Author: lensherra

NEATA Network verkefninu lokið

NEATA Network verkefninu lauk í Reykjavík í síðustu viku. NEATA eða Norður-Evrópsku Áhugaleikhússamtökin eru samstarfsvettvangur áhugaleikhússambanda á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum. Síðastliðið ár hafa fulltrúar NEATA-landanna níu, unnið að því að styrkja tengslanetið ásamt því að þróa nýjar leiðir til að vinna saman. Fulltrúarnir funduðu í Helsinki síðastliðið haust, í Vilnius í mars og lokahnykkurinn var í Reykjavík í síðustu viku. Afrakstur verkefnisins er m.a. sá að skerpt hefur verið á tilgangi og markmiðum samtakanna og grunnur lagður að ýmsum sameiginlegum verkefnum næstu árin. Aled Rhys-Jones, forseti  alþjóðaáhugaleiksambandsins AITA/IATA sat fundinn sem gestur. Lilja Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra bauð hópnum í móttöku meðan...

Read More

Leikfélag Sauðárkróks sýnir Benedikt búálf

Leikfélag Sauðárkróks frumsýndi söngleikinn um Benedikt búálf síðastliðinn föstudag. Benedikt búálf þekkja vel flestir, um er að ræða einn allra þekktasta barnasöngleik þjóðarinnar og skemmtilegt ævintýri eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson með grípandi lögum og tónlist sem Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson gerði og söngtextar eftir Andreu Gylfadóttir og Karl Ágúst Úlfsson. Sýningin var fyrst sett upp á Íslandi árið 2002 í leikstjórn Gunnars Gunnsteinssonar. Síðan hefur hún margoft verið sett upp út um allt land, þar á meðal hjá Leikfélagi Akureyrar. Nú er komið að því að Leikfélag Sauðárkróks takist á við þetta stóra verkefni og hafa þau verið síðasta mánuðinn...

Read More

Skertur opnunartími

Vegna fundar NEATA samtakanna hér á landi verður skertur opnunartími í Þjónustumiðstöð og Leikhúsbúð mán. 9. – fim. 12. október. Opið verður kl. 11.30-13.00 þessa daga. Vefverslunin er sem ávallt opin allan...

Read More

Ársrit BÍL 2023

Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga árið 2023 er komið út. Í því eru að finna allar helstu upplýsingar um starfsemi áhugaleikfélaganna á liðnu leikári auk svipmynda úr sýningum og annars efnis. Ársritið má skoða hér og/eða hlaða því niður: Ársrit BÍL 2023 – léttútgáfa stakar síður Ársrit BÍL 2023 – léttútgáfa opnur Ársrit BÍL 2023 – í fullum...

Read More

Halaleikhópurinn ræður leikstjóra

Halaleikhópurinn hefur ráðið Pétur Eggerz til að leikstýra leikhópnum í vetur. Skrifað var undir samninginn á almennum félagsfundi í Halanum þann 26. sept. Verið er að skoða ýmis leikrit og verður það kynnt þegar það verður ákveðið.  Pétur Eggerz er fæddur og uppalinn í Reykjavík, lengst af í Breiðholtinu. Eftir nám í bókmenntafræði við Háskóla Íslands nam hann leiklist í Lundúnum og útskrifaðist þaðan 1984. Hann hefur tekið þátt í leiksýningum hjá Leikfélagi Akureyrar, Þjóðleikhúsinu, Alþýðuleikhúsinu, Leikfélagi Reykjavíkur og víðar. Honum hefur einnig brugðið reglulega fyrir í kvikmyndum og sjónvarpi. Þá vann hann um hríð við dagskrárgerð á Rás...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert