Með fullri reisn í Brún, Bæjarsveit
Leikdeild Ungmennafélagsins Íslendings í Borgarfirði, frumsýndi gamanleikinn Með fullri reisn eftir Englendinginn Terrence Mcnally, undir leikstjórn Margrétar Ákadóttur, föstudaginn 12. nóvember. Húsfyllir var og skemmtu frumsýningargestir sér hið besta, enda uppsetningin með eindæmum hressileg. Í leikarahópnum að þessu sinni má sjá borgfirska bændur, nemendur, mjólkurbílstjóra, skógfræðinga, leikskólakennara, forstöðumann og fleiri snillinga. Verkið fjallar um 6 karla, sem missa vinnuna og hvaða áhrif það hefur á þá og fjölskyldur þeirra. Þeir bregðast við aðstæðum með því að halda strippsýningu til fjáröflunar sér og sínum. Verkið getur verið skírskotun í samtímann og aldrei að vita nema að svona sýningar fari að...
Read More


