Author: lensherra

Farsæll farsi í Samkomuhúsinu

Þessi frábæri gamanleikur var frumsýndur 11. mars fyrir fullu húsi og fékk geysigóðar viðtökur. Gamanleikurinn er bandarískur að uppruna eftir þá LaZebnik og Day, en hefur verið íslenskaður og staðfærður af Spaugstofumanninum Karli Ágústi Úlfssyni. Leikstjóri er María Sigurðardóttir, leikhússtjóri LA og leikarar eru Edda Björg Eyjólfsdóttir og Jóhann G. Jóhannsson sem sló svo eftirminnilega í gegn í 39 þrep á síðasta leikári. Verkið segir frá hjónunum Rebekku og Herberti, sem búa á Akureyri en eru komin suður til Reykjavíkur til að kynna bók Herberts; Farsælt hjónaband, sem er sjálfshjálparbók ætluð öllum hjónum sem vilja viðhalda hamingjusömu hjónabandi. En...

Read More

Stúdentaleikhúsið frumsýnir DNA á Norðurpólnum

Laugardaginn 19. mars frumsýnir Stúdentaleikhúsið leikverkið DNA sem er eftir ungan breskan höfund að nafni Dennis Kelly. Dennis Kelly skrifaði meðal annars Munaðarlaus og Elsku barn sem er verið að sýna í Borgarleikhúsinu um þessar mundir. Leikstjóri er Sara Marti Guðmundsdóttir en aðstoðarleikstjórn er í höndum Sigríðar Eir Zophoníasardóttur. Ragnheiður Maísól hefur einnig unnið af miklu kappi við leikmyndagerð og Sóley Stefánsdóttir sér um tónlist við verkið. Birgit Ortmeyer hefur yfirumsjón með búningum og henni til aðstoðar eru þær Hera Guðbrandsdóttir og Rebekka Magnúsdóttir. Búið er að opna fyrir miðasölu í síma 8690326 Frumsýning 19. mars kl. 202. sýning...

Read More

Umf. Skallagrímur sýnir Ferðin á heimsenda

  Föstudagskvöldið 11. mars sl. frumsýndi leikdeild Umf. Skallagríms leikritið Ferðin á heimsenda eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur, í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar en þetta fjórða verkið sem hann leikstýrir hjá leikdeildinni. Leikritið er fallegt og hugljúft ævintýri með söngvum, tónlist og glensien höfðar til allra aldurshópa. Við fylgjumst með ferð þriggja ferðalanga á heimsenda með gripinn Geislaglóð til að bjarga framtíð álfanna í Ljósalandi. Galdramaðurinn Hrappur og hjálparhella hans sækjast eftir Geislaglóð og ferðalangarnir þrír verða að hafa sig alla við að koma í veg fyrir það, en þremenningarnir rekast einnig á ýmsar kynjaverur, s.s. tröll, vetrarálfa, köngulær og fleira...

Read More

Síðustu sýningar á Með vífið í lúkunum

Ungmennafélag Reykdæla hefur undanfarið sýnt leikritið Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney við frábærar undirtektir áhorfenda. Nú eru einungis þrjár sýningar eftir, fimmtudaginn 17. mars, föstudaginn 18. mars og laugardaginn 19.mars og því hver að verða síðastur að skella sér á þennan bráðfyndna farsa og hlæja svolítið. Sýningar fara fram í félagsheimilinu Logalandi í Reykholtsdal. Sýningar hefjast kl. 20.30. Miðapantanir í síma 691 1182 og 662 5189...

Read More

Brúðuleikhúshátíðin BIP í Borgarnesi

Helgina 31. mars – 3. apríl verður haldin fyrsta alþjóðlega brúðuleikhúshátíðin í Brúðuheimum; B I P (Borgarnes International Puppet Festival). Hátíðin er haldin í húsakynnum Brúðuheima í Englendingavíkinni, en hún mun einnig teygja anga sína víðs vegar um gamla bæinn í Borgarnesi og glæða hann lífi með fjölbreyttum dagskráratriðum. Í ár er lögð megináhersla á norrænt brúðuleikhús á hátíðinni. Heiðursgestur hátíðarinnar er sænski brúðuleikhúsfrömuðurinn Michael Meschke, stofnandi Marionetteatern í Stokkhólmi. Meschke er einn virtasti brúðulistamaður Norðurlanda og fagnar í ár 80 ára afmæli sínu. Í tilefni af komu Meschke til landsins verður opnuð yfirlitssýning í Mjólkursamlaginu með brúðum og...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert