Sex ung leikskáld ráðin til Borgarleikhússins
Nú fyrir skemmstu réð Borgarleikhúsið sex ung skáld til að skrifa leikverk fyrir húsið. Það eru þau Auður Jónsdóttir, Kristín Eiríksdóttir, Didda, Salka Guðmundsdóttir, Heiðar Sumarliðason, Tyrfingur Tyrfingsson. Fyrr á þessu ári réð Borgarleikhúsið sex ung leikskáld til að semja stutt verk fyrir leikhúsið. Stefnt er að uppsetningu hluta þeirra á næsta ári. Nú auglýsir leikritunarsjóður Leikfélags Reykjavíkur í þriðja sinn eftir umsóknum um stöðu Leikskálds Borgarleikhússins. Stjórnarformaður Leikritunarsjóðs er frú Vigdís Finnbogadóttir. Markmið sjóðsins er að efla nýsköpun og fjölbreytni í íslenskri leikritun, auka vægi leikritunar í samfélaginu og stuðla að því að hún njóti virðingar í samfélagi...
Read More


