Author: lensherra

Tveir handritsstyrkir og þrír til leiksmiðjuverkefna

Gífurlegur fjöldi umsókna barst í Leikritunarsjóðinn Prologos að þessu sinni, en alls bárust 65 umsóknir frá 59 aðilum, og hafa umsóknir í sjóðinn aldrei verið fleiri. Nú er úthlutað úr sjóðnum í sjötta sinn, og hljóta tveir höfundar handritsstyrki og þrír aðilar styrki vegna leiksmiðjuverkefna. Leikritunarsjóðurinn Prologos, sem hefur starfað við Þjóðleikhúsið frá því í júní árið 2008, vinnur að því að efla íslenska leikritun og nýsköpun í sviðslistum með styrkveitingum til listamanna og öðrum verkefnum. Annað leikskáldanna sem hlaut styrk að þessu sinni, Sigurður Pálsson sem hlaut styrk til að skrifa leikritið Segulsvið, er eitt af okkar þekktustu og...

Read More

Velta af menningu 191 milljarður árið 2009

Á fréttamannafundi sem haldin var núna í vikunni í Bíó Paradís kynnti Margrét Sigrún Sigurðardóttir niðurstöður rannsóknar á hagrænum áhrifum skapandi greina. Árið 2009 var velta af menningu 191 milljarður, sem var 6% af heildarveltunni það árið. Á fundinum tók Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, til máls og sagði að menningin væri það sem gerði okkur að þjóð. Gögnin sem unnið var út frá voru frá Fjársýslu ríkisins og sambandi íslenskra sveitarfélaga. Virðisaukaskattsskyld velta  af menningarstarfsemi var 165 milljarður, eða rúm 6% af slíkri veltu á landinu öllu. Landbúnaður skilar 1% af heildarveltu og fiskveiðar 4%. Framleiðsla málma árið...

Read More

Litla Hryllingsbúðin og Karíus og Baktus í Stykkishólmi

Síðasliðnar vikur hefur Leikfélagið Grímnir staðið í stórræðum. Það er ekki á hverjum degi sem leikfélag  úti á landi setur upp þrjár leiksýningar á einum mánuði. Síðastliðin laugardag frumsýndi leikfélagið Litlu Hryllingsbúðina eftir Howard Ashman og Alan Menken, sem byggð er á samnefndri kvikmynd Rogers Corman. Sýningin er sýnd á Hótel Stykkishólmi og leikstjórn er í höndum Guðjóns Sigvaldasonar, en hann stýrir einnig Kvöldhúmi og Karíusi og Baktusi sem líka eru í sýningum hjá leikfélaginu. Allir sem þekkja eitthvað til Litlu Hryllingsbúðarinnar, hvort sem er í kvikmynda- eða leikhúsformi, vita að sagan gerist í niðurnýddri  blómabúð í skuggahverfi borgar,...

Read More

UPPI HVAÐ?

Fimmtudagskvöldið 2. des. nk. kl. 20.30 mun uppistandsgengið HJÓLASTÓLASVEITIN tröllríða Gaflaraleikhúsinu og flytja frumsamið grínefni. Fjórir fjörugir uppistandarar – þrír í stólum og einn á skrikkjandi fótum! Tilveran verður skoðuð á spaugilegan hátt þar sem sumir standa í stað, aðrir rúlla áfram um grænar grundir í Finnskum Dal með Perkúlahjónin á bakinu. Hjólastólasveitina skipa að þessu sinni Örn Sigurðsson, Guðríður Ólafsdóttir, Leifur Leifsson og nýjasti meðlimurinn er Elva Dögg Gunnarsdóttir, sem stígur sín fyrstu spor með sveitinni þetta kvöld. Kynnir er Ágústa Skúladóttir. Húsið opnar kl. 20.00. Miðaverð er 1000 kr. 
Léttar veitingar seldar í anddyri. Miðapantanir í síma...

Read More

6000 manns í Tjarnarbíói á tveimur mánuðum

Alls hafa um 6000 manns sótt viðburði í Tjarnarbíó síðan það opnaði 1. október á þessu ári eftir gagngerar endurbætur Reykjavíkurborgar. Það eru Sjálfstæðu leikhúsin – SL, sem reka húsnæðið fyrir hönd borgarinnar. Boðið hefur verið upp á fjölbreytta listviðburði s.s. tónleika, dans,- og leiksýningar, fyrirlestra og  kvikmyndasýningar. Einnig hafa alþjóðlegar hátiðir verið haldnar í Tjarnarbíó á þessu tímabili og má þar m.a. nefna Keðju, RIFF, Airwaves og TING.  Unglist var með fjölbreytta dagskrá í október en ókeypis var inn á alla viðburði hátíðarinnar. Það er ljóst að þessi fjölnota salur er að laða til sín fjölbreytta viðburði sem...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert