Leiklist – uppsetningar, sýningar og aðsókn 2009/2010
Samanlagður fjöldi gesta á leiksýningar leikhúsa, atvinnuleikhópa og áhugaleikfélaga innanlands var 416 þúsund á síðasta leikári. Það jafngildir því að hver landsmaður hafi séð eina leiksýningu á leikárinu. Áhorfendum á síðasta leikári fjölgaði um 61 þúsund frá því á leikárinu á undan, eða um 17 af hundraði. Á síðasta leikári voru færðar á fjalirnar 236 uppfærslur á vegum leikhúsa, leikhópa og leikfélaga, sem sýndar voru 2.352 sinnum. Heildarfjöldi gesta leikhúsa, leikhópa og félaga á leikárunum 2000/2001– 2009/2010 er sýndur á meðfylgjandi mynd. Inni í tölum um aðsókn eru gestir á sýningar leikhúsa, leikhópa og leikfélaga í skólum og á...
Read More


