Bannað börnum í Freyvangsleikhúsinu
Fimmtudaginn 30. september verður erótíska hryllingskómedían Bannað börnum frumsýnd í Freyvangsleikhúsinu í Eyjafjarðarsveit. Bannað börnum sem er leikrit í fullri lengd er nýjasta viðbótin í „Haustverkefni Freyvangsleikhússins“ sem hleypt var af stokkunum síðasta haust með uppsetningu á Memento Mori eftir Hrefnu Friðriksdóttur. Bannað börnum er frumsamið verk eftir fjóra meðlimi Freyvangsleikhússins, þá Daníel Frey Jónsson, Hjálmar Arinbjarnarson, Karl Pálsson og Sverri Friðriksson en Daníel leikstýrir jafnframt sýningunni. Verkið var samið núna í sumar og byggir á íslenskum þjóðsögum um álfa og uppvakninga þó það gerist í nútímanum. Ungur maður hefur komist á snoðir um undarleg mannshvörf og tengir þau...
Read More


