Author: lensherra

Leikminjasafnið minnist Einars Kristjánssonar óperusöngvara

Miðvikudaginn 24. nóvember minnist Leikminjasafn Íslands aldarafmælis Einars Kristjánssonar óperusöngvara í samvinnu við Söngskólann í Reykjavík. Athöfnin fer fram í sal Söngskólans, Snorrabúð, Snorrabraut 54, kl 17. Ferill Einars verður rifjaður upp og spjald til minningar um hann í flokknum Merkisdagar íslenskrar leiklistarsögu afhjúpað. Sönglist verður í boði nemenda skólans. Fyrir skömmu síðan opnaði Leikminjasafnið einnig vefsíðu tileiknaða Stefaníu Guðmundsdóttur leikkonu slóðina á hann má finna hér...

Read More

Aukasýningar á Ódauðlegu verki um draum og veruleika

Tvær aukasýningar verða á Sjónleik Áhugaleikhúss atvinnumanna, Ódauðlegt verk um draum og veruleika, sem er fjórða í röð fimm Ódauðlegra verka um mannlegt eðli og tilvist. Af því tilefni verður endursýnt Ódauðlegt verk um samhengi hlutanna á ensku en verkið er annað í röð Ódauðlegu verkanna og var sýnt á dögunum á sviðslistahátíðinni Keðju hér í Reykjavík. Verkin fimm eru rannsókn á áráttuhegðun mannkyns og ófullkomleika. Þau feta sig inn í augnablikið þar sem maðurinn stendur berskjaldaður frammi fyrir guði og viðurkennir vanmátt sinn. Hvert verk um sig tekur á eiginleikum, þáttum eða áráttum í mannlegri hegðun og tilvist...

Read More

Af Útistöðum í Ölfusi

Leikfélag ÖlfussStútungasagaLeikstjóri Ármann GuðmundssonGetur verið að í liði brennumanna við hefðbundna bæjarbrennu á Sturlungaöld hafi verið einn rómantískur blómálfur sem hugsaði um það eitt að finna fágætar jurtir sem uxu við bæinn Kaldakol meðan félagar hans brytjuðu niður menn, konur og börn? Stútungasaga sem fagnar á árinu 17 ára afmæli er vel gert ærsla og orðaleikjaverk sem gerist á Sturlungaöld. Verkið sem er ættað frá hinum frjóa og skemmtilega Hugleik hefur verið sett upp víðsvegar um land á liðnum árum og uppsetningin nú í Þorlákshöfn gæti verið sú tíunda án þess að nákvæm rannsókn liggi þar að baki. Einn...

Read More

125. sýningin á Leitinni að jólunum og 100. sýningin á Fíusól

Fíasól var frumsýnd í mars síðastliðnum og hefur síðan þá verið sýnd fyrir fullu húsi. Sýning númer 100 er n.k. sunnudag kl. 15.  Eins og alkunna er þá er Fíasól hin mesta gæðastúlka og auk heldur uppátækjasöm með afbrigðum. Því ákvað hún að gefa Neista, styrktarfélagi hjartveikra barna sýninguna. Sjöttu aðventuna í röð sýnir Þjóðleikhúsið ævintýrið Leitina að jólunum. Að jafnaði verða þrjár sýningar sérhvern laugardag og sunnudag kl. 11, 13 og 14:30 til jóla. Það er um að gera að bregðast skjótt við því að miðarnir renna út eins og heitt hangiket á jólum! Tveir skrýtnir og skemmtilegir...

Read More

Leikfangalíf, jólaleikrit Borgarbarna, sýnt í Iðnó

Þann 27. nóvember nk. frumsýnir Barna- og unglingaleikhópurinn Borgarbörn nýtt leikrit sem heitir Leikfangalíf. Höfundur þess og leikstjóri sýningarinnar er Erla Ruth Harðardóttir. Sýningar fara fram á skólatíma, um eftirmiðdaginn og um helgar. Sem fyrr munu Borgarbörn bjóða upp á djús og piparkökur að sýningu lokinni.  Sýningargestum stendur til boða að koma með jólapakka merktum kyni og aldri viðtakenda sem Borgarbörn munu síðan koma til skila til Mæðrastyrksnefndar. Leikfangalíf fjallar um leikföng sem komið hefur verið fyrir í endurvinnslu þar sem eigendur þeirra hafa ekki not fyrir þau lengur. Leikföngin héldu að lífi þeirra væri þar með lokið. Þrír...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert