Author: lensherra

Ballið á Bessastöðum á Stóra sviði Þjóðleikhússins

Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 3. febrúar Ballið á Bessastöðum, nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Gerði Kristnýju með tónlist eftir Braga Valdimar Skúlason. Verkið er byggt að hluta á hinum geysivinsælu Bessastaðabókum eftir Gerði Kristnýju og tónlistin er eftir Braga Valdimar Skúlason, sem meðal annars hefur getið sér gott orð með Baggalúti og Memfismafíunni, en semur nú í fyrsta sinn tónlist fyrir leikhús. Gerður Kristný og Bragi Valdimar eiga heiðurinn af söngtextum í sýningunni. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. Forsetinn á Bessastöðum er að drukkna í skyldustörfum og bréfaflóði, en dreymir um að fá tíma til að skoða skýin, eignast góða vini og...

Read More

Let´s Talk Iceland: Sjö frumsýningar á sjö dögum.

Kraðak ehf hefur frá júlí 2009 sýnt gamansýningar ætlaðar ferðamönnum á hverju kvöldi á Restaurant Reykjavík við góðar undirtektir. Undanfarnar vikur hafa hins vegar orðið þónokkrar breytingar á sýningunni og leikarahópurinn stækkað. Þá heitir sýningin ekki lengur Let´s talk Local – Reykjavík heldur Let´s talk Iceland. Let´s Talk Iceland er gamansýning á ensku. Sýningin er einleikur og fjallar um sögu og menningu Íslands frá landnámi til dagsins í dag á gamansaman hátt. Þar hitta gestir víkinga og fara með þeim í ógleymanlegt ferðalag um sögu og menningu Íslands. Gestir taka þátt í nokkrum atriðum sýningarinnar og ef eitthvað er...

Read More

Barnaleikritið Út í kött! í Tjarnarbíói

Lýðveldisleikhúsið sýnir leikritið Út í kött! eftir Benóný Ægisson í Tjarnarbíói sunnudaginn 30. janúar kl 14. Þetta er ævintýraleikur með dansi og söng fyrir börn en fullorðin börn ættu líka að hafa gaman að þessu fjöruga verki. Leikin atriði mynda skemmtilega umgjörð utan um söng- og dansatriði þar sem ævintýrapersónur í litríkum búningum bregða á leik. Því miður var ein af afleiðingum kreppunnar sú að aðgengi barna að leikhúsi takmarkaðist því heimsóknir leikhópa í skóla og leikskóla voru skornar niður og heyrast nánast til undantekninga núna. Lýðveldisleikhúsið vill bæta þetta ástand og býður skólum og leikskólum hópafslátt að sýningunni...

Read More

Stutt í frumsýningu hjá Halaleikhópnum

Halaleikhópurinn vinnur nú hörðum höndum að uppfærslu sinni á verkinu Góðverkin kalla! eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason, en allir eru þeir meðlimir Ljótu hálfvitanna og ekki er þetta í fyrsta skipti þar sem þeir félagar koma að uppsetningu leikverka fyrir Halaleikhópinn með einhverjum hætti. Þess má til gamans geta að leikstjórar þetta leikárið eru að þessu sinni tveir, þau Oddur Bjarni Þorkelsson (sem er einmitt í Ljótu hálfvitunum) og Margrét Sverrisdóttir. Stefnt er á frumsýningu 4. febrúar. Góðverkin kalla! er gamanleikrit sem gerist á Gjaldeyri við Ystunöf þar sem lífið snýst um góðverk. Allir sem...

Read More

Leikfélag Selfoss á fullu skriði

Hafnar eru æfingar hjá Leikfélagi Selfoss á nýju leikverki. Að þessu sinni var ákveðið að setja upp spunaverk í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundssonar. Gunnar Björn hefur leikstýrt víða, meðal annars kvikmyndunum Astrópíu og Gauragangi sem og áramótaskaupum síðustu tveggja ára. Verkið er gamanleikur fyrir alla fjölskylduna, en meginþráður þess byggir á sunnlenskum þjóðsögum og er unnið út frá ákveðnum ramma þar sem leikhópurinn býr til sínar eigin persónur og vinnur með þær. Leikendur eru tíu talsins. Áætlaður frumsýningardagur er 25 febrúar....

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert