Hugleikur til Danmerkur fyrir Íslands hönd
Leiksýning Hugleiks, Sá glataði, hefur verið valin til að fara sem fulltrúi Íslands á NEATA-leiklistarhátíðina í Sønderborg í Danmörku dagana 31. júlí til 5. ágúst í sumar. Leikstjóri verksins er Ágústa Skúladóttir og handritshöfundur Sigríður Lára Sigurjónsdóttir. Tvær umsóknir bárust um að fara á hátíðina en auk Hugleiks sótti Leikfélagið Sýnir um að fara með sýninguna Tristram og Ísönd. Þetta er í sjötta skipti sem verk í leikstjórn Ágústu Skúladóttur er valið til að fara á NEATA-hátíð. Árið 2002 fór Leikfélag Kópavogs með Grimms til Svíþjóðar, árið 2004 fór Hugleikur með Undir hamrinum til Eistlands, 2006 fóru Hugleikur og...
Read More


