Réttarhöldin eftir Franz Kafka leikgerð hjá Stúdentaleikhúsinu
Á laugardaginn kemur, 13. nóvember, mun Stúdentaleikhúsið frumsýna Réttarhöldin eftir Franz Kafka á Norðurpólnum, Sefgörðum 3, Seltjarnarnesi. Leikstjóri er Friðgeir Einarsson en hann skrifaði einnig leikgerð verksins. Skáldsagan Réttarhöldin heitir á frummálinu Der Prozess og er eins og áður segir eftir Franz Kafka en hún var fyrst gefin út árið 1925 og er ein af þekktari sögum höfundarins. Sagan þótti skörp ádeila á skrifræði, spillingu og valdníðslu, en hún býður ekki síður upp á persónulega túlkun og þykir á köflum endurspegla sálarlíf höfundar. Með uppfærslu Stúdentaleikhússins á þessari tímalausu sögu rannsakar leikhópurinn hugtökin sekt og réttlæti. Stúdentaleikhúsið er öflugt...
Read More


