Sjálfstæðir leikhópar í Borgarleikhúsinu
Borgarleikhúsið hýsir á hverju ári a.m.k. tvö verkefni sjálfstæðra leikhópa. Verkefnin eru valin í samvinnu við borgaryfirvöld og stjórn Sjálfstæðu leikhúsanna (SL). Samkvæmt samkomulagi Leikfélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar skal Leikfélag Reykjavíkur „tryggja hið minnsta tveimur öðrum leikflokkum afnot af húsnæði í Borgarleikhúsinu til æfinga og sýninga eins verkefnis á hverju ári. Leikflokkarnir skulu hafa endurgjaldslaus afnot af húsnæði en greiða útlagðan kostnað L.R. vegna vinnu þeirra í Borgarleikhúsinu“. Samkvæmt ofangreindu er hér með auglýst eftir umsóknum leikhópa vegna leikársins 2011/2012. Með umsókn skal senda greinargerð um verkefnið þar sem greint er skilmerkilega frá því, aðstandendum þess, framkvæmdaaðilum, listrænum stjórnendum...
Read More


