Author: lensherra

Síðustu sýningar á jólaleikriti Borgarbarna

Nú fer hver að verða síðastur að berja Leikfangalíf, nýtt jólaleikrit Borgarbarna, augum. Einungis eru laus sæti eru á sýningar sem eru kl. 11:00 og kl. 17:30 föstudaginn 17. desog á báðar sýningar laugardaginn 18. desember (kl. 14:00 og kl. 16:00). Uppselt er á báðar sýningar sunnudaginn 19. desember. Sýningargestum stendur til boða að koma með jólapakka merktum kyni og aldri viðtakenda sem Borgarbörn munu síðan koma til skila til Mæðrastyrksnefndar. Leikfangalíf – jólaleikrit Borgarbarna, fjallar um leikföng sem komið hefur verið fyrir í endurvinnslu þar sem eigendur þeirra hafa ekki not fyrir þau lengur. Leikföngin héldu að lífi...

Read More

Jólafrumsýning Þjóðleikhússins 26. desember – Lér konungur

Eitt af höfuðverkum leikbókmenntanna, Lér konungur, er jólasýning Þjóðleikhússins. Rétt eins og undangengin 60 ár er jólafrumsýningin á annan dag jóla markar einn af hápunktum menningarlífsins. Sýningin á Lé konungi verður engin undantekning og er um sannkallaða hátíðarsýningu er að ræða. Einn af eftirsóttustu leikstjórum í heiminum í dag, Benedict Andrews leikstýrir,  Arnar Jónsson fer með hið eftirsótta og krefjandi hlutverk Lés Konungs og ný þýðing Þórarins Eldjárns á verkinu er tilnefnd til þúðingaverðlauna. Það er því óhætt að lofa magnaðri leikhúsupplifun í Þjóðleikhúsinu. Hinn aldurhnigni konungur Lér hefur ákveðið að skipta konungsríki sínu á milli dætra sinna þriggja,...

Read More

Gjafabréf á viðburði í Tjarnarbíó

Nú gefst einstakt tækifæri til að kaupa gjafabréf á alla þá viðburði sem verða í Tjarnarbíó 2011. Hægt er að kaupa gjafabréf fyrir 3 upphæðir, 1000 kr – 2000 kr – 3000 kr og verður hægt að nota þau á alla viðburði sem fram fara í Tjarnarbíó. Ekki þarf að ákveða fyrirfram notkun gjafabréfsins  heldur getur viðkomandi ráðið hvaða viðburð hann kýs að sjá.   Það er margt framundan í Tjarnarbíó á nýju ári. 14.janúar verður frumsýnt nýtt íslenskt leikverk, Súldasker eftir Sölku Guðmundsdóttur auk þess sem leikverk Jóns Atla Jónassonar, Mojito verður tekið upp aftur og sýnt út...

Read More

Nóbelshöfundurinn aldrei vinsælli

Sýningar Þjóðleikhússins á Gerplu og Íslandsklukkunni hafa gengið fyrir fullu húsi frá því þær voru frumsýndar á Stóra sviði Þjóðleikhússins snemma á árinu, Gerpla í febrúar og Íslandsklukkan á 60 ára afmæli leikhússins í apríl. Það má því segja að Halldór Laxness hafi enn og aftur slegið í gegn, og nú fyrir tilstilli krafts og frumleika leikhússins, sem hefur með töfrum sínum gert sagnaheim skáldsins að sannkallaðri veislu fyrir augu og eyru. Vegna mikillar aðsóknar hefur verið ákveðið að gefa leikhúsgestum færi á að sjá báðar þessar sýningar á nýju ári, þótt sýningafjöldi geti aðeins verið takmarkaður. Á jólum...

Read More

Jól á Norðurpólnum

Á aðventunni breytist Norðurpóllinn í sannkallaða jólaveröld. Leikhúsið verður skreytt hátt sem lágt, það verða piparkökur á hverju borði, jólatónlistin ómar, íslenskir handverksmenn kynna vörur sínar og boðið verður upp á föndur fyrir börnin. Hátíðleikinn ræður ríkjum hjá okkur og íslensk, gamaldags jólastemning styttir okkur biðina fram að jólum. Þegar áhorfendur hafa fengið að njóta jólaandans í dágóða stund kemur að hápunkti upplifunarinnar, leiksýningarnar Grýla og Lápur, Skrápur og jólaskapið en þær hefjast hálftíma eftir að hleypt er inn í Norðurpólinn eða klukkan 13.30 og 15.30   Sýningaplan Jóla á Norðurpólnum: Lápur, Skrápur og jólaskapið Sýnt tvisvar á dag...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert