaco 2013?

Bandalag íslenskra leikfélaga auglýsir eftir leiksýningu til að sækja um að fara á alþjóðlegu leiklistarhátíðina Mondial du Theatre í Monaco dagana 19.-28. ágúst 2013. Umsóknum skal skilað fyrir 1. september nk. Hátíðahaldarar í Monaco bjóða leikhópi sem telur allt að 10 manns frítt uppihald í 4 daga. Hópurinn má vel vera stærri og stoppa lengur, […]

Kameljón frumsýnt í Kúlunni

kameljon

Miðvikudaginn 22. ágúst verður leikverkið Kameljón eftir Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur, Friðgeir Einarsson og Margréti Örnólfsdóttur frumsýnt í Kúlunni, litla sviði Þjóðleikhússins. Verkið er einleikur og fer Álfrún Helga Örnólfsdóttir með hlutverk Kameljónsins. Texta verksins gerði Margrét Örnólfsdóttir og Friðgeir Einarsson leikstýrir.

Kexleikhúsið frumsýnir 52

Kexleikhúsið frumsýnir 22. ágúst sérstæða og nýstárlega sýningu í Gym & Tonic salnum á  Kex Hostel. Verkið heitir 52 (52 Pick-up á frummálinu) og er kanadískt að uppruna, eftir TJ Dawe og Ritu Bozi. Það var frumsýnt á Fringe-hátíðinni í Montreal árið 2000, þar sem verkið hlaut Chapter’s Best Text verðlaunin. Verkið hefur síðan verið […]

Gauragangur í Mosfellsbæ

Föstudaginn 10. ágúst var söngleikurinn Gauragangur frumsýndur í Bæjarleikhúsinu. Það eru 13-16 ára nemendur Leikgleði, sumarnámskeiða Leikfélags Mosfellssveitar, sem taka þátt í uppsetningunni ásamt hljómsveit. Kennarar í sumar hafa verið Sigrún Harðardóttir, Agnes Wild, Eva Björg Harðardóttir, Elísabet Skagfjörð og Halldór Sveinsson.

Norræna leikskáldalestin – leiklestrar

Leiklestrar úr þeim fimm leikritum sem valin hafa verið í Norrænu leikskáldalestina 2012-2013 verða í Þjóðleikhúsinu 25. og 26. ágúst. Fimm leikskáld, eitt frá hverju landi, ferðast á milli landanna, og lesið er upp úr verkum þeirra. Leiklesið verður á ensku úr eftirtöldum verkum: Hænuungarnir eftir Braga Ólafsson (Ísland), Ingen Møder Nogen eftir Peter Asmussen […]

Eugene Onegin í Reykjanesbæ

Eftir mjög vel heppnaða uppfærslu á óperunni Toscu eftir Giacomo Puccini í Keflavíkurkirkju síðasta sumar, vaknaði sú hugmynd að stofna til árlegrar sumar óperuhátíðar í Reykjanesbæ. Í sumar er boiðið uppá enn stærri óperuuppfærslu en Tosca var auk hátíðlegs Óperuballs í Hljómahöllinni. Óperan sem flutt verður í sumar heitir Eugene Onegin og er eftir rússneska […]

IL TROVATORE í Óperunni í haust

Miðasala á óperuna Il Trovatore eftir Verdi hefst í dag kl. 12 í miðasölu Hörpu, en sýningin verður haustverkefni Íslensku óperunnar í Hörpu. Frumsýning verður laugardaginn 20. október, en alls verða sex sýningar á verkinu. Í aðalhlutverkum í Il Trovatore verða Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Auður Gunnarsdóttir, Alina Dubik/Elsa Waage, Tómas Tómasson/Anooshah Golesorkhi  og Viðar Gunnarsson. […]

Act alone á Suðureyri um helgina

Hin rótgróna einleikjahátíð Act alone verður haldin á Suðureyri 9. – 12. ágúst. Núna verður mikið einleikið í dansi, söng, leik og mat. Þar má nefna fiskiveislu, tónleika með Valgeiri Guðjónssyni og Svavari Knúti, danssýningar frá Önnu Siggu og Steinunni Ketisdóttur, trúðasýningar fyrir börn og fullorðna, leikverkin Fastur, Náströnd – Skáldið á Þröm, Jón, Svikarinn […]

Þjónustumiðstöðin lokuð 30. júlí – 7. ágúst

bil_island_logo

Þjónustumiðstöð Bandalags íslenskra leikfélaga að Kleppsmýrarvegi 8, 104 Reykjavík, verður lokuð vegna sumarleyfa vikuna frá og með mánudegi 30. júlí til þriðjudags 7. ágúst. Opnunartími í sumar er annars eins og vanalega virka daga frá 9.00-13.00

Sá glataði á NEATA-hátíð í Sønderborg

Dagana 31. júlí til 5. ágúst fer fram leiklistarhátíð Norður-evrópsku áhugaleikhússamtakanna, NEATA, í Sønderborg í Danmörku. Fulltrúi Íslands á hátíðinni verður Hugleikur með sýninguna Sá glataði í leikstjórn Ágústu Skúladóttur og er sú sýning opnunarsýning hátíðarinnar. Hátíðin stendur yfir í 5 daga og munu þar um 200 manns frá Norðurlöndunum, Eystrasaltslöndunum og víðar frá Evrópu […]

Pétur og úlfurinn í Selskógi

Þann 20. júlí nk. mun Leikfélag Fljótsdalshéraðs frumsýna leikritið Pétur og úlfurinn. Leikritið verður sýnt á sviðinu í Selskógi sem er hluti af Egilsstaðaskógi og eru það unglingar félagsins sem leika hlutverkin í verkinu en allir leikarar eru á aldrinum 13-16 ára. Verkið er byggt á tónverkinu Pétur og úlfurinn og  hefur Pétri Ármannssyni tekist […]

Áheyrnarpróf fyrir ASAD

Þann 21. júlí næstkomandi mun Leiklistar og leikjstórnarskólin ASAD (The Academy of the Science of Acting and Directing) halda inntökupróf í Reykjavík. Skólinn er staðsettur í Norður London og byrjar skólárið í byrjun september. Þeir sem hafa áhuga eða vilja frekari upplýsingar er bent á heimasíðuna www.asad.org.uk. Einnig er hægt að senda tölvupóst á info@asad.org.uk […]