Author: lensherra

Fólkið í kjallaranum í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 9. október frumsýnir Borgarleikhúsið nýtt íslenskt leikverk, leikgerð Ólafs Egils Egilssonar á Fólkið í kjallaranum eftir Auði Jónsdóttur. Leikstjóri er Kristín Eysteinsdóttir. Auður Jónsdóttir var fyrsta fastráðna leikskáld Borgarleikhússins og vinnur nú að ritun leikverks fyrir leikhúsið. Klara og Svenni búa í Hlíðunum í Reykjavík, eru í góðri vinnu og lífið brosir við þeim. Eitt fallegt sumarkvöld eiga þau von á vinum í mat. Lagt hefur verið á borð, grillið er klárt og tónlistin ómar. En í kvöld breytist allt. Klara er neydd til að horfast í augu við sjálfa sig og sína nánustu. Atvik úr fortíðinni skjóta...

Read More

Borgarstjóri opnar Tjarnarbíó formlega í dag

Eftir gagngerar endurbætur Reykjavíkurborgar mun Borgastjórinn í Reykjavík opna Tjarnarbíó formlega föstudaginn 8. Okt kl. 17. Við opnunina mun Sirkus Íslands og Margrét Eir skemmta gestum ásamt því að borgarstjóri og Jóhann G. Jóhannsson, formaður SL flytja stutt ávörp. Með þeim breytingum sem Reykjavíkurborg hefur gert á þessu fornfræga húsi hefur aðstaða fyrir listviðburði að móttöku gesta tekið algjörum stakkaskiptum.  Salurinn er orðin að hluta til svartur kassi með færanlegum bekkjum til að mæta betur þrörfum mismunandi listviðburða. Búið er að byggja yfir portið nýtt anddyri en þar mun Áslaug Snorradóttir og Anna Elínborg opna kaffihúsið Majónes. Gamla anddyrið...

Read More

Jón Oddur og Jón Bjarni á Króknum

Hjá Leikfélagi Sauðárkróks eru æfingar á barnaleikritinu Jóni Oddi og Jóni Bjarna vel á veg komnar. Tvíburarnir frægu eru hugarfóstur Guðrúnar Helgadóttur en leikritið var fyrst sett upp í Þjóðleikhúsinu 2002 í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar. Stjórn Leikfélags Sauðárkróks tók þá óvenjulegu ákvörðun að ráða til sín tvo leikstjóra til að stýra verkinu,  heimafólkið Sigurlaugu Vordísi Eysteinsdóttur og Stefán Friðrik Friðriksson. Alls koma um 40 manns að uppsetningunni, þar af 18 leikendur og stefnt er að frumsýningu í Félagsheimilinu Bifröst sunnudaginn 31.október. Fylgist með fréttum af gangi mála á heimasíðunni ...

Read More

Aukasýning á Þú ert hér 8. október

Í tilefni af Keðju – alþjóðlegri sviðslistahátíð í Reykjavík þann 8. október verður sýnd ein aukasýning af leikritinu Þú er hér eftir þá  Hall Ingólfsson, Jón Atla Jónasson og Jón Páll Eyjólfsson, sem jafnframt leika og leikstýra sýningunni. Sýningin vakti mikla athygli þegar hún var frumsýnd árið 2008 sem svar Borgarleikhússins og Mindgroup við þeim þrengingum sem þjóðin var að ganga gegnum. Hún var tilnefnd til fimm Grímuverðlauna, m.a. sem sýning ársins. Sýningin er flutt á ensku. Þrír menn eru staddir í rústum. Þeir uppgötva að veröld þeirra er liðin undir lok og að þeir verða að læra að...

Read More

Frumsýning á Rigoletto í Íslensku óperunni

Óperan Rigoletto eftir Giuseppe Verdi verður frumsýnd í Íslensku óperunni næstkomandi laugardagskvöld, 9. október kl. 20. Aðalsöngvararnir í verkinu eru íslenskum óperuunnendum að góðu kunnir, en þeir eru Ólafur Kjartan Sigurðarson sem Rigoletto, en hann hefur haslað sér völl sem einn fremsti óperusöngvari Íslands á erlendri grundu undanfarin misseri, Þóra Einarsdóttir sem Gilda og Jóhann Friðgeir Valdimarsson sem Hertoginn af Mantua. Í öðrum hlutverkum eru Jóhann Smári Sævarsson sem Sparafucile, Sesselja Kristjánsdóttir sem Maddalena og Bergþór Pálsson sem Monterone, auk þess sem Bylgja Dís Gunnarsdóttir, Ágúst Ólafsson, Hlöðver Sigurðsson og Bragi Jónsson syngja minni hlutverk. Sunnudaginn 14. nóvember, bregður Sigrún Hjálmtýsdóttir –...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert