Leikfélag Flateyrar

Formaður: Steinunn Ása Sigurðardóttir steinunnasa@gmail.com 8690866 Ritari: Kristbjörg Sunna Reynisdóttir ksunna68@gmail.com 8493446 Gjaldkeri: Jón Ágúst Þorsteinsson sirnonni@gmail.com 8470135 Meðstjórnandi: Viktor Páll Magnússon viktorpall12@gmail.com Meðstjórnandi: Mekkín Guðmundsdóttir mekkingudmundsdottir@gmail.com

Stoppleikhópurinn með aukasýningar á Hústökunni

Þriðjudaginn 8. maí og miðvikudaginn 9. maí kl. 20.00 sýnir Stoppleikhópurinn aukasýningar á leikritinu Hústakan eftir Hrund Ólafsdóttur. Bakgrunnur verksins er búsáhaldabyltingin 2008-2009. Leikstjórn og aðlögun fyrir leiksvið er í höndum Valgeirs Skagfjörð sem jafnframt semur tónlistina. Sýnt er í Leikhúsinu við Funalind 2 í Kópavogi og eru þetta síðustu sýningarnar á Hústökunni í leikhúsinu […]

Síðustu sýningar á Múnkhásen

Nú eru einungis eftir fjórar sýningar af fjölskyldusýningunnni Ævintýri Múnkhásens eftir Sævar Sigurgeirsson sem sýnt er í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Sýningum lýkur þann 19. maí en á tveimur síðustu sýningunum mun Ylfa Mist Helgadóttir leysa Söru Blandon af sem eldfjallaguðinn Vúlkan o.fl. Ævintýri Múnkhásens er lygileg sýning fyrir alla aldurshópa, full af ólíkindum, glensi og […]

Blóðbræður sýndir á Akranesi

Um þessar mundir standa yfir sýningar á söngleiknum Blóðbræður, eftir Willy Russell, í Bíóhöllinni á Akranesi. Söngleikurinn var frumsýndur sl. laugardag og hefur fengið vægast sagt frábærar viðtökur áhorfenda. Verkið er sett upp af Vinum Hallarinnar að tilefni 70 ára afmæli Bíóhallarinnar á Akranesi sem og til að endurreisa leiklistarstarf áhugamannaleikhúss á Akranesi. Einar Viðarsson […]

Stoppleikhópurinn sýnir Hústökuna

Laugardaginn 28. apríl sl. frumsýndi Stoppleikhópurinn Hústökuna, nýtt leikverk eftir Hrund Ólafsdóttur. Aðeins verður ein sýning til viðbótar og er hún í kvöld, miðvikudaginn 2. maí kl. 20.00. Leikstjórn og aðlögun fyrir leiksvið er í höndum Valgeirs Skagfjörð sem jafnframt semur tónlistina. Sýnt er í Leikhúsinu við Funalind 2 í Kópavogi.

Beðið eftir Godot frumsýnt 5. maí

Tímamótaverk Samuel Beckett, Beðið eftir Godot, verður frumsýnt í flutningi Pörupilta á Litla sviði Borgarleikhússins næstkomandi laugardag 5. maí. Árni Ibsen er þýðandi verksins og leikstjórn er í höndum Kristínar Jóhannesdóttur. Leikarar sýningarinnar eru pörupiltarnir Hannes, Smári, Nonni Bö og Dóri Maack og tveir drengir. Pörupiltar eru afsprengi Kvenfélagsins Garps sem stofnað var af nokkrum […]

Aukasýningar á Hringnum

Leikfélag Kópavogs sýndi nýtt íslenskt leikverk Hringinn í febrúar og mars síðastliðnum. Nú hefur verið ákveðið að bjóða upp á aukasýningar í byrjun maí. Verkið er eftir Hrefnu Friðriksdóttur, leikstjóri er Hörður Sigurðarson, Sváfnir Sigurðarson leggur til tónlist og hljóðmynd og Skúli Rúnar Hilmarsson hannar lýsingu. Aukasýningar verða fim. 3. maí, fös. 4. maí og sun. […]

Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir Tveir tvöfaldir

Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir Tveir tvöfaldir eftir Ray Cooney í þýðingu Árna Ibsen á opnunardegi Sæluvikunnar þann 29. apríl næstkomandi í Félagsheimilinu Bifröst á Sauðárkróki. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir. Leikfélag Sauðárkróks hefur áður sýnt leikrit eftir Ray Cooney, Með vífið í lúkunum, 2006 og Viltu finna milljón?, 2008, auk þess að frumflytja Ray Cooney á íslensku […]

Harpa Arnardóttir kennir trúðinn

Leiklistarskóli Bandalags ísl. leikfélaga auglýsir: Harpa Arnardóttir leikkona hefur tekið að sér að kenna á Trúðanámskeiði Leiklistarskólans í stað Ágústu Skúladóttur. Harpa Arnardóttir stundaði nám í málaradeild Myndlistar- og handíðaskóla Íslands 1984-1986 og útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands 1990. Hún hlaut Grímuna 2009 fyrir leik sinn í Steinar í djúpinu, en auk þess hefur hún fimm […]

Ekki einleikinn samningur hjá Act alone

Hin rótgróna einleikjahátíð Act alone verður haldin helgina 9.–12. ágúst á Suðureyri. Fisherman á Suðureyri og Act alone hafa gert með sér fimm ára samning um að byggja hátíðina upp svo hún festi sig enn frekar í sessi sem einn af hornsteinum í menningarflóru Vestfirðinga. Þessu tengt verður stofnað til vináttusambands við leikhópinn Vesturport um […]

Athyglisverðasta áhugaleiksýningin leikárið 2011-12

Ellefu leikfélög, með jafn margar sýningar, sækja um að koma til greina sem Athyglisverðasta áhugaleiksýningin leikárið 2011-12 og sýna verk sitt í Þjóðleikhúsinu í lok leikárs. Í dómnefnd Þjóðleikhússins í ár sitja Tinna Gunnlaugsdóttir, þjóðleikhússtjóri, Melkorka Tekla Ólafsdóttir, leiklistarráðunautur Þjóðleikhússins og Jana María Guðmundsdóttir, leikkona. Val dómnefndar verður tilkynnt á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga sem […]

Lokasýning á Andláti við jarðarför

Miðvikudaginn 25. apríl sýnir Leikfélag Mosfellssveitar síðustu sýningu sína á leikritinu Andlát við jarðarför en það er byggt á bresku kvikmyndinni Death at a funeral eftir Dean Craig. Leikstjóri er Guðný María Jónsdóttir og vann hún handrit verksins ásamt Maríu Guðmundsdóttur. Sýningin hefst klukkan 20.00.

Frumflutningur á óperettupari

Óperettuparið Fjársjóðurinn í tónlistarskólanum verður frumsýnt í Iðnó þriðjudaginn 24. apríl kl. 20.00. Fyrri hlutinn er Tónlistarskólinn, splunkunýtt verk eftir Þórunni Guðmundsdóttur og síðari hlutinn er óperettan Falinn fjársjóður eftir Offenbach í nýrri þýðingu Þórunnar. Flytjendur eru nemendur í Tónlistarskólanum í Reykjavík, 14 söngvarar og hljómsveit. Stjórnandi er Tryggvi M. Baldvinsson og leikstjóri er Þórunn […]

Afmælisveislan frumsýnd í Þjóðleikhúsinu

Afmælisveislan, eitt allra skemmtilegasta leikrit Nóbelsskáldsins Harolds Pinters, verður frumsýnd í Þjóðleikhúsinu nk. föstudag, 27. apríl. Verkið er nú frumflutt á sviði íslensks atvinnuleikhúss, í nýrri þýðingu Braga Ólafssonar. Leikstjóri sýningarinnar er Guðjón Pedersen. Afmælisveislan er fyrsta leikrit Harolds Pinters (1930-2008) í fullri lengd. Það var frumflutt árið 1958 og þykir tímamótaverk í leiklistarsögunni. Fyrstu […]

Nemendaleikhús LHÍ frumsýnir Óraland

Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands frumsýnir föstudaginn 20. apríl Óraland, nýtt íslenskt leikrit. Þetta er síðasta verk vetrarins og í raun síðasta sýning Nemendaleikhússins í þeirri mynd sem það hefur starfað hingað til. Verkið er spunaverk og samið af leikaranemunum sjálfum í samvinnu við listræna stjórnendur sýningarinnar, þau Jón Atla Jónasson og Unu Þorleifsdóttur.

Átta konur á Höfn

Leikfélag Hornafjarðar, í samstarfi við Framhaldsskólann í Austur Skaftafellssýslu, frumsýnir föstudaginn 20. apríl leikritið Átta konur sem er franskur sakamálafarsi eftir Robert Thomas. Verkið var sýnt í Þjóðleikhúsinu leikárið 2005 til 2006 og kvikmyndaútgáfan af því vann til verðlauna í Cannes árið 2002. Leikritið var eitt af vinsælustu gamanleikritum á sviði í Bretlandi síðastliðin ár. […]

Sólheimaleikhúsið frumsýnir Kardimommubærinn

Stór og flottur hópur íbúa Sólheima og nágrennis æfir þessa dagana leikritið um hinn friðsæla Kardimommubæ og fólkið þar eftir Thorbjörn Egner. Frumsýning verður að venju sumardaginn fyrsta 19. apríl kl. 15:00 í Íþróttaleikhúsinu. Leikstjóri er Þórný Björk Jakobsdóttir sem einnig staðfærir verkið.

Aukasýning á La Bohème 21. apríl

Vegna mikillar eftirspurnar eftir miðum hefur annarri aukasýningu verið bætt við á La Bohème, laugardagskvöldið 21. apríl kl. 20. Mun þetta verða allra síðasta sýningin á þessari vinsælu og fallegu sýningu sem hefur slegið í gegn hjá áhorfendum, en rúmlega 9.000 miðar hafa þegar selst á sýninguna og þarf að leita aftur á síðustu öld að viðlíka […]

Allra síðasta sýning á Enginn með Steindóri

Sýning Leikfélags Hofsóss á Enginn með Steindóri eftir Nínu Björk Jónsdóttur í leikstjórn Ingridar Jónsdóttur hefur fengið mjög góðar viðtökur leikhússgesta. Því hefur verið ákveðið að bæta við einni aukasýningu að kvöldi síðasta vetrardags, miðvikudaginn 18. apríl kl. 21:00.

Tveir tvöfaldir á Króknum

Leikfélag Sauðárkróks æfir nú leikritið Tveir tvöfaldir eftir Ray Cooney, í þýðingu Árna Ibsen. Leikstjóri er Ingdrid Jónsdóttir. Leikritið verður frumsýnt á opnunardegi Sæluvikunnar, þann 29. apríl næstkomandi í félagsheimilinu Bifröst. Leikfélag Sauðárkróks sýndi verk efir Ray Cooney fyrst árið 1978, leikritið Eltu mig félagi, sem var fyrsta sviðsetning á leikriti eftir Ray Cooney á […]

Skráningar í Leiklistarskólann 2012

Sunnudagurinn 15. apríl er síðasti skráningardagur á námskeiðin í Leiklistarskóla Bandalags ísl. leikfélaga 2012. Þó er skráningartíminn framlengdur á Trúðanámskeiðið þar sem leit stendur yfir að nýjum kennara í stað Ágústu Skúladóttur sem var því miður að hætta við. Tilkynning um nýjan kennara og nýjan síðasta skráningardag á námskeiðið verður sett inn þegar allt er […]

Herra Pottur og ungfrú Lok í Kaldalóni

Óperarctic félagið setti upp barna- og fjölskyldusýninguna Herra Pottur og ungfrú Lok í samvinnu við Þjóðleikhúsið, í Kúlunni á Listahátið í Reykjavík vorið 2010. Sýningin fékk afar góðar viðtökur og hlaut lofsamlega dóma þar sem fyrirsögn gagnrýnandans var „Frábær kennslustund í menningu“. Sýningin, í leikstjórn Ágústu Skúladóttur, hlaut á síðasta ári tilnefningu til Grímuverðlauna sem […]

Svar við bréfi Helgu frumsýnt á Nýja sviðinu

Hin margrómaða ástarsaga Bergsveins Birgissonar verður frumsýnd á Nýja sviði Borgarleikhússins á föstudaginn 27. apríl næstkomandi. Hér er á ferðinni hrífandi saga um þrá og eftirsjá. Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2010 og valin besta skáldsaga ársins að mati bóksala það sama ár. Aðstandendur sýningarinnar eru margir hverjir þeir sömu og sviðsettu Fólkið […]

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 2012

bil_island_logo

Fundurinn verður settur laugardagsmorguninn 5. maí kl. 9.00 og honum slitið um hádegisbil sunnudaginn 6. maí. Gist verður á Hótel Ísafirði, Silfurtorgi 2, en fundurinn og maturinn verða í Edinborgarhúsinu. Val Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugasýningu leikársins verður að venju kynnt á hátíðakvöldverðinum.

Allra síðasta sýning á Sólarferð

Nú er hver að verða síðastur til að sjá þessa stórskemmtilegu uppfærslu Leikfélags Selfoss á Sólarferð eftir Guðmund Steinsson því nú er komið að allra síðustu sýningu! Hún verður sýnd miðvikudaginn 4. apríl kl. 20 í Litla leikhúsinu á Selfossi. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson.

Leikfélag Ólafsfjarðar sýnir Sex í sveit

Leikfélag Ólafsfjarðar frumsýnir þann 5. apríl nk. farsann Sex í sveit eftir Marc Camoletti, en Gísli Rúnar Jónsson, þýddi og staðfærði. Leikstjóri er Saga Jónsdóttir og verða sýningar í Tjarnarborg. Sex í sveit er farsi af hröðustu gerð, og áhorfendur þurfa að hafa sig alla við til að fylgjast með flækjunni og innbyrða alla brandarana […]

Grjóthaldið kjafti frumsýnt á Dalvík

Miðvikudaginn 4. apríl frumsýnir Leikfélag Dalvíkur gamanleikritið Grjóthaldiði kjafti eftir breska leikskáldið Michael Frayn í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Leikstjóri er Aðalsteinn Bergdal, lýsingu hannaði Pétur Skarphéðinsson og hönnun sviðsmyndar er í höndum Kristjáns Guðmundssonar, Árna Halls Júlíussonar og Aðalsteins Bergdal.

Leikfélag A-Eyfellinga

Formaður: Guðrún Inga Sveinsdóttir ingaogasi@simnet.is leikfelausture@gmail.com 8460781 Gjaldkeri: Guðbjörg Konráðsdóttir gkonrads@me.com 8430766 Ritari: Margrét Tryggvadóttir mtrygg@ismennt.is Sími 8248889  

Stúdentaleikhúsið frumsýnir Rof

Þann 4. apríl næstkomandi frumsýnir Stúdentaleikhúsið nýtt íslenskt leikverk í leikstjórn Ragnheiðar Skúladóttur (fyrrverandi deildarforseta leiklistardeildar LHÍ). Stúdentaleikhúsið samanstendur af 12 upprennandi sviðslistamönnum sem komu saman í janúar og lögðu upp með að gera sýningu út frá „devised“ aðferðum. Í hópnum eru meðal annars tveir tilvonandi leikarar sem fengu inngöngu í leikaradeild Listaháskóla Íslands nú […]

Banastuð í Vestmannaeyjum

Föstudaginn 30. mars frumsýnir Leikfélag Vestmannaeyja söngleikinn Banastuð sem er byggður á bandarísku B-myndunum The Evil Dead I og II og Army of Darkness. Um er að ræða hressilegan og fyndinn söngleik með blóðugu ívafi og er sýningin mjög tæknilega krefjandi fyrir félagið. Fimm ungmenni stela kari og róa út í Elliðaey þar sem brotist […]

Síðustu sýningar hjá Umf. Reykdæla

Sýningum á revíunni Ekki trúa öllu sem þú heyrir (og ekki trúa öllu sem þú sérð) sem Ungmennafélag Reykdæla sýnir um þessar mundir í félagsheimilinu Logalandi fer nú fækkandi. Leikritið hefur fengið mjög góðar viðtökur og þykir skemmtileg innansveitarkróníka en efnið á þó vel við víðar en Borgarfjörðinn. Sýnt er í kvöld, miðvikudag og næsta […]

Leikfélagið Peðið frumsýnir Lamb fyrir tvo

Hvernig myndurðu bregðast við  ef að gesturinn á næsta borði við þig á veitingastað fengi að borða matinn þinn? Líklega yrðir þú hissa, síðan reiður, og síðan myndirðu líklega hringja á lögguna. Það er einmitt það sem gerist í leikritinu Lambi fyrir tvo sem frumsýnt verður á Gallerý Bar 46, Hverfisgötu 46 á laugardaginn kemur. […]

Tengdó frumsýnt á Litla sviðinu

Tengdó, nýtt leikverk eftir Val Frey Einarsson, verður frumsýnt á litla sviðinu næstkomandi fimmtudagskvöld, 29. mars, kl. 20. Hér er ráðist í gerð heimildaleikhúss þar sem skyggnst verður í persónulega sögu listamannanna. Leikhópurinn CommonNonsense hefur vakið athygli fyrir nýstárlegar sýningar sem ramba á barmi myndlistar og leikhúss. Þau hafa áður m.a. sett upp Hrærivélina, CommonNonsense […]

Síðasta tækifæri til að sjá Súldarsker

Sérstök aukasýning verður á Súldarskeri eftir Sölku Guðmundsdóttur í Tjarnarbíói miðvikudagskvöldið 28. mars kl. 20. Þessi bráðskemmtilega sýning sló rækilega í gegn þegar hún var frumsýnd í fyrra og hlaut mikið lof gagnrýnenda og áhorfenda, en sýningum var hætt fyrir fullu húsi vegna anna. Meðal annars var Súldarsker tilnefnt til tvennra Grímuverðlauna. Hópurinn er nýkominn […]

Ávarp Maríu Kristjánsdóttur á alþjóða leikhúsdeginum

„Verið velkomin í leikhúsið og slökkvið vinsamlegast á farsímanum“. Þessi  hefðbundnu orð, sem hljóma nú í upphafi hverrar leiksýningar, eru lausnarorð. Þau skapa ráðrúm til að aftengja sig frá nútíma nauð. Þau skapa þögn og í þögninni gangast leikendur og áhorfendur undir það samkomulag sem  þeir gerðu sín í millum fyrir öldum og aldrei hefur […]

Alþjóða leikhúsdagurinn 27. mars

Hinn þekkti bandaríski leikari og leikstjóri John Malkovich hefur samið ávarp alþjóða leikhúsdagsins í ár. Það er mér heiður að verða við beiðni Alþjóðlegu leiklistarstofnunarinnar um að skrifa ávarp í tilefni af alþjóðaleikhúsdeginum sem nú er haldinn hátíðlegur í 50 sinn. Ég beini eftirfarandi orðum til kollega minna í leikhúsinu, félaga og samferðamanna.

Stútungasaga í Borgarnesi

Leikfélag Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar frumsýnir leikritið Stútungasögu föstudaginn 23. mars kl. 20:00. Leikritið Stútungasaga er eftir Ármann Guðmundsson, Þorgeir Tryggvason, Sævar Sigurgeirsson og Hjördísi Hjartardóttur og er í leikstjórn Stefáns Benedikts Vilhelmssonar. Sýningar fara fram í sal MB.

Sýningum fer fækkandi hjá Leikfélagi Selfoss

Nú fer hver að verða síðastur að sjá þessa stórskemmtilegu uppfærslu Leikfélags Selfoss á Sólarferð eftir Guðmund Steinsson. Verkið hefur fengið frábærar viðtökur og hefur verið uppselt á hverja sýninguna á fætur annarri. Leikritið gerist á miðjum áttunda áratugnum og fjallar um ferð nokkurra íslenskra hjóna til Costa del Sol. Þau ætla sannarlega að njóta […]

Kómedíuleikhúsið frumsýnir Náströnd – Skáldið á Þröm

Kómedíuleikhúsið býður upp á enn eina frumsýninguna á nýju íslensku leikverki föstudaginn 23. mars nk. Það heitir Náströnd – Skáldið á Þröm og er alþýðlegt leikrit um alþýðuskáldið Magnús Hj. Magnússon, betur þekktan sem skáldið á Þröm, en hann var fyrirmynd Halldórs Kiljan Laxness að Ólafi Kárasyni í Heimsljósi. Verkið verður frumsýnt á söguslóðum skáldsins […]

Hótel Volkswagen frumsýnt 24. mars

Hótel Volkswagen, nýju íslenskt verk eftir Jón Gnarr í leikstjórn Benedikts Erlingssonar verður frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhúsisns nk laugardag 24. mars kl 20. Jón Gnarr skrifaði verkið í embætti sínu sem leikskáld Borgarleikhússins á síðasta leikári áður en hann lét af því embætti til að taka við embætti borgarstjóra Reykjavíkur. Hótel Volkswagen er leikrit […]