Author: lensherra

Frumsýning á Rigoletto í Íslensku óperunni

Óperan Rigoletto eftir Giuseppe Verdi verður frumsýnd í Íslensku óperunni næstkomandi laugardagskvöld, 9. október kl. 20. Aðalsöngvararnir í verkinu eru íslenskum óperuunnendum að góðu kunnir, en þeir eru Ólafur Kjartan Sigurðarson sem Rigoletto, en hann hefur haslað sér völl sem einn fremsti óperusöngvari Íslands á erlendri grundu undanfarin misseri, Þóra Einarsdóttir sem Gilda og Jóhann Friðgeir Valdimarsson sem Hertoginn af Mantua. Í öðrum hlutverkum eru Jóhann Smári Sævarsson sem Sparafucile, Sesselja Kristjánsdóttir sem Maddalena og Bergþór Pálsson sem Monterone, auk þess sem Bylgja Dís Gunnarsdóttir, Ágúst Ólafsson, Hlöðver Sigurðsson og Bragi Jónsson syngja minni hlutverk. Sunnudaginn 14. nóvember, bregður Sigrún Hjálmtýsdóttir –...

Read More

Hauststarf Halaleikhópsins að hefjast

Starfsemi Halaleikhópsins leikárið 2010-11 hefst með félagsfundi í Halanum, Hátúni 12. Kl. 20.00, þann 2. október þar sem verkefni leikársins verða kynnt. Aðalverkefnið er gamanleikurinn Góðverkin kalla eftir þríeykið Ármann Guðmundsson, Þorgeir Tryggvason og Sævar Sigurgeirsson, sem frumsýnt verður eftir áramót, en ráðnir hafa verið tveir leikstjórar til að setja verkið upp, þau Oddur Bjarni Þorkelsson og Margrét Sverrisdóttir. Þau munu einnig halda námskeið í haust með yfirskriftinni Hvernig skapar maður persónu? Góðverkin kalla! er gamanleikrit sem gerist á Gjaldeyri við Ystunöf þar sem lífið snýst um góðverk. Allir sem ekki hafa tapað glórunni, lifa fyrir starfsemi góðgerðafélaga sem...

Read More

Áhugaleikhúss atvinnumanna sýnir September

September, örverk um sekt og sakleysi, verður sýnt í beinni útsendingu á www.herbergi408.is kl. 12.30 fimmtudaginn 30. september frá Útgerð Hugmyndahús háskólanna við Grandagarð. Verkið er níunda örverkið af 12 sem Áhugaleikhús atvinnumanna býður áhorfendum upp á endurgjaldslaust. Verkin taka á áráttum, kenndum og kenjum sem hafa áhrif á mannlega tilvist í Reykjavík 2010 og eru kennd eftir þeim mánuði sem þau eru flutt í. Viðfang verkanna ræðst af því sem hrærist í samtímanum og hefur áhrif á líf okkar. Áhugaleikhúsið veltir nú fyrir sér sekt og sakleysi þjóðarinnar, hlutverki dæmenda og réttlæti dóma. Leikstjóri er Steinunn Knútsdóttir. Áhorfendur...

Read More

Hvað býr í pípuhattinum? sýnt í Útgerðinni og Kjarnanum

Hvað býr í pípuhattinum? er lifandi innsetning eða lifandi leikvöllur fyrir börn og fullorðna (eða jafnvel börn á öllum aldri), sem opnaður verður í Útgerðinni, Grandagarði 16, á laugardaginn næstkomandi, þann 2. október. Verkið er unnið af 4 listamönnum sem koma úr hinum ýmsu geirum listaheimsins; Sunnu Schram, myndlistakonu, Hannesi Óla Ágústssyni og Ævari Þór Benediktssyni, leikurum og Ragnheiði Bjarnarson, dansara og fjöllistakonu en hún er einmitt heilinn á bak við verkið og verkefnastýra þess. Verkið sækir innblástur sinn í sögurnar um Ævintýri Múmínálfanna, hugmyndafræði og hugarheim þeirra. Hver af listamönnunum kynnti sér sögurnar um Múmínálfana og vann síðan...

Read More

Lokað um óákveðinn tíma

Bandalag íslenskra leikfélaga varð fyrir miklu tjóni þegar brotist var inn á skrifstofu þess á Suðurlandsbrautinni aðfaranótt mánudagsins og öllum tölvubúnaði hennar stolið. Vegna þessa verður skrifstofan lokuð um óákveðinn tíma. Því miður glataðist allt bókhald fyrirtækisins og því þarf að setja upp nýtt sölukerfi áður en hægt verður að opna fyrir verslunina á ný. Tölvurnar 4 sem stolið var voru allar Makkar, sú verðmætasta af tegundinni iMac 24″ en það er sambyggð tölva og skjár eins og sést  á meðfylgjandi mynd. Hinar eru Mac Mini og tveir turnar af gerðinni PowerMac G4, annar silfurlitur og hinn blár. Ef...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert