Örverkahátíðin Feigð hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar
Leikfélag Hafnarfjarðar stendur að örverkahátíð laugardaginn 4. febrúar í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Þar er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur heldur verða frumsýnd hvorki meira né minna en sex frumsamin verk. Og eins og það sé ekki nóg að þá fengu höfundarnir ekki nema viku til að semja verkið og leikstjóri svo aðra viku til að koma verkinu á fjalirnar. Öll verkin eiga það sameiginlegt að fjalla um dauðann frá hverju því sjónarhorni sem höfundi datt í hug. Útkoman er svo þessi örverkahátíð sem nú er orðin að veruleika. Það er ánægjulegt að segja frá að...
Read More


