Freyvangsleikhúsið frumsýnir Góða dátann Svejk
Laugardaginn 19. febrúar klukkan 20:00 frumsýnir Freyvangsleikhúsið í Eyjafjarðarsveit hið stórskemmtilega og sígilda verk, Góði Dátinn Svejk, í leikgerð Írans Colin Teevan. Munu sýningar standa fram á vor. Stór hópur leikara og annara góðhjartaðra koma að uppsetningunni eða um fimmtíu manns, er síðast var talið. Leikstjóri er Þór Tulinus. Þetta er bráðfjörug sýning um ævintýri Góða Dátans Svejk í Stríðinu mikla, þar sem hann dregur dár af (sjálfsköpuðum) raunum okkar mannana með æðruleysi sínu og auðmýkt. Andlit hans ljómar af kærleika og ást til refsandi yfirboðarana sem úrskurða hann „löggiltan hálfbjána“. Hann er „fullkomlega sáttur“ hvað sem á bjátar...
Read More


