Jesús litli kemur með jólin

Sýningar á Jesú litla eru orðnar fastur liður í undirbúningi jólanna hjá mörgum Íslendingum og hann snýr aftur á Litla sviðið 4. desember. Þetta er í fjórða sinn sem Jesús litli er sýndur í Borgarleikhúsinu í aðraganda jólanna og ekkert lát á vinsældum hans. Sýningin var ótvíræður sigurvegari Grímunnar árið 2010, hlaut alls 7 tilnefningar […]
Ársrit Bandalagsins 2011–12 komið út

Nú er ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið komið út 2011–2012. Eins og í fyrra verður því aðeins dreift hér á Leiklistarvefnum í pdf-formati. Í ársritinu eru allar helstu upplýsingar um starfsemi Bandalagsins og aðildarfélaga þess og umtalsvert magn af myndum víðsvegar af úr starfinu. Kjörið til að láta liggja frammi í húsnæði félagsins svo að leikfélagsfélagar […]
Jólaleg dagskrá hjá LA í desember

Mikið verður um að vera hjá Leikfélagi Akureyrar í desember, tvö jólaleikrit verða á fjölum þess auk þess sem leikfélagið stendur fyrir leiklestri í samvinnu við Akureyrarakademíuna og Minjasafn Akureyrar og hefur hann hlotið nafnið Upprisa hinna nafnlausu. Jólaleikritin eru Ef ég væri jólasveinn… og Ævintýrið um Augastein eftir Felix Bergsson.
Jólaævintýrið sýnt í Iðnó

Jólaleikrit Borgarbarna þessi jól ber nafnið Jólaævintýrið og er eftir Erlu Ruth Harðardóttur sem jafnframt leikstýrir. Er þetta sjöunda árið í röð sem Borgarbörn setja upp jólasýningu og hafa þær allar notið mikilla vinsælda. Verkið verður frumsýnt í Iðnó 1. desember og sýnt í desember. Sýningin er rétt undir klukkustund í flutningi.
Hinn eini sanni jólaandi frumsýnt á Litla sviðinu

Næstu helgi hefjast sýningar á jólasöguni Hinn eini sanni jólaandi eftir Guðjón Davíð Karlsson á Litla sviði Borgarleikhússins. Hér er á ferðinni notarleg sögustund fyrir alla fjölskylduna í flutningi Góa og Þrastar, kærkomið tækifæri til að kúpla sig út úr jólaösinni og eiga stund saman í leikhúsinu. Að sýningu lokinni verður boðið upp á kakó […]
Aukasýningar á Bjarmalandi

Leikfélagið Peðið gefur ekkert eftir og býður uppá 3 aukasýningar á óperunni Bjarmalandi II eftir Jón Benjamín Einarsson. .Sýnt er í Kjallaranum Laugarvegi 73 og miðapantanir eru í síma 866 7677. Tónlist og leikstjórn er í höndum Andreu Gylfadóttur. Velkomin til Bjarmalands!
Leiklistarnámskeið á Melum í Hörgárdal

Leikfélag Hörgdæla verður með leiklistarnámskeið á Melum í Hörgárdal þriðjudaginn 27., miðvikudaginn 28. og fimmtudaginn 29. nóvember nk. kl. 20:30. Leiðbeinandi er Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri og mun hann m.a. taka fyrir draugasögur, ljóðalestur og grímuleik. Einnig verður verkefni vetrarins, Djákninn á Myrká, skoðað. Allir velkomnir. Námskeiðisgjald 3.000 kr., frítt fyrir skuldlausa félagsmenn. Nánari upplýsingar […]
Ef ég væri jólasveinn

Leikfélag Akureyrar frumsýnir leikritið Ef ég væri jólasveinn, sannkallað jólaævintýri fyrir börn á öllum aldri, þann 25. nóvember nk. Sveinn J. Ólason er ungur drengur í Giljaskóla og á þann draum heitastan að vera jólasveinn. Getur verið að ósk hans rætist? Sýnt verður í Samkomuhúsinu á sunnudögum til 9. desember.
Ekkert venjulegt brúðkaup

Leikdeild Umf. ÍslendingsSmáborgarabrúðkaupeftir Bertold Brechtþýðing Þorsteinn Þorsteinssonleikstjórn Ingrid Jónsdóttir Það er brúðkaupsveisla og þar eru glæsileg brúðhjón ásamt fjölskyldu sinni og vinum sem eru komnir til að skála fyrir þeirra björtu framtíð. Veisluborðið er þrungið mat og víni, það er ljósadýrð og prúðbúnir gestirnir ganga um og spjalla um hvað þetta sé nú allt efnilegt […]
Macbeth í Þjóðleikhúsinu, miðasala hafin

Jólafrumsýning Þjóðleikhússins í ár er Macbeth eftir Shakespeare í leikstjórn hins margverðlaunaða leikstjóra Benedicts Andrews. Miðasala er hafin en sýningatímabilið verður óvenju stutt, einungis verður sýnt út janúar. Margir bíða jólafrumsýningar Þjóðleikhússins með eftirvæntingu og sýningin á Macbeth verður sannkölluð hátíðarsýning. Einn af eftirsóttari leikstjórum samtímans leikstýrir Birni Thors í hlutverki Macbeths og Margréti Vilhjálmsdóttur […]
Ekki alveg barn og ekki alveg fullorðinn

Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir frumsamið leikverk er nefnist Milli tveggja heima, fimmtudaginn 22. nóvember kl. 20.00. Milli barnæsku og fullorðinsára er undarlegur heimur unglingsáranna. Spennandi og ógnvænlegur í senn, og ekki alltaf blíður þeim sem hann gista.„Hvernig er að vera ung manneskja í samfélagi okkar nútildags?“ Þannig spurðu krakkarrnir í unglingadeild Leikfélags Kópavogs sjálf sig […]
Leikfélag Mosfellssveitar sýnir Hamagang í helli mínum

Sunnudaginn 18. nóvember var leikritið Hamagangur í helli mínum frumsýnt hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Þetta er nýtt íslenskt jólaleikrit fyrir alla fjölskylduna eftir Maríu Guðmundsdóttur. Leikstjórar eru Ólöf Þórðardóttir og Eva Björg Harðardóttir. Um tuttugu manns koma að sýningunni sem er full af söng, glensi og gríni. Sýningar verða í Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ á sunnudögum kl. 16.
Enn er leitað að jólunum í Þjóðleikhúsinu

Áttundu aðventuna í röð sýnir Þjóðleikhúsið ævintýrið Leitina að jólunum. Undanfarin sjö ár hefur verið uppselt á allar sýningarnar og ef fer sem horfir verða 200 uppseldar sýningar á þessu skemmtilega aðventuævintýri komnar í hús fyrir jól. Það er því um að gera að bregðast skjótt við því að miðarnir renna út eins og heitt […]
Silfurtunglið frumsýnir Ég var einu sinni frægur

Leikhópurinn Silfurtunglið frumsýnir föstudaginn 23. leikverkið Ég var einu sinni frægur þar sem stórleikararnir Þráinn Karlsson, Gestur Einar og Aðalsteinn Bergdal leika sig sjálfa, gamla, bitra, geðilla leikara sem halda að þeir séu virtir, dáðir og sívinsælir. Sýningin gerist á Kanarí og fjallar um ferð eldri borgara frá Akureyri til Kanarí sem fer algjörlega úr […]
Ást á Húsavík

Leikfélag Húsavíkur hefur að undanförnu æft Söngleikinn Ást eftir þá Vesturportsfélaga Gísla Örn Garðarsson og Víking Kristjánsson. Söngleikurinn Ást er íslensk saga, sem tekur á ástinni á fjörugum nótum en – eins og vera ber – með alvarlegum undirtón. Víst er, að áhorfendur munu skemmta sér konunglega og finna til samúðar með persónum verksins – […]
Síðustu sýningar á Rummungi ræningja

Nú fer hver að verða síðastur að sjá Rummung ræningja hjá Leikfélag Ölfuss því nú fara í hönd síðustu sýningar á þessu þýska fjölskylduleikriti eftir barnabókahöfundinn og leikskáldið Otfried Preussler. Þetta er ævintýri eins og þau gerast best og koma við sögu máttug galdranorn, talandi froskur, spilandi kaffikvörn, sex fötur af kartöflum og svo auðvitað […]
Kæra Jelena í Verslunarskólanum

Listafélag Verslunarskóla Íslands sýnir um þessar mundir leikritið Kæra Jelena í leikstjórn Bjartmars Þórðarsonar. Leikritið var skrifað árið 1980 í Sovétríkjunum, þar sem sagan á sér stað, og uppreisn ríkti á meðal ungu kynslóðarinnar. Ljúdmíla Razúmovskaja er höfundur verksins. Yfirvöld lögðu í fyrstu bann við sýningu þess en árið 1986 sló það í gegn. Síðan […]
Spunanámskeið í Gaflaraleikhúsinu

Leikfélag Hafnarfjarðar heldur námskeið í spuna og leikhússporti næstu 5 laugardaga í Gaflaraleikhúsinu frá kl. 14.00 til 17.00. Námskeiðinu lýkur laugardagskvöldið 15 desember með æsispennandi leikhússportkeppni. Leiðbeinandi er Gísli Björn Heimisson, Norðurlandameistari í Leikhússporti. Hámarksfjöldi nemenda er 12 og námskeiðsverð er 8.000 krónur. Skráning fer fram í namskeid@gaflaraleikhusid.is (fyrstur kemur fyrstur fær).
Stúdentaleikhúsið frumsýnir Nashyrningana

Stúdentaleikhúsið í samstarfi við Norðurpólinn sýnir eitt helsta verk Absúrdleikhússins, Nashyrningana, eftir franska skáldið Eugéne Ionesco. Verkið er nú sýnt í fyrsta sinn á Íslandi í 23 ár en þess hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Stúdentaleikhúsið hefur leikið sig inn í hjörtu landsmanna með framsæknum sýningum í áraraðir og nú verður sannarlega haldið í […]
Ævintýrið um Augastein í Tjarnarbíói

Ævintýrið um Augastein er hugljúft jólaævintýri sem frumsýnt var fyrir 10 árum og hefur verið sýnt reglulega á aðventunni bæði hér á landi og í Bretlandi. Nú hafa orðið kynslóðaskipti í sýningunni, því Orri Huginn Ágústsson er tekinn við af Felix Bergssyni, sem hefur borið uppi sýninguna frá byrjun. Ævintýrið um Augastein var upphaflega samið á ensku og frumsýnt […]
Ertu með hugmynd að sögu, leikriti eða kvikmynd?

Ritsmiðja verður sett á laggirnar 21. nóvember næstkomandi. Farið verður í gegnum bókina Anatomy of Story eftir John Truby. Aðferðir Trubys við að skrifa sögur verða skoðaðar og ræddar. Ritsmiðjan verður haldin á þriðjudagskvöldum fram í febrúar á næsta ári. Á þeim tíma mun hver þátttakandi skrifa eigið verk; smásögu, skáldsögu, leikrit eða kvikmyndahandrit.
Velkomin til Bjarmalands!

Föstudagskvöldið 9. nóvember kl. 21.00 frumsýnir Leikfélagið Peðið óperuna Bjarmaland II eftir Jón Benjamín Einarsson í Kjallaranum Laugarvegi 73. Tónlist og leikstjórn er í höndum Andreu Gylfadóttur. Bjarmaland II er sjálfstætt framhald óperunnar Bjarmaland rísandi land, sem flutt var af Peðinu í fyrra. Þá kynntumst við ástföngnu fólki sem var í giftingarhugleiðingum á barnum.
Ruglaður ræningi, geggjuð galdranorn og spilandi kaffikvörn

Leikfélag ÖlfussRummungur ræningieftir Otfried PreußlerLeikstjóri: Ármann Guðmundsson Það er skemmtileg ævintýrastemning í Ráðhúsi sveitarfélagsins Ölfus í Þorlákshöfn um þessar mundir, en þar sýnir Leikfélag Ölfuss fjölskylduleikritið Rummung ræningja eftir Otfried Preußler í þýðingu og leikstjórn Ármanns Guðmundssonar. Verkið er 9. verkefni L.Ö. frá því að félagið var vakið úr dvala árið 2005, en félagið stendur […]
Gamli maðurinn á fjalirnar að nýju

Brúðuheimar með Bernd Ogrodnik brúðulistamann í fararbroddi, settu upp sýninguna Gamli maðurinn og hafið á Listahátíð í vor í samvinnu við Þjóðleikhúsið. Sýningin fékk frábærar viðtökur og var sýningum hætt fyrir fullu húsi í sumarbyrjun. En nú er Bernd mættur heim til Íslands til að færa Gamla manninn og hafið upp að nýju í Þjóðleikhúsinu […]
Fíasól á Króknum

Næstkomandi laugardag, 3. nóvember, frumsýnir Leikfélag Sauðárkróks barnaleikritið Fíasól eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur, í leikgerð hennar og Vigdísar Jakobsdóttur. Fjórir leikarar standa á sviðinu, auk þess sem tæknimaður sýningarinnar er rödd utansviðs sem og á upptöku, en nokkrir leikarar félagsins tóku upp leiklestur fyrir útvarpsraddir og raddir fyrir símtöl. Leikstjórar eru heimafólkið Guðný H. Axelsdóttir […]
Fjögur verk í undirbúningi í Þjóðleikhúsinu

Í Þjóðleikhúsinu er hafinn undirbúningur fyrir þrjár sýningar sem frumsýndar verða eftir áramót og í næstu viku hefjast æfingar á Macbeth, jólasýningu Þjóðleikhússins. Síðustu daga hafa leikhópar þriggja sýninga sem frumsýndar verða eftir áramót í Þjóðleikhúsinu hafið undirbúningsvinnu. Fyrst má þar nefna nýtt íslenskt verk sem sérstaklega var skrifað fyrir Þjóðleikhúsið, Karma fyrir fugla, eftir […]
Gullregn frumsýnt á Nýja sviðinu

Gullregn Ragnars Bragasonar verður frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins 1. nóvember næstkomandi. Gullregn er mannlegt og broslegt en um leið harmrænt verk um fólk sem við þekkjum öll. Hér birtast Íslendingar nútímans með öllum sínum kostum og göllum. Hrár og ómengaður samtími. Leikstjórn er í höndum hins margreynda kvikmyndagerðmanns Ragnars Bragasonar en þetta er frumraun […]
Hugleikur heldur leiklistarnámskeið

Nú stendur yfir skráning á námskeið fyrir leikara sem haldið verður í æfingahúsnæði Hugleiks að Eyjarslóð 9. Um er að ræða 18 tíma námskeið sem haldið verður dagana 3.-12. nóvember en leiðbeinandi er Þór Tulinius, 53 ára leikari og leikstjóri. Farið verður í leiki og spuna. Spáð í stærð á sviði og persónusköpun. Er leiklist bara tækni […]
Leikhópurinn Artik sýnir Hinn fullkomna jafningja

Leikhópurinn Artik frumsýnir leikverkið Hinn fullkomni jafningi eftir Felix Bergsson í Norðurpólnum sunnudaginn 28. október. Verkið, sem er einleikur, var sýnt árið 1998 og lék þá höfundurinn sjálfur í verkinu sem fjallar um fimm menn sem taka mismunandi á samkynhneigð sinni. Með hlutverkin fimm í sýningunni fer Unnar Geir Unnarsson og leikstjóri er Jenný Lára […]
Bastarðar frumsýnt á Stóra sviðinu

Nýtt stórvirki úr smiðju Vesturports, Bastarðar, verður frumsýnd á Stóra sviðinu 27. október næstkomandi. Bastarðar er án efa viðamesta leikhúsverkefni sem unnið hefur verið á Íslandi en það er gert í samstarfi Vesturports, Borgarleikhússins, Malmö Stadtsteater og Får302 í Kaupmannahöfn. Gísli Örn Garðarsson leikstýrir verkinu og er höfundur handrits ásamt Richard LaGravenese sem tilnefndur hefur […]
Hrekkjavakan nálgast!

Vinsælasta vörutegundin í versluninni okkar frá upphafi eru vatnslitirnir frá Grimas, en þeir eru framleiddir undir ströngu gæðaeftirliti og innihalda engin skaðleg efni. Fjölmargir grunn- og leikskólar allt í kring um landið eru fastir kúnnar hjá okkur og segir það meira en mörg orð um gæði litanna, en leik- og grunnskólakennarar vilja auðvitað bara það […]
Rummungur ræningi í Þorlákshöfn

Leikfélag Ölfuss frumsýnir sunnudaginn 21. október fjölskylduleikritið Rummung ræningja eftir þýska barnabókahöfundinn og leikskáldið Otfried Preussler. Þetta er ævintýri eins og þau gerast best og koma við sögu máttug galdranorn, talandi froskur, spilandi kaffikvörn, sex fötur af kartöflum og svo auðvitað sjálfur Rummungur, grimmastur og ógurlegastur allra ræningja í Ræningjaskógi. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson en […]
Il Trovatore frumsýnd 20. október

Ein vinsælasta ópera meistara Giuseppe Verdi, Il Trovatore eftir Giuseppi Verdi, verður frumsýnd í Eldborg í Hörpu þann 20. október næstkomandi. Óperan er eitt vinsælasta verk þessa ítalska meistara, en ópera eftir hann er nú flutt í fyrsta sinn í tónlistarhúsinu Hörpu. Il Trovatore hefur einu sinni verið sett upp áður í Íslensku óperunni, árið […]
Hringurinn á Interampa

Á fimmtudag heldur Leikfélag Kópavogs í víking til Litháen með sýninguna Hringinn. Félagið tekur þar þátt í Interampa leiklistarhátíðinni sem nú er haldin í 18. sinn. Auk Hringsins verða á hátíðinni sýningar frá Litháen, Hollandi, Armeníu, Rússlandi og Póllandi. Miðvikudag 17. okt. kl. 20.00 verður opið rennsli á Hringnum í Leikhúsinu í Kópavogi. Vinir og velunnarar […]
Lífið í landinu – þjóðarsögur á Dalvík

Leiklistarhópur unglingadeildar Dalvíkurskóla frumsýnir nýtt leikverk miðvikudaginn 24. október næstkomandi í Ungó. Nefnist það verk Lífið í landinu – þjóðarsögur. Höfundar eru Arnar Símonarson, sem jafnframt leikstýrir, og leikhópurinn. Dalvíkurskóli og Leikfélag Dalvíkur eru nú enn og aftur í samstarfi í tengslum við leiklistarvinnu með unglingum í Dalvíkurbyggð. Er þetta áttunda árið sem samstarf af […]
Æfingar hafnar á jólaleikriti Borgarbarna

Jólaleikrit Borgarbarna þessi jól ber nafnið Jólaævintýrið og er eftir Erlu Ruth Harðardóttur sem jafnframt leikstýrir. Er þetta sjöunda árið í röð sem Borgarbörn setja upp jólasýningu og hafa þær allar notið mikilla vinsælda. Verkið verður frumsýnt í Iðnó 1. desember og sýnt í desember.
Þegar hjartað malar

Litli leikklúbburinnKötturinn sem fer sýnar eigin leiðirHöfundur: Ólafur Haukur SímonarsonLeikstjóri: Halldóra Björnsdóttir Maður finnur það svo vel í hjartanu þegar eitthvað hefur hrifið mann og líðanin verður ögn betri en venjulega. Fær jafnvel trú á æskuna og framtíð mannkynsins og allt það. Svoleiðis leið manni eiginlega eftir frumsýningu Litla Leikklúbbsins á því ágæta verki Ólafs […]
Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir leikstjóra
Leikfélag Vestmannaeyja leitar eftir góðum leikstjóra til uppsetningar á þekktum söngleik eftir áramót. Starfstími er frá 28. janúar til 31. mars 2013. Leikfélag Vestmannaeyja er áhugaleikfélag sem var nú að hefja 102. starfsár sitt. Félagið býr yfir stóru húsnæði á þrem hæðum þar sem kjöraðstæður eru til sýninga og æfinga auk þess sem búnaður hefur […]
Hugleikur í læknisleik

Nei, ekkert dónalegt á ferðinni, og hvorki dr. Gunni né dr. Hook koma við sögu. Utangarðsmenn verða reyndar nefndir til sögunnar, en það er dr. Anton Pavlovitsj Tsékhov sem er heiðursgestur á skurðarborði leikfélagsins Hugleiks að þessu sinni. Höfundar Hugleiks hafa rýnt í hið óviðjafnanlega höfundarverk Tsékhovs á sinn skjálga hátt og afraksturinn verður á […]
…Í leikhúsið skal arka – Leikhúsgaldur fyrir alla fjölskylduna

FreyvangsleikhúsiðSkilaboðaskjóðanHöfundur: Þorvaldur ÞorsteinssonLeikstjóri: Daníel Freyr Jónsson Freyvangsleikhúsið frumsýndi laugardaginn 6. október Skilaboðaskjóðuna eftir Þorvald Þorsteinsson í leikstjórn Daníels Freys Jónssonar. Höfundur tónlistar í verkinu er Jóhann G. Jóhannsson en um tónlistarstjórn sáu Sigríður Hulda Arnardóttir og Brynjólfur Brynjólfsson. Júlíus Júlíusson brá sér á sýninguna í Freyvangi og setti saman pistil um upplifunina.
