Author: lensherra

Einþáttungahátíð í Mosfellsbæ 29. apríl

Í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga  dagana 29. apríl til 1. maí verður haldin einþáttungahátíð í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ. Hefst hún kl. 14. föstudaginn 29. apríl og stendur fram á kvöld eftir því þátttaka leyfir. Öll aðildarfélög Bandalagsins eru eindregið hvött til að taka þátt í hátíðinni.   Þátttökuskilyrði eru eftirfarandi:- Hámarkslengd leikþátta er 30 mínútur.- Umgjörð sýninga skal vera eins einföld og framast er unnt.- Ef heildarlengd sýninga fer yfir tímamörk hátíðarinnar verða þau félög sem senda flesta þætti beðin um að fækka þeim.- Frestur til að tilkynna þátttöku leikþátta á hátíðinni rennur úr 15. apríl. Umsóknareyðublöð...

Read More

Aðeins ein aukasýning á Lé konungi

Fullt var upp í rjáfur og margir þurftu frá að hverfa á síðustu sýningu á Lé konungi á föstudagskvöldið. Síminn hafði logað alla vikuna og tölvuskeytum rignt inn með áskorunum um að bæta við aukasýningu, þegar ljóst var í hvað stefndi, en aðstæður í leikhúsinu voru með þeim hætti að ekki var hægt um vik. Það tókst hinsvegar að hliðra til og koma við einni aukasýningu og verður hún n.k. fimmtudag 3. mars kl: 20:00. Þjóðleikhúsinu er ljúft og skylt að verða við óskum þeirra fjölmörgu sem skorað hafa á leikhúsið og mega ekki til þess hugsa að missa...

Read More

Kómedíuleikhúsið í Slipp

Kómedíuleikhúsið á Ísafirði er væntanlegt til borgarinnar með nýjustu kómedíu sína í farteskinu. Um er að ræða afar kómískan gamanleik er nefnist Vestfirskur skáldskapur á 57. mín og Vestfirsk tónlist á 27. mín. Gamanleikurinn verður sýndur í Slippsalnum í Reykjavík fimmtudaginn 3. mars og föstudaginn 4. mars báðar sýningarnar hefjast kl.20. Miðasala á sýningarnar er þegar hafin í síma 450 5565. Leikurinn hefur verið sýndur frá því í byrjun febrúar við feikna vinsældir í Arnardal fyrir vestan. Hér er á ferðinni sýning sem getur valdið heiftarlegum hlátrasköllum og er sýningin alls ekki fyrir viðkvæma. Í verkinu er leitað svara...

Read More

Laugardagskvöld með Jörundi og Bólu-Hjálmari

Núna er tækifæri til að kynnast tveimur af kynlegri kvistum íslenskrar sögu á einu bretti. Leiksýningarnar Bólu-Hjálmar og Ástir og örlög Jörundar hundadagakonungs verða sýndar í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði á laugardagskvöldið 26. febrúar kl. 20. Hvor sýning er tæp klukkustund að lengd og barinn verður að sjálfsögðu opinn, enda annað varla hægt þegar svona kappar segja sögu sína. Ágústa Skúladóttir leikstýrir báðum sýningunum, og hugmyndaríkur og fjörugur stíll hennar nýtur sín til hins ítrasta. Kvöldstund í Gaflaraleikhúsinu klikkar ekki. Stoppleikhópurinn verðlaunaverkið Bólu-Hjálmar. Þar segir frá kraftaskáldinu skrítna sem orti kröftugustu níðvísur síns tíma, kvað niður drauga og stóð í...

Read More

Kynningar- og umræðufundurinn Stóra myndin

Mánudagskvöldið 28. febrúar kl. 20 verður haldinn í Tjarnarbíói, kynningar- og umræðufundur Leiklistarsambands Íslands og aðildarfélaga um Íslandstofu og rannsóknina um stöðu Skapandi greina sem kynnt var 1. desember sl. Þar gefst tækifæri fyrir sviðslistafólk að fá að vita meira um rannsóknina og næstu skref í kjölfar hennar og kynna sér stefnumótun hins nýja vettvangs Íslandsstofu, í þágu listanna. Dagskrá: Íslandstofa – hlutverk hennar gagnvart listunum Kolbrún Halldórsdóttir, forseti BÍL og stjórnarmaður í Íslandsstofu. – Hvaða erindi á Íslandsstofa við sviðslistir og sviðslistir við Íslandstofu? Hlutur sviðslistanna í stóru rannsókninni Margrét Sigrún Sigurðardóttir, forstöðukona Rannsóknastofu í skapandi greinum við...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert